Gott kvöld peyjar
Mig langar pínu að fræðast um bílinn hans afa sem er búinn að liggja inn í bílskúr síðastliðinn 23 ef ekki fleirri ár.
Um er að ræða Pontiac Firebird 350 1968 árgerð, með 350 mótor og já þetta er eyjabíllinn.
Afi minn heitir Guðjón Stefánsson og er búinn að eiga bílinn í langan tíma. Þannig ég var að spá hvort einhver vissu um þennan bíl s.s. hverjir væru fyrrum eigendur og hvort það væri til einhverjar myndir af honum ?
Læt fylgja með nokkrar myndir hvernig staðan á honum er í dag. Það er verið að fara gera hann allan upp og svona.