Þurfiði virkilega dæmi? ![Smile :)](http://spjall.kvartmila.is/Smileys/phpbb/icon_smile.gif)
Þórður Camaro
Frikki Trans Am
Ari Camaro
Hvað viljiði mörg dæmi? ![Laughing :lol:](http://spjall.kvartmila.is/Smileys/phpbb/icon_lol.gif)
Síðast þegar ég vissi þá var þetta kvartmíluspjallið og hér er fólk með kvartmílutæki sem eru ekki smíðuð til þess að
aka landshluta á milli,til þess á ég fjölskyldubíl eins og þessar Toyotur eru.
Fyrir kvartmílu áhugamenn og konur eru tækin okkar vel nothæf því við erum að keppa í kvartmílu sem gengur út á það að komast á sem skemmstum tíma frá A-B.
Fyrir mig er minn bíll vel "nothæfur",ég kemst sæmilega áfram á mílunni og get kíkt rúnt í Reykjavík þegar mig langar.
Fyrir Ara er hans bíll líka "nothæfur" hann fór til dæmis 8.70 á 160mph first time out og hefur enga þörf fyrir að fara eftir mjólkinni á honum Corvettan dugar fínt í það.
Það er álíka gáfulegt að vera með skítkast hér útí USA bíla eins og ef ég færi á L2C spjallið og drullaði yfir bíla með stóra spoilera og 3tommu hljóðkúta.
PS Flottar CELICUR og gangi þér sem best með uppgerðina.