Sælir félagar.
Mig langaði aðeins að leiðrétta það sem hefur komið fram hér að framan.
Þar er talað um að "allir" séu að fara að keppa í 1000feta/300metra spyrnu.
Þetta er ekki rétt.
Málið er að NHRA eru þeir einu sem hafa tekið þá ákvörðun að keyra tvo aflmestu flokkana hjá sér það er "Top Fuel dragster" og Top Fuel Funny car" á 1000 fetum.
Þetta er aðeins til bráðabyrgða fyrir tímabilið 2009 á meðan keppnishaldara í USA skoða öryggi brauta og tækja með SFI og brautareigendum.
IHRA hafa ekki fengið sponsor ennþá fyrir sína "pro" flokka, og þar eru nokkra hugmyndir uppi um keppnisfyrirkomulag á tímabilinu.
1. Að fara með alla flokka í 1000fet.
2. Að keyra "Top Fuel dragsters og funnycar" á 1000fetum og aðra á fjórðungi.
3. Að skipta keppnunum niður og keyra fjórðun, áttung og 1000 fet í sömu keppni.
4. Að hafa þetta óbreytt og keyra alla flokka á kvartmílu.
Allir "Pro" flokkar hjá IHRA hafa verið keyrðir á fjórðungi, og ekkert hefur verið fastsett fyrir tímabilið 2009.
FIA hefur ekki gefið út neinar breytingar á keyrslu sinna móta í Evrópu.
ATH
þeir flokkar ("top fuel") sem verið er að tala um að fara með í 1000fet/300metra eru með endahraða í yfir 500km á klst.
Þessar upplýsingar hef ég fengið í dag með því að skoða heimasíður og hringja nokkur símtöl.
Burtséð frá því hvort menn vilja keppa á fjórðungi, áttungi eða á einhverri annari vegalengd hér heima, þá verður að byrja á rót vandans og það er brautin sjálf ásamt hennar umhverfi.
Brautin sem slík er gott mannvirki sem er orðin gömul og þarf á endurnýjun að halda.
Þetta er spurning um öryggi keppenda og áhorfenda já og starfsfólks við keppni.
Hér er hlekkur á braut í Alberta í Canada skemmtileg braut sem er ekki nema um 170metrum lengri en okkar en tekur samt "top fuel".
http://www.castrolraceway.com/Hvað varðar sandspyrnubraut, þá finnst mér að þeir sem að hafa áhuga á slíku ættu að hafa samband við Svavar Svavarsson fyrrum formann KK.
Hann stóð fyrir athugun á þessu verkefni á sínum formannsárum, og niðursstaðan þá var sú að þetta væri íllframkvæmanlegt og mjög kostnaðarsamt.
Annars væri best að tala við Svavar sjálfann um þetta.