Ég var á ferð um á Reykjarvikurvegi í Hafnarfirði á fimmtudaginn og sá þar fyrir utan eitt húsið Hondu VF 1000F Interceptor mjög líklega 1984 árgerð.
Hjólið er í original litum þ.e. Hvítt,Blátt og Rautt.
Ef einhver veit hver á þetta hjól eða ef svo vel vill til að eigandinn er að lesa þetta þá langar mig svakalega til að komast í samband við hann.
Ég á svona hjól líka og hélt alveg þangað til á fimmtudaginn að mitt hjól væri það eina á landinu. Það væri gaman að fá að skoða það nánar.
Ég meira að segja hoppaði út úr bílnum til að geta hlaupið snöggann hring í kring um hjólið og skoðað það
Kveðja
Gunnar Már