Ég er með ágætis aðstöðu já í hlöðu sem ég innréttaði sem verkstæði, væri náttúrulega alveg í lagi að vera með lyftu en jæja
En ég veit ekki með það hvenær hann kemur á götuna ég ætla bara að vera andskoti duglegur og gera þetta 100% og sjá hvað verður, ég þori ekki að segja til um það
Það tók mig 3 ár að klára þann bláa og hvíta en hann var byrjaður að vinna í honum sá sem ég keypti hann af og búinn að kaupa eitthvað aðeins af drasli í hann svo það sparaði mér tíma
En það var hins vegar ekki búið að gera neitt að viti
En ég ætla að búa til þráð hér á spjallinu þegar ég er búinn að láta blása sem inniheldur allt saman, fyrir og eftir myndir og myndir af nýju drasli og svo auðvitað af því sem ég geri hverju sinni, leyfi ykkur aðeins að fylgjast með þessari uppgerð