Fékk tölvupóst í morgun frá Alberti Sveinssyni en honum langar að bjóða félagsmönnum upp á
MICKEY THOMPSON slikka.
Það sem um er að ræða fyrst um sinn er að athuga hvort það sé einhver áhugi hjá félagsmönnum um að versla sér slikka.
Ef menn hafa áhuga þá væri gott ef menn myndu pósta hér fyrir neðan tegund og stærð af slikkum sem menn myndu kaupa.
Síðan ef einhver X fjöldi næst þá mun pöntun fara af stað og félagsmenn fá góðan afslátt.
Sennilegast verður fyrirkomulagið þannig að það þarf að staðfesta pöntun með smá greiðslu.
Gert er ráð fyrir að slikkarnir myndu koma þá til landsins í Mars eða byrjun Apríl.
Þessi könnun verður aðeins í nokkra daga þar sem hugmyndin er að pöntun færi af stað í þessum mánuði.
Hér er hægt að skoða síðu
MICKEY THOMPSONwww.mickeythompsontires.com