Var það regla að rústa öllum flottum Bílum sem komu til landsins í denn?
manni dettur það nú í hug stundum, en þú verður að athuga að gullár margra þessara bíla voru fyrir 30-40 árum, og þetta eru tæki sem slitna og veðrast, og voru á rúntinum fullir af fólki og brennivíni í mörg ár margir hverjir og búnir að lenda í tjónum og mismunandi eigendum, og voru oftast orðnir haugryðgaðir og úr sér gengnir uppúr og jafnvel fyrir 1980, þannig að margir þeirra voru búnir að lifa heila æfi og jafnvel miklu meira þegar þeir voru svo urðaðir/hent,
þessir bílar voru nefnilega notaðir, og það oft ansi harkalega í spyrnum og hringspólum og öðru þvíumlíku
einnig spilar inní að þetta voru ekki orðnir jafn merkilegir bílar á þessum tíma og þeir þykja í dag. og margir jafnvel sem þóttu ekki merkilegir á sínum tíma sem þykja mikil gull í dag, við erum að tjóna og eyðileggja nýlega bíla í dag sem fólk á svo eftir að væla yfir í framtíðini,
ég er nú ekki gamall, og var ekki uppi á þeim tíma sem þessir bílar voru sem mest í gangi, en er samt nógu gamall til að muna þá tíð sem að menn hikuðu ekki við að rífa og pressa bíla sem engum dytti í hug að gera það við núna. t.d fox mustanga, 3rd gen transa og camaroa, og jafnvel 2nd gen bíla líka.
en svona er þetta bara, maður gleymir líka oft þegar maður skoðar 30ára gamlar myndir af gaurum henda t.d charger eða einhverju gulli, að þetta voru oft engu síður einfaldlega ónýtir bílar. og/eða ekki talið það borga sig að gera við þá. einnig var líka varahlutaframboð og annað ekki á pari við það sem er í dag. og svo er líka annað að margir bílar hafa verið rifnir í varahluti eða annað á tímum sem það þótti bara ekki jafn mikil synd og í dag.