þetta á ekki að halda bílnum saman eitt og sér soðið með 5 cm millibili kíttið þéttir og hefur mjög góða viðloðun við málm og ef menn sem hafa verið í þessum bransa í 25ár seiga mér að nota þetta þá er þetta gott
terostat 9120 er heldur ekki lím það er yfirborð kítti til að nota á samskeyti og í glufur.
Þegar að ég set svona hluti eins og aftur bretti á þá hef ég sink grunn á öllum flötum síð svo þá punkta og suður sem þarf að sjóða,eftir slípun á suðum þá setur maður epoxy grunn og trefjaefni eða sparsl yfir það.
En samskeiti á svona gömlum bílum voru oft tinuð bæði til að loka sárinu og eins til að fylla í á sama hátt og sparsl er notað.
Tin er mjög endingar gott og lokar algjörlega öllum sárum og samskeytum og heldur stikkjum saman á sama hátt og lím
Lím efnin sem eru stundum notuð eru ágæt en kosta alveg helling og eiga nú svo sem ekki mikið erindi í svona fornbíla þar sem að menn eiga að gera hluti eins og svona samsetningar vinnu eins orginal og hægt er að mínu mati.
Ég er með yfir tuttugu og fimm ára ára reynslu af svona vinnu og ég tel mig nú vita hvað ég er að segja.
En það er með þessa stétt eins og svo margar aðrar að það eru alltaf einhverjir sem þykjast vita hlutina betur en næsti maður og það má vel vera að þau ráð sem þú hefur fengið fram að þessu hafi gefist viðkomandi ráðgjöfum vel en svo er þitt að meta hverjum á að treysta og útfrá því tekur þú svo þína ákvarðanir.
Oft þegar að maður er að skoða svona þræði þar sem að menn eru að gera bíla upp þá sér maður mistök og hlutina unna í rangri röð eða jafnvel ekki unnir rétt á neinn hátt en einhverja hluta vegna þá tekst þessum aðilum oftast að koma bílunum saman á ný þannig að þótt allt sé unnið á hvolfi þá er greinilega hægt að klára verkin.
Haltu áfram og gangi þér vel.