1
Almennt Spjall / Re: æfing í kvöld
« on: August 09, 2008, 16:54:33 »Mér persónulega finst þetta mikið niðurstökk fyrir kvartmíluklúbbinn með því að loka á aðra meðlimi sem ekki sjá sér fært á að eyða heilum laugardegi í keppni að mæta á Föstudagsæfingu þegar keppni er daginn eftir. ég hef persónulega ekki séð marga af þessum "alvöru" kvartmílutækjum vera að mæta á þessar æfingar hingað til og þeir sem gera það hoppa hvort eð er fram fyrir alla röðina þegar þeir vilja fara. Restin af liðinu er þarna bara til að fara ferðir, ekki að stilla eitt eða neitt.
Hefur þetta verið það mikið vandamál undanfarin ár að það þurfti að loka á hina meðlimi klúbbsins þetta árið?
mbk. Davíð Sævar Sævarsson.
ég er alveg sammála þér , það er búið að hækka meðlimagjaldið en fækka æfingum . Mjög margir borga sig í klúbbinn bara til að fá að vera með á æfingum , hvað eru búnar að vera margar æfingar í sumar opnar öllum (ekki bara þeim sem eru að fara að keppa)? Ég veit alveg að framkvæmdir kosta peninga og allt það en klúbburinn fær líka inn pening með að halda æfingar fyrir alla.