Uppskeruhátíð KK verður laugardaginn 22. Nóvember.(ath leiðrétt. setti óvart inn 21. nóv í staðinn fyrir 22. nóv)
Skráning verður sett upp á sunnudaginn.
Ég læt setja þetta á forsíðuna líka á sunnudaginn.
Þá verður allt klappað og klárt með matseðil og verð.
Við ákváðum að hafa þetta svolítið flott í klúbbhúsinu okkar og verðum með mat og mjöð.
Ástæða þess að þetta dróst á langinn var að við vorum ekki búnir að fá fast verð í matinn og nokkrir lausir endar sem nást ekki að klárast fyrir laugardaginn. Bið alla sem ætla að mæta í matinn að skrá sig svo tímanlega þegar þar að kemur því það verður takmarkaður sætafjöldi, sennilegast í kringum 50-60 manns.
Hálfdán þú ert velkominn líka.