Sælir félagar.
Sæll Valdemar.
Ójú þetta er minn gamli sem er núna á leiðinni til Stokke í Noregi.
Ég get nú ekki sagt að það hafi verið neitt sérstaklega gaman að selja hann eftir 28. ár, en mér fannst einhvern veginn að það væri skemmtilegra að einhver gerði eitthvað úr honum frekar en hann yrði næstu 28. árin hjá mér í svipuðu standi.
Ég veit alla vega að sá sem að keypti bílinn ætlar að gera gott úr honum.
En svona er það, svo bregðast krosstré..........................
Já og Hilmar eins skrítið og kanski fólki kann að fynnast það þá vildu norðmennirnir bara "fastback" bíla en ekki "hardtop".
Og það var einn Camaro sem var nærri farinn en það stoppaði á því að það var ekki Original vél í honum, þá er víst ekki hægt að flytja þá til Noregs.
Kv.
Hálfdán.