Sælir félagar.
Nú get ég ekki orða bundist lengur yfir þessum þræði.
Hér eru menn að fara með staðlausa stafi hvað varðar verð sem að okkur voru gefin upp í mat fyrir lokahóf klúbbsins, og ekki síður er verið að draga nafn Geira í Goldfingers inn í þessa umræðu.
Það er rétt að Geiri á "Steak and Play" en ég veit fyrir víst að hann rekur ekki staðinn, enda sé ég ekki hvað það skiptir máli í þessu tilviki.
Staðurinn er sá flottasti sem að við getum fengið fyrir svona lagað með tilliti til þess að okkur langar til að mynda að hafa myndasýningar og annað sem að allir þyrftu að sjá.
Tilboðið sem kom frá REKSTRARSTJÓRA "Steak and Play" var eftirfarandi: "Carveri" Steikarhlaðborð (Nauta, Lamba og Svínasteik að eigin vali og eins og hver og einn getur torgað) skorið niður af matreiðslumanninum á hvern disk, 4300kr.
Venjulegt hlaðborð 3300kr
Þetta var miðað við að 100 manns mættu.
Ég yrði hissa ef að hægt væri að fá sambærilegt frá einhverri veisluþjónustunni, en hver veit.
Já og þá myndu peningarnir fyrir það að sjálfsögðu renna í vasa viðkomandi veisluþjónustu ekki satt.
Ég sjálfur hef engra hagsmuna að gæta í þessu en mér finnst skrítið hvað verið er að draga nafn Geira persónulega inn í þetta þó að hann sé eigandi þessa staðar.
Síðan finnst mér að Auðunn Herlufsen ætti að biðjast afsökunar á neðangreindum ummælum en þau geta svo sannarlega skaðað klúbbinn.
ég er bara alfarið á móti því að við séum að láta GEIRA g hafa fullt af peningum svo hann geti flutt inn fleiri pólskar konur með það fyrir augum að svala þörfum kynferðissjúkra einstaklinga og skræla þá í leiðinni.
Svona ummæli sína eingöngu hugsanahátt og þekkingaleysi þess sem setur þau fram.
Ég vona að klúbbnum gangi vel með það sem þeir ætla að gera.
Kv.
Hálfdán.