Kvartmílan > Keppnishald / Úrslit og Reglur
GF Breytingar (flame suit ON)
1965 Chevy II:
:smt108 :smt104 :smt058
maggifinn:
Grétar ekki voga þér að fara að skemma Veguna.
Vertu frontmaður í stofnun hurðaflokks sem sameinar þessa númerslausu boddýbíla. allt leift en einhver dekkjatakmörk kannski.... eða ekki.
Eru menn þá á því að það þurfi ekki að vera til flokkur fyrir númerabíla sem leyfir meiri breitingar en SE? SE sé þá ðí öltimet götuflokkur?
ég vil benda mönnum jafnframt á að ég er að stinga uppá nýjum vigtartakmörkunum í flokkinn fyrir "litlu" strákana. Ég held að vélarafl einsog GT og RS hafa sýnt í sumar sómi sér vel í GF í svoleiðis vigtum. Þá geta þeir jafnframt notað alvöru bensín,alvöru fjöðrun og alvöru dekk.
Dodge:
--- Quote ---Hvernig í ósköpunum getur KK verið að takmarka meira hvað er götubíll heldur en bifreiðaskoðun?
--- End quote ---
Svo er það annað mál.. held það sé betra að sami aðili skeri úr um
það fyrir alla bílana. en ekki mismunandi skoðunarstöðvar um allt land.
Það eru til allskonar kolólögleg tæki á þessu skeri sem fá alltaf skoðun,
hvort þeir bjóða skoðunarmanninum í kaffi í skúrnum eða hafa kellinguna
með sér fáklædda í skoðun til í allt, það veit ég ekki.
Svo er það harður slagur í frumherja á ak að koma Capricenum hans
Ragga í gegn, og það er bíll sem er orðabókarskilgreiningin á götubíl,
slétt eins og hver annar caprice bara með stóra vél.
Just my 2... Tel það sanngjarnast að allir sitji við sama borð.
Gretar Franksson.:
Sælir,
Var bara að koma með einn vinkil í umræðuna. Um leið og GF-flokkur verður opnaður meira þá koma hugsanlega öflugri bílar inn. Og þeir sem eru fyrir í þessum flokk finnst etv. að þeim vegið. (mæta jafnvel ekki).
Annars finnst mér þessar tillögur hjá Magga að mörgu leiti ágætar. Ef það er númeraskylda þá er það rosa hamlandi fyrir suma. Reglurnar voru þannig áður en númeraskyldan kom inn 2002 að mig minnir. "Ökutæki skal standast skoðum með lítilli fyrirhöfn" eithvað svona loðið. Þannig þetta þótti sumum ekki gott.
Annars er það etv bara nægilega hamlandi svona eins og þú stingur uppá Maggi og sleppa þessum skoðunarþætti og engin númer. Það er þarna 1300kg limit. Þetta eru þá Back-half bílar eins og Ari nefnir. Spurning??
Svo eiga rörabílar bara heima í OF og ekkert að því að þeir keppi við Dragstera.
kv.GF
maggifinn:
Hei Grétar
Mér hefur alltaf fundist vanta flokk fyrir númerslausa bíla frá því að númeraskilda var sett inní GF.
En ég er líka á því að það var rétt ákvörðun á sínum tíma.
Það þarf að laga GF, annaðhvort þarf að takmarka verulega plastnotkun í yfirbyggingu . Eða leyfa skynsamlegri smíði undir hana. Ég vil halda GF sem allout númeraflokk þarsem helst allt er leyft en það þurfi að vera bara á númerum og að því sé framfylgt að bílar séu hæfir til götuaksturs. þe öll ljós virki,handbremsa, og farþegasæti
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version