Þetta gula THING á víst að vera Camaro og er eitt það allra ljótasta sem maður hefur þurft að sjá í lengi, ef ekki bara frá upphafi.
En þetta hlítur bara að hafa verið gert fyrir einhverja framtíðarkvikmynd eða einhvað álíka, ég trúi ekki að menni geri svona vegna þess að þeim hafi þótt þetta vera flott.
Og Camaroinn hans Ara er sjúkt flottur að mínu mati og finnst mér ekki skipta hvort innribrettin séu í honum eða ekki, flottur bíll er flottur bíll hvort sem hann er 100% orginal eða ekki.
Auk þess er hann í betri ástandi en margir þeir bílar sem hafa verið gerðir upp hérna í gegnum tíðina. Og bara hægt að sjóða brettin aftur í hann rétt eins og þegar það er skipt um heilu stykkin til að ryðbæta aðra bíla.
Sjáum bara græna 69 RS/SS bílinn, er hann ekki búinn að fara heilann hring, allt frá því að vera orginal, spyrnu/götubíll, hardcore reisgræja með fiber framstæðu og svo aftur í það að vera einn af flottustu bílum landsins