Kvartmílan > Leit að bílum og eigendum þeirra.
Impala 65-66.
Kristján Ingvars:
Skiptir ekki máli þegar hann er algjörlega clonaður það er það sem ég er að segja, nema að því leytinu til að söfnunargildið er eðlilega meira ef hann er "original SS". Og af hverju að setja í hann SS pakka? Nú af því einfaldlega að bíllinn er fallegri þannig og skemmtilegri á allan hátt þú getur sagt þér það sjálfur þar sem þú segist hafa átt Chevelle SS. Ég er til dæmis að gera upp bíl sem ég mun fara alla leið með í sambandi við SS pakka nema ég verð sennilega ekki með réttu vélarstærðina í honum en þó er það ekki útilokað. En svo verður hann með beina innspýtingu og 700R4 en það er af því ég kýs að hafa hann þannig. :mrgreen:
Þetta snýst þó ekki um bílinn minn, það sem ég er að segja er að þegar bíll uppfyllir allar þær kröfur (og þá meina ég allar) sem þarf að uppfylla til að teljast SS þá skiptir ekki máli hvað bíllinn var í upphafi, nema hvað hann er kannski ekki eins verðmætur.
Og ég er líka að tala um vél, bremsukerfi osfrv, ekki bara merkin, stokkinn og framstólana.
Kristján Ingvars:
--- Quote from: Shafiroff on December 29, 2008, 21:19:23 ---ég segi bara gangi ykkur vel drengir.kv AUÐUNN HERLUFSEN.
--- End quote ---
Þakka þér fyrir! :mrgreen: :smt039
Ingi Hrólfs:
Sælt veri fólkið og gleðilega rest.
Ég verð að segja að ég hef haft svolítið gaman af þessarri SS umræðu og það er ljóst að það mun alltaf vera umdeilt hvenær bíll er SS eða ekki.
Orginal SS er enginn vafi....hann var það en.....er hann það ?
Sjálfum finnst mér þetta, í raun, ekki skipta svo miklu máli nema að því leyti að ef bíll hefur verið seldur sem SS og varðveist sem slíkur, þá er það flott og er órengjanlega SS.
Dýrari út úr umboði en “venjulegur” en í grunninn sami bíll og hinn þó að vélar og drif, stokkar og stólar og einhverjir listar og fjöðrunarbúnaður geti verið mismunandi.
Ég myndi borga meira fyrir SS heldur en SS clone í dag....en þá þarf SS bíllinn væri betri en SS clone bíllinn.
Ódýrasta týpa getur þar af leiðandi verið verðmætari en SS en það hlyti þá að ráðast af ástandi og einnig hlýtur að vera búið að auka verðgildi bílsins ef hann er kominn með SS pakkann.
Nú er það víst grindarnúmerið og skráningin sem ræður, ef ég hef skilið þetta rétt í gegn um tíðina.
Ef SS boddy með öllum pakkanum og SS kramið eins og það leggur sig er sett í strípaða grind úr “venjulegum” hvað ertu kominn með ???? SS eða SS clone? :-k
Í mínum huga þá þarf að fylgja svo mikið með til þess að menn geti talað um að eitthvað sé “ hitt eða þetta” og það er stór munur á er og var svo er þetta þá ekki orðin spurning um.....maching numbers til þess að geta talað um að bíll sé orginal SS og sé það enn.....en ég sé heldur ekki að bíll sem er SS clone sé eitthvað ómerkilegri en bíll sem kom með SS pakka út úr búðinni.
Það leikur enginn vafi á því að bíllinn var einhvern tíman eitthvað......en hvað hann er orðinn???? Úff... :-k :???: :shock:
I like them all :mrgreen:
K.v.
Ingi Hrólfs.
ÓE:
Sælir er þetta ekki orðið gott af SS spjalli..held að allir séu búnir að ná þessu. Gaman væri samt að vita um afdrif G 67 sem var true SS 65 Impala :D ekkert clone þar. Einhver sem getur flett honum upp...
Kv ÓE
Kristján Ingvars:
Gott innlegg Ingi 8-)
Þetta er það sem ég er að segja.. mér finnst engu skipta hvort bíll er með pakkann frá verksmiðju eða hvort bíllinn er gerður upp með pakkanum.
Auðvitað er söfnunargildið meira ef að grindarnr og skráning passar eins og ég kom inná áður.. en að vera að spá í það er að mínu mati mesta bull sem til er. Ég keypti minn bíl t.d hérna heima og fékk hann á mjög góðu verði og hann er ekki SS bíll "original". Ég ætla að clona hann algjörlega einfaldlega af því að mér finnst það fallegra. Ef ég ætlaði að fara að eltast við að ná í bíl sem er "original SS" bara til að geta sagt að hann væri það frá verksmiðju þá væri náttúrulega ekki allt í lagi í hausnum á mér! Að fara að eltast við það, og fyrir hvað? Þetta er orðinn NÁKVÆMLEGA sami bíllinn að númerunum undanskildum og að ætla að fara að borga einhverja ákveðna upphæð aukalega eingöngu til þess að númerin passi er einfaldlega rugl og geðveiki. (og þá meina ég að flytja inn bíl með matching numbers ef ég get fengið sama bílinn hérna heima á klink sem má græja pakkann í)
Ég VEIT að ef við erum að tala um tvo bíla sem eru nákvæmlega eins og í sama ástandi, annar "original SS" en hinn "clone" þá er original bíllinn verðmætari svo ekki hjakkast meira á því strákar, að öðrum kosti skiptir það engu máli, bílarnir alveg jafnfallegir og góðir. Þetta á ekki að þurfa að vera svona flókið common..
Hjá mér mun þetta engu skipta en ég mun hins vegar aldrei halda því fram að hann sé "original SS" ég mun hiklaust segja að hann sé clone og þá mun sko hlakka heldur betur í mörgum: "nú hvah er hann ekki original SS?" hehe margir hafa andsk gaman af að tyggja svona lagað :mrgreen:
Vona að einhverjir séu farnir að ná því sem ég er búinn að vera að reyna að segja núna!
Með kveðju, Kristján :smt039
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version