Er ekki stefnan að halda tvær sandspyrnur, má ekki sú fyrri vera áður en síðustu mílu er lokið. Strákurinn er búinn að drösla 12 ára gamali smíð ínn í hús og er farinn að hugsa um að græja kvikindið í sandinn, burt með millikassan, c4 eða FMX aftan á Windsorinn og spóla með strákunum í sandkassanum.
Við erum með bestað heimsmeistaragengi í heimi á bónstöðinni, ég var við það að verða heimsmeistari fyrir 12 árum, Ari (heimsmeistARI) er bæði heimsmeistari í heimreiðar torfæru og kvartmílu í miðbæjarbílskúr svo ekki sé talað um Kidda sem er sérlegur aðstoðar heimsmeistari og það sér í lagi í heimreiðartorfærunni. Lengra hefur bónaragengið víst ekki komist að sinni en innan 10 ára er ykkur óhætt að fara að óttast okkur, við erum lang bestir, þið eigið bara eftir að komast að því eins og við. Kv. Stjörnubón.......þar sem James Hetfield vildi helst láta bóna sig.