Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Topics - 1966 Charger

Pages: [1] 2 3 ... 6
1
Spyrnuspjall / Kúluvarp, spjótkast, MC og ST
« on: July 06, 2017, 14:14:55 »
Hvernig brigðist þú við ef þú hefðir sjálfur skráð þig til keppni í kúluvarpi á frjálsíþróttamóti, tækir nokkur köst með kúlunni en svo mundi keppnisstjórnin taka einhliða ákvörðun,  án þess að vara þig við eða spyrja þig álits, um að þú værir orðinn keppandi í spjótkasti en þyrftir áfram að nota kúluna við köstin?   Kúluvörpin þín yrðu svo skráð sem þau væru spjótköst og þar með yrðirðu slappasti "spjótkastari" íslandssögunnar :).

Hliðstæðar aðferðir voru framkvæmdar af keppnishaldara á Íslandsmótinu í kvartmílu 24. júní s.l.   Þar skráðu undirritaðir sig í góðri trú sem keppendur í MC flokki enda var boðið upp á slíkt á vefsíðu Kvartmíluklúbbsins.  Við vorum þar tveir skráðir í MC (sem leyfir mjög takmarkaðar breytingar á keppnistæki).  Annar okkar datt út í tímatökum vegna bilunar en þegar sá sem eftir var ætlaði að fara sínar ferðir solo, þá kom allt í einu upp að hlið hans bíll í ST flokki (þar sem leyfðar eru miklar beytingar á bílum).  Þegar gerð var athugasemd um þetta við keppnisstjórn var svarið að flokkar væru ekki keyrðir nema keppendurnir væru fleiri en tveir og að þessvegna hefði keppnisstjórn ákveðið að setja MC bílinn í ST.  Við þetta vinnulag er margt að athuga og færa má rök fyrir að keppnishaldari hafi gert röð mistaka.

Alvarlegasta athugasemdin er sú að keppnisstjórn tók ákvörðunina ÁN ÞESS að upplýsa keppanda um hana fyrir fram og hvað þá að sýna keppandanum þá lágmarks virðingu að spyrja hann um hvort hann vildi færa sig um flokk og leyfa honum að velja þá flokka sem bíll hans er gjaldgengur í (hann var nefnilega gjaldgengur í fleiri en einn flokk) EÐA hætta keppni og fá keppnisgjöldin endurgreidd.

Mistök keppnishaldarans voru þessi:
1.  Að láta keppendur ekki vita, þegar skráningu lauk, að ekki yrði keppt MC flokki vegna lítillar þátttöku og að bjóðast ekki til að endurgreiða keppnis- og tryggingargjald sem keppendur þurfa að greiða fyrir fram, ÓHÁÐ ÞVÍ hvort lágmarksþátttöku sé náð að mati keppnishaldara.
2.  Að gera enga athugasemd við MC skráningu okkar við undirskrift þátttökutilkynningar í aðstöðu keppnisstjórnar á keppnisstað örfáum klukkustundum fyrir keppni þar sem skýrt er skráð á þátttökutilkynningarblaðið sem keppnishaldari fékk afhent, og er með í fórum sínum, að við séum keppendur í MC flokki.
3.  Að stilla ST bíl upp við hlið MC bílsins án þess að spyrja MC keppandann álits hvort hann vildi keppa í ST flokki (eða TS flokki sem hann hefði einnig getað) eða hætta keppni og fá keppnisgjöld og tryggingar (11.000 kr.) endurgreiddar.
4.  Þegar skráningu lauk voru þrír bílar skráðir í ST flokkinn sem MC bílunum tveimur var bætt inn í.  ST flokkurinn var því þegar orðinn löglegur og þurfti ekki að bæta við MC bílunum.  Í TS flokki var hinsvegar bara skráður einn bíll svo það hefði verið skynsamlegra að bæta tveimur bílum við þar til að gera TS flokkinn gildan.  Hversvegna datt keppnishaldara það ekki í hug?  ST flokkurinn er sekúntuflokkur þar sem breakout reglan 11.49 er í gildi.  Í tímatökum fóru tveir ST bílanna langt undir þeim tíma.  Óskiljanlegt er af hverju keppnisstjórn datt ekki í hug að það mætti færa þá yfir í TS flokk þar sem aðeins einn bíll var skráður fyrir.  Slík ráðstöfun hefði gert TS og ST flokkana gilda að því gefnu að báðir MC keppendurnir og tveir ST keppendurnir sem fóru lágar ellefu hefðu samþykkt slíkar uppástungur keppnisstjórnar. Sá eini keppandi sem skráður var í TS hefur tjáð okkur að hann hafi fengið einn vin sinn til að keyra með sér í flokknum til að hafa eitthvert company.  Hversvegna var þessum tveimur lágu 11 sekúntna bílum ekki boðið að færa sig þangað?
5.  Ef keppnishaldari mun koma með þau mótrök að keppendur ættu að vita um þessa þriggja bíla reglu þá er svar okkar þetta: Á vef keppnishaldarans sjálfs, á keppnisdeginum 24.06. s.l. , er eftirfarandi 6 ára gamli orðrétti texti það sem fannst um lágmarksþátttöku í keppni: „Hér má sjá þá flokka sem eru í boði 2011, lágmark 2 keppendur þurfa að vera í viðkonamdi flokk til að hann sé keyrður.“  Þarna stangast því á upplýsingar á vefsíðu keppnishaldara og ákvörðun keppnishaldara. Ef keppnishaldari bendir á að á AKÍS síðunni standi:  „Þar sem annað er ekki tekið fram skal lágmarksfjöldi keppenda sem hefja keppni í hverjum keppnisflokki vera þrír til að úrslit telji til Íslandsmeistarastiga“ þá er því til að svara að ákvæðið um fjölda snýst bara um hvort keppnin sé til íslandsmeistarastiga.  Að sjálfsögðu mætti keyra flokk með tveimur keppendum ef þeir óska þess, þeir fá bara engin stig. 
6.  Á vefsíðu AKÍS kemur fram að kærufrestur vegna flokkaskráningar lýkur 30 mínútum ÁÐUR en keppni hefst. Á þeim tíma töldum við að við værum keppendur í MC flokki en þegar hið sanna kom í ljós var þessi kærufrestur liðinn auk þess sem gagnslaust hefði verið að kæra keppnishaldarann sem fer sjálfur með úrskurðarvald í slíkum kærumálum.

Að ofangreindu virtu er álit undirritaðra að framkoma keppnishaldara í garð okkar 24.06. s.l.  megi annað hvort kalla vísvitandi blekkingu eða að vankunnátta keppnishaldara hafi valdið röð ofangreindra mistaka.

Undanfarin ár hefur KK lyft grettistaki varðandi aðstöðu og umhverfi til keppnishalds og skal því hrósað hér.  En það eitt og sér dugar þó ekki til að laða að keppendur ef keppnishaldari kemur fram við keppendur af fálæti og virðingarleysi eða ef vankunnátta hans er á því stigi að keppendum er att út í tóma vitleysu.

 Hér hafa ofangreind vinnubrögð keppnishaldara leitt til að tveir keppendur, með áratuga langa keppnisreynslu, munu ekki taka þátt kvartmílukeppnum fyrr en vinnubrögð keppnishaldara hafa lagast varðandi ofangreind atriði.  Fyrsta skrefið í þá átt væri að keppnishaldari endurgreiði skráningar- og tryggingarkostnað okkar (samtals 21.000 kr.) sem er bara brot af kostnaði okkar við þátttökuna.

Ragnar S. Ragnarsson og Björn Gíslason

2
BÍLAR til sölu. / Dodge Coronet R/T 1967
« on: June 23, 2014, 19:55:37 »
Ken Westerlund, vinur okkar Einsa Bé, Magga Bergss, Gulla Emilss og fleiri er með ´67 Coronet R/T til sölu.  Verðið er umsemjanlegt en liggur um $29.000 dali.  Bíllinn er ryðlaus, með aflstýri og bremsur, spegla á báðum hliðum og hnakkapúða.  Bíllinn er á Florida en hafði alið aldur sinn þurru loftslagi í Spokane við landamæri Washington og Idaho.  Látið mig vita ef þið hafið áhuga og ég skal senda ykkur fleiri myndir og gefa samband við þyrluflugmanninn og geitabóndann Ken sem bað mig að koma þessu tryllitæki á framfæri við ykkur.

Ragnar

3
Til sölu Edelbrock TM6 einplönungur fyrir Mopar 361-383-400 big block. Verð 7.000 kall.

Í febrúar 2009 gerði Hot Rod samanburð á Mopar big block soggreinum: http://www.hotrod.com/techarticles/hrdp_0801_mopar_intake_manifolds/viewall.html#ixzz1bcmmGQGL

Þar segja þeir um EDELBROCK TM6: 
Edelbrock's old TM6 was the standard for race single-plane manifolds from the '60s, and many an old-timer believes it has never been bettered. While quite a capable performer, there are better units out there today, though this intake still looks "right." If you have one and are not looking for the last ounce of power, it does the job.

Ragnar 861-8672



4
Mér finnst skipta máli að við mótorhausar áttum okkur á því að í gær (laugardag) hentist kvartmíluÍÞRÓTTIN hérlendis með látum inn í 21. öldina.

Mér er óhætt að fullyrða að allir keppendur á Götukónginum 2011, sem áttu bíla sem gengu á öllum, hafi bætt persónulegan árangur sinn og sumir verulega.  Fram að þessu hafa keppendur verið kátir með bætingar upp á allt að .05 sek en í gær voru dæmi um bætingar upp á a.m.k. .40 sek.  Þennan árangur má að miklu leyti þakka gjörbreyttum brautarskilyrðum í startkaflanum.

Þeir mótorhausar sem hafa lagt óeigingjarnt starf af hendi við að setja upp nýja startið eiga þakkir skildar.

Því miður voru, að því ég best veit, engir íþróttafréttamenn viðstaddir þessa tímamótakeppni, enda er maður fyrir löngu hættur að ætlast til að fólk í þeirri rasssitjarastarfsgrein sýni þessari íþrótt áhuga þrátt fyrir elju margra þeirra sem stunda hana sem keppendur og starfsfólk.

Óska nýja Kidda kóngi til hamingju með sigurinn.  Keppandi dagsins var hinn síungi Kjarri Kjartanss og bunu dagsins átti klárlega Impresan.

Góðar stundir


Ragnar

5
Chrysler / 2010 Challenger Factory Racecar - not street legal
« on: February 24, 2010, 21:10:55 »

Fyrir þá sem muna eftir 68-9 426Hemi Barracudu og Dart tækjunum, sem eru rosalegustu verksmiðjuframleiddu kvartmílutæki sem seld hafa verið af bílaframleiðendunum stóru.  Hér sést að Chryslerverksmiðjurnar eru enn við sama heygarðshornið:

http://www.redletterdodge.com/2010/02/24/2010-dodge-challenger-drag-pak-kicks-ass-takes-names/

6
Alls konar röfl / Mátulega rólegt & easy on the parts
« on: February 15, 2010, 18:48:27 »
Er þetta ekki málið fyrir kallana sem eru alltaf á leiðinni að keppa en skortir eistu?

http://www.ngkra.com/

http://www.youtube.com/watch?v=3BgdBlQwniw

Mátulega rólegt og easy on the parts.

Góðar stundir

Err


7
Alls konar röfl / Þorrablótskeppnin hjá NHRA
« on: February 12, 2010, 21:39:30 »

Jæja þá er búið að kveikja á ljósunum í NHRA sirkusnum. Í Pro Stock eru allir venjulegu trúðarnir mínus Anderson og Line komnir fremst á sviðið í 1. umferð:

POMONA, Calif. - SUMMIT FastNews - Order after one round of qualifying in Pro Stock at the NHRA Full Throttle Drag Racing Series, 50th annual Kragen O'Reilly NHRA Winternationals presented by Valvoline:
 Psn  Driver               Vehicle                            ET   Speed
   1. Mike Edwards         Penhall/K&N/Interstae GXP       6.580  210.47
   2. Jeg Coughlin         Jegs.com Cobalt                 6.591  209.59
   3. Ron Krisher          Valvoline Cobalt                6.595  209.75
   4. Rodger Brogdon       Kent Services & Trucking GXP    6.603  209.23
   5. Allen Johnson        Mopar/J & J Racing Avenger      6.611  209.39
   6. Vinnie Deceglie      Mountain View Tire Avenger      6.613  209.23
   7. Greg Stanfield       Nitrofish GXP                   6.617  209.23
   8. Steve Spiess         Billet Specialties Cobalt       6.631  208.26
   9. Shane Gray           Gray Motorsports GXP            6.642  208.23
  10. Ronnie Humphrey      Pro Stock Grills/THM GXP        6.644  209.26
  11. V. Gaines            Kendall Oil Avenger             6.647  207.82
  12. John Nobile          Nobile Racing Mustang           6.660  207.82
          --------- Not Qualified ---------
  13. Warren Johnson       K&N Filters GXP                 6.662  208.10
  14. Bob Yonke            Adrenaline Motorsports GXP      6.676  205.91
  15. Danny Gruninger      www.usrecognition.com Stratus   6.697  207.18
  16. Larry Morgan         Lucas Oil/Summit Mustang        6.707  207.72
  17. Kurt Johnson         Mark Chriastopher Cobalt        6.730  207.50
  18. Gordie Rivera        Gordies Speed Center GXP        6.730  204.54
  19. Jason Line           Summit Racing Equipment GXP     7.235  149.03
  20. Johnny Gray          Gray Motorsports GXP            9.483  163.57
  21. Rickie Jones         Elite GXP                      12.807   69.23
  22. Greg Anderson        Summit Racing Equipment GXP    13.511   64.16
  23. Justin Humphreys     RaceRedi Motorsports GXP       24.106   34.75

8
Hvað kallast AMC sem búið er að aka upp á hæð?
Kraftaverk.

Hvernig er hægt að auka virði AMC um helming?
Fylla tankinn.

Hvað kallast það ef AMC fer í gang í fyrsta starti?
Nýjung.

Hvernig er hægt að gera AMC flottari?
Leggja honum þar sem er fullt af Hyundai.

Hvar er stærsta rýmið í AMC?
Milli eyrnanna á eigandanum.

9
Bílarnir og Græjurnar / Er vorið komið hjá þér?
« on: February 06, 2010, 18:51:29 »
Vorið kom í þessum skúr á Selfossi í dag.  Fögur hljóðin frá þessari vél fylltu andrúmsloftið og gerðu nágrannana vitlausa.

Góðar stundir

Err

16
Alls konar röfl / Síðasta ferð Jerome Miller var með stæl
« on: October 06, 2009, 21:19:51 »
Í neðangreindri frétt segir frá öldungnum Jerome Miller sem var kvartmílukall með stóru K-i.  Hann óskaði þess að farinn yrði buna niður kvartmíluna með hann steindauðan í líkvagninum.  Cadillac "hersið" rann skeiðið á 45 sekúntum með 27 mílna endahraða:

http://www.kenoshanews.com/news/racing_in_peace_6494145.html#

18
Pattaralegir félagarnir

19
http://www.youtube.com/watch?v=SpG_-sDJ6Eg

Takið sérstaklega eftir bláa Fury hlunknum sem ekkert ræðst við á brautinni. Finninn Jyrki á tækið sem er 8 sek bíll 3400 pund.

20
Bílarnir og Græjurnar / Tryllitækjadagurinn
« on: August 16, 2009, 22:01:57 »
Tveir flottir, smíðaðir á Woodstock tímabilinu

Pages: [1] 2 3 ... 6