Kvartmílan > Almennt Spjall

Tilnefning aksturíþróttamanns í spyrnu.

<< < (3/5) > >>

Harry þór:
Getur verið að Grétar Franksson sé að gjalda þess að vera að keppa í OF flokki ? Við vitum að það eru ekki allir ánægðir með hvað OF flokkur að virka flott. Við félagar í KK erum ekki sáttir við að Grétar Franksson sé ekki einu sinni á blaði eftir vera búinn að rúlla upp öllum keppnum sem voru í boði þetta sumarið og alltaf til fyrirmyndar sem keppandi.

Mbk Harry Þór.

Lindemann:
Ég hef ekki trú á því að þetta tengist á nokkurn hátt óánægju einhverra með OF flokk.

Mér finnst fyrirkomulagið á þessu vali alls ekki gott, alveg óháð því hverjir voru tilnefndir og hverjir ekki.
Það þyrftu að mínu mati að vera fleiri en einn úr hverri grein tilnefndir og svo á ekki að skipta í karla og konur þegar það er ekki keppt í karla og kvennaflokki í þeim greinum sem heyra undir sambandið!

Kristján Skjóldal:
 =D> =D> =D> =D> =D>

Dodge:
Það komu 3 svipað sterkir til greina.
Grétar Franks, Danni Ingimundar og Bragi þór pálsson. Allir stóðu sig vel og erfitt að gera upp á milli.
En það er erfitt að líta framhjá mönnum sem bæta met í rótgrónum flokki ca 10 sinnum á seasoninu og færa það niður um 0.2 sec..

69Camaro:

--- Quote from: Harry þór on November 02, 2014, 13:35:00 ---Getur verið að Grétar Franksson sé að gjalda þess að vera að keppa í OF flokki ? Við vitum að það eru ekki allir ánægðir með hvað OF flokkur að virka flott. Við félagar í KK erum ekki sáttir við að Grétar Franksson sé ekki einu sinni á blaði eftir vera búinn að rúlla upp öllum keppnum sem voru í boði þetta sumarið og alltaf til fyrirmyndar sem keppandi.

Mbk Harry Þór.


--- End quote ---

Dylgjur og hálfkveðnar vísur úr þessari áttinni eins og venjulega. Viltu ekki nafngreina þessa samsærismenn innan AKÍS sem sitja á svikráðum við keppendur í OF flokki ?

Navigation

[0] Message Index

[#] Next page

[*] Previous page

Go to full version