Author Topic: Sama gamla lumman!!  (Read 4513 times)

Offline Ingó

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 504
    • View Profile
Sama gamla lumman!!
« on: October 24, 2009, 12:36:30 »
Sama gamla lumman !!  Það er ljóst að reglurnar eru úreldar þar sem þær hafa ekki verið uppfærðar í samræmi við þróun keppnistækja. Þetta stendur fast þar sem lög KK eru svo gölluð að keppendur ráð hverju má breyta og það að eins á aðalfundi sem er einu sinni á ári og rétt fyrir komandi keppnistíma bil. Það er hægt að breyta þessu ef menn vilja t.d. mætti skipa reglunefnd sem gæti unnið innan fyrirfram ákveðnum ramma sem mætti semja á fjölmennum reglu fundi. ‘i framhaldi mætti boða til auka aðalfundar til að breyta lögum KK. Það er mín skoðun að þetta hamli framþróun KK að geta ekki uppfært reglur eftir þróun keppnistækja og að get ekki stoppað í göt þegar götin koma í ljós. Ef meðlimir KK vilja auka veg KK þá verða keppendur að setja sína eigin hagsmuni til hliðar og leggja traust á stjórnendur þ.a.s. reglunefnd og stjórn KK og treysta því að þeir hljóta að hafa það markmið að efla KK og það hlýtur að fara saman með reglum sem hafa það markmið að fjölga keppendum .

Að lokum Það gengur ekki í þessu litla en ört stækkandi Íþróttafélagi að menn séu með þetta reglu þras á persónulegum nótum, eina sem það hefur í för með sé er að skapa sýta móral og leiðindi millimanna. ](*,)

Kv Ingó.
 :)
« Last Edit: October 24, 2009, 18:27:46 by Ingó »
Ingólfur Arnarson

Offline Kristján Skjóldal

  • On the bumper looking at god
  • *******
  • Posts: 4.781
  • ef stórt er gott þá er stærra betra
    • View Profile
Re: Sama gamla limman!!
« Reply #1 on: October 24, 2009, 13:30:16 »
rétt er það =D>
best á Camaro 1972 1,49 60 f 6,49 1/8  10,19 1/4 @ 131.96.  best á  Blower Camaro 1967 1,16 60 F 5,12 1/8 og 8,16 1/4 @169. best á Dragga 8,26 @ 170,97 en þá voru ekki komnir 60 f timar. sandur 3,34 draggi og á hjóli 4,56 kveðja Kristján Skjóldal

Offline Harry þór

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 714
  • Camaro 427
    • View Profile
    • http://www.korfubilar.is
Re: Sama gamla limman!!
« Reply #2 on: October 24, 2009, 13:59:58 »
Sæll Ingo.
 Ég er sammála að það þarf að koma þessu  eilífa regluþrasi á annað stig. En er þetta ekki búið að vera virka 90% þessar reglur okkar, menn eru búnir að vera smíða bíla og á laga sig að flokkum. Ég held að það sé reynandi að setja nefnd í málið og kanna hvað sé hægt að gera. Þetta verður erfitt ekki síst vegna þeirra sem eru með bíla í flokkum og hafa smíðað þá sem slíka og þá þarf að breyta vegna þess að einhver kemur og hnoðast í flokkinn. Eins og ég hef sagt reyndi ég að fá menn til að koma í flokkaskoðunarnefnd í vor sem leið, en það var eins ég væri að biðja menn um að ganga í dauðann. Það þarf að koma því þannig fyrir að það sé keppnisstjórn sem kæri menn á milli flokka en ekki aðrir keppur með formlegri kæru á félaga í sama flokki. En til þess að það sé hægt þá þarf að gera þetta umhverfi aðlaðandi fyrir menn að vinna í, eins og staðan er núna hefur fólk ekki geð í sér að vinna við þetta. Það gékk vel að manna brautina í sumar en að fá menn í svona flokka og öryggisþras var ekki smuga og það segir mér hver reynsla manna er.Að eiga von á skrifum um sig sem eru hrein níð er bara ekki mönnum bjóðandi.
En hvað með það eitthvað verður að gera og móralinn verður að laga, þessi félagslegi vanþroski sem alltaf hefur loðað við KK meðlimi er eitthvað sem þarfnast líka skoðunar.

Menn geta bara ekki hnoðast í flokk með bíl í krafti reynslu - kunnáttu - frekju - og að þetta sé flottur bíll og kannast ekki við yjað væri að því bíllinn væri ekki GF.

mbk Harry Þór.

« Last Edit: October 24, 2009, 15:22:13 by Harry »
1969 Camaro 427 sYc
11.99 Drag radial 60 ft 1.650
12.24 BFG  radial 60 ft 1.795  111.93 mph
Altered dragster 598 bbc 4.77.  1/8 - 147.5 mph - 1.09 60 ft
1/4 7.65 - 163.5 mph

Offline 1965 Chevy II

  • On the bumper looking at god
  • *******
  • Posts: 8.089
  • Friðrik Daníelss.
    • View Profile
Re: Sama gamla limman!!
« Reply #3 on: October 24, 2009, 14:09:18 »
Sælir,

Mér líst bara vel á að prufa þetta Ingó.
.....and 500 pounds of torque......what ever that is.
1.30 60ft 5.78 @ 119.9mph 1/8 - 9.07 @ 148.2 mph N/A Pump gas

Offline SPRSNK

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.807
    • View Profile
Re: Sama gamla limman!!
« Reply #4 on: October 24, 2009, 15:25:09 »
Sem betur fer er ég svo blautur á bak við eyrun í þessum félagsskap að ég hef ekki kynnst þessarri hlið sjálfur þ.e. óvildinni manna á milli og regluþrasinu í ofanálag.
Ég hef mjög gaman að koma upp á braut og keyra en hef ekki verið að velta reglunum mikið fyrir mér þ.e. hvar í flokki minn bíll er - fylgi því sem mér er sagt að gera þegar upp á braut er komið. En miðað við umræðuna hér sl. vikur sýnist mér ekki vanþörf á hreinsa vel út andrúmsloftið í klúbbnum með forþjöppu og 5" pústi.

Hvaða vit er t.d. að klúbburinn hafi regluverk sem ekki er farið er eftir? Mér finnst ekki hægt að afsaka það með því að það fáist enginn til þess að framfylgja reglunum og þá er ég ekki bara að tala um sjálfboðaliða KK heldur líka keppendur.   O:)

Einfaldara regluverk er auðveldara í framkvæmd. 
"Keep it simple, stupid" finnst mér eiga vel við og til þess fallið að þannig geti félagsmenn haft enn meira gaman af sportinu en áður - og það saman.

Nóg í bili...

Offline Racer

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.464
    • View Profile
Re: Sama gamla limman!!
« Reply #5 on: October 24, 2009, 16:25:47 »
er ekki málið að halda nokkra fundi yfir vetur fyrst klúbburinn á þetta fína hús sem er eyðibýli mest allan veturinn.

gamlir og nýjir keppendur hittast nokkrum sinnum með reglunefnd t.d. um helgi og ræða hvern flokk fyrir sig yfir daginn og einhver með annaðhvort segulbandstæki eða er góður að skrifa hratt sér um að taka niður það sem er rætt.
s.s. laugardegi kannski MS og sunnudegi MC , aðra helgi Rs á laugardegi og sunnudegi GT.. nóg af helgum eftir til að gera eitthvað við annað en að klappa konunni eða ryksuga og skúra skúrinn

svo eru haldnir aftur fundir seinna til að þeir sem komust ekki fyrst eða þeir sem vilja hlusta á tillögur sem hafa komið og vilja svo fín pússa meira.

svo er hægt að fjalla um á netinu hvaða hugmyndir eru komnar og menn geta bætt við ef þeir hafa munað eftir einhverju sem þeir gleymdu eða komu ekki að á fundinum þar sem sömu gúrkur voru að grípa frammí.

reglunefnd svo klárar dæmið fyrir aðalfund
« Last Edit: October 24, 2009, 16:28:43 by Racer »
Davíð Stefánsson
KK Member 2015 #857

Offline Harry þór

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 714
  • Camaro 427
    • View Profile
    • http://www.korfubilar.is
Re: Sama gamla lumman!!
« Reply #6 on: October 25, 2009, 01:24:29 »
Hæ. Ingimundur og Davíð þetta er rétti tónninn , meira af svona tali og KK á framtíð fyrir sér.

mbk Harry Þór
1969 Camaro 427 sYc
11.99 Drag radial 60 ft 1.650
12.24 BFG  radial 60 ft 1.795  111.93 mph
Altered dragster 598 bbc 4.77.  1/8 - 147.5 mph - 1.09 60 ft
1/4 7.65 - 163.5 mph

Offline bæzi

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 562
  • I live for quarter of a mile.....
    • View Profile
    • www.mothers.is
Re: Sama gamla lumman!!
« Reply #7 on: October 26, 2009, 07:30:00 »
Hæ. Ingimundur og Davíð þetta er rétti tónninn , meira af svona tali og KK á framtíð fyrir sér.



 =D>

kv bæzi
BÆZI
Bæring Jón Skarphéðinsson 
KING OF THE STREETS 2012

Corvette c5 50th Anniversary 2003 LS2 404ci

1/4 10.8@132 1/8 6.99@103 60ft N/A (All motor on 98okt)

1/4 10.01@147.5 1/8 6.49@116 60ft  - no traction með Nítróið... :)

Offline 65tempest

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 113
    • View Profile
Re: Sama gamla lumman!!
« Reply #8 on: October 26, 2009, 16:47:10 »
Jú mikið rétt Ingólfur, skynsamlegast væri náttúrulega að henda öllum þessum reglum og byrja með hreint borð.

Menn sem þurfa endilega að jagast út í hið endalausa (með tilvitnunum eins og hér að neðan) og sjá greinilega ekki til lands vegna einhverra gamalla mála sem engir veit hver eru, þurfa aðeins og taka sér smá hvíld og standa upp frá lyklaborðinu  :-({|=

"En hvað með það eitthvað verður að gera og móralinn verður að laga, þessi félagslegi vanþroski sem alltaf hefur loðað við KK meðlimi er eitthvað sem þarfnast líka skoðunar. Menn geta bara ekki hnoðast í flokk með bíl í krafti reynslu - kunnáttu - frekju - og að þetta sé flottur bíll og kannast ekki við yjað væri að því bíllinn væri ekki GF."

kv
Rúdólf


« Last Edit: October 26, 2009, 20:48:46 by 65tempest »
Rúdólf Jóhannsson (892-7929) #34

Offline Harry þór

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 714
  • Camaro 427
    • View Profile
    • http://www.korfubilar.is
Re: Sama gamla lumman!!
« Reply #9 on: October 26, 2009, 21:10:39 »
Það eru engin gömul mál og ég  áskil mér rétt til hafa skoðun á hlutum hvort sem ykkur bræðrum líkar betur eða verr. En það get sagt þér Rudolf að þurfi einhver á þessu spjalli að taka sér hvíld þá eru það þið bræður og sérstaklega vegna þess að einhvern vegin eru þið ekki málefnalegir í skrifum ykkar.

Þið eruð svona eins og skemmd epli og við vitum hvað þau gera.

mbk Harry Þór
« Last Edit: October 26, 2009, 21:46:27 by Harry »
1969 Camaro 427 sYc
11.99 Drag radial 60 ft 1.650
12.24 BFG  radial 60 ft 1.795  111.93 mph
Altered dragster 598 bbc 4.77.  1/8 - 147.5 mph - 1.09 60 ft
1/4 7.65 - 163.5 mph

Offline Ingó

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 504
    • View Profile
Re: Sama gamla lumman!!
« Reply #10 on: October 26, 2009, 22:14:38 »
Sælir.

Þessi föstu skot eiga ekki heima hér á spjallinu og ég ítreka menn verða að hætta að vera með persónulegar ádeilur. Ef nenn þurfa að hreinsa út hjá sé þá legg ég til að menn hittist og ræði málin eitt skipti fyrir öll.

Kv Ingó
 :neutral:
Ingólfur Arnarson

Offline 65tempest

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 113
    • View Profile
Re: Sama gamla lumman!!
« Reply #11 on: October 26, 2009, 23:02:55 »
Já já flott er.. svona bull dæmir sig bara sjálft.

Kveðja,
Rúdólf
Rúdólf Jóhannsson (892-7929) #34