Góðan daginn. Það er greinilega að koma að aðalfundi,menn byrjaðir að tala um reglur og breytingar. Það er ánægjulegt að sjá að það er nóg af mönnum sem bjóðast til verka fyrir KK. Ég hef aldrei skilið þetta að mönnum finnist að þeir þurfi að vera í stjórn til að koma og starfa fyrir KK og hinum finnst að stjórnin eigi að gera allt. Stjórnin á að hafa stjórn á hlutunum og koma fram fyrir hönd KK og sjá til þess að þetta og hitt sé gert, ss fá menn í verkin.Eins og þessu er háttað núna bjóðast menn í stjórn og eru á kafi í vnnu og brenna út og hætta og þar fer mikil þekking.
Það sem þarf að gera er að kjósa stjórn KK og stjórnin býr til : Keppnisstjórn - sjoppustjórn - framkvæmdarnefnd - húsnefnd - og SKEMMTINEFND. Það þarf sem sagt að virkja fleiri til starfa. Ég er til í að vera í OLD BOYS sem býr til gott bakland fyrir KK
mbk Harry Þór
Sæll Hatty.
Ég tek undir þetta sjónarmið hjá þér. Það er mjög mikilvakt hjá stjórn KK að virkja sem flesta félaga til verk og það er tímabært að lyfta KK á hærra plan og ég tel það tækifæri vera í dag. Grunnurinn er kominn í formi aðstöðu og úthlutuðu svæði.
Kv Ingó.