Ég var semsagt að velta því fyrir mér hvað menn væru með mikið í laun í þessum geira? og hvað þetta nám er lengi í skóla 
Kv.
Sæll
Þú byrjar á að taka 2 annir í grunndeild bíliðna. Síðan velja menn sér annaðhvort bílamálun, bílasmíði eða bifvélavirkjun. Ef þú velur þér bílamálun þá eru þetta 3 annir í skóla og 9 mánuðir í starfsþjálfun á verkstæði. Kennslan er bílamálun t.d., skiptist eftir önnum, eina önnina er kennt fyrir hádegi og aðra önnina eftir hádegi, þannig hægt er að vinna með skóla ef því er að skipta.
Ég er á 2 önn í bílamálun og líkar bara vel! Ég er ekki byrjaður að vinna við þetta þannig ég veit lítið um launin.
Tommi