Jón Þór.. Björgvin er varamaður í þessari nefnd en samt held ég að hann sé að höndla langmesta vinnuna
svo við skulum ekki vera að skjóta persónulega á hann.
Hinsvegar er það ykkar maður Davíð sem er þarna inni fyrir spyrnugreinar og hlítur hann því að vera með þetta á sinni könnu.
Hefur þetta ekkert komið upp hjá ykkur á þessu félagsfundum sem hafa verið núna undanfarið?
Ég er alls ekki að skjóta á hann heldur bara að biðja um upplýsingar í mesta bróðerni sem hann vill ekki gefa heldur teygir lopann og bendir alltaf á annan mann.
Eins finnst ekkert um þessa nefnd á vefsíðu ÍSÍ.
Eins og þú segir að hann sé að höndla langmestu vinnuna þá hlýtur hann að vita best hvernig hlutirnir eru að virka.
Davíð var víst ekki boðið á seinasta fund að mér skilst og Björgvin virðist vera miklu meira inn í þessu.
Þar sem Björgvin er virkilega fróður um þessi mál og virkur hér á spjallinu þá finnst mér auðveldast að spyrja hann og var það gert með von um góð svör í staðinn fyrir leiðindi.
Ég vil bara biðjast afsökunar á því að vilja fræðast meira um þau lög og reglur sem klúbburinn á að fara eftir og lofa að gera það aldrei aftur.