Sælir
Ég var settur sem svokallaður ,, Pittstjóri´´ á laugardeginum umtalaða.
Eftirfarandi uppröðun fékk ég á blaði frá keppnistjóra.
Kristján (Stakur v/besta tíma í tímatökum)
vs.
xxxxxx
Þórður
vs.
Leifur
Grétar
vs.
Stefán
Pælingarnar sem ég sé út úr þessu.
1. Þegar keppnisstjórn tekur ákvörðun um að veita keppanda (bye) s.s. að hann fari sjálfkrafa áfram í næstu umferð, þá skal sú ákvörðun standa eftir að keppni er hafin. (Bye) var ekki veitt.
2. Þegar keppnistjórn tekur ákvörðun um að keppandi skuli fara stakur, þá skal hann fara eina staðfestingarferð til að komast í næstu umferð. Þessi aðferð virðist tíðkast annarstaðar úti í heimi. FIA, NHRA, að því sem ég best veit.
Ég fer og tala við alla keppendur í OF, reyndar var eithvað rugl með Stefán, eins og áður hefur komið fram, en þvi var kippt í liðinn áður en keppni hófst. Ég tjái Kristjáni að hann fari stakur eftir ferðina hjá Grétari og Stefáni. Kristján nær ekki að fara ferðina stakur.
Keppni frestað til morguns, og ákveðið að halda áfram frá þeim punkti að keppni var lokið.
Þar sem að keppni er hafin, tel ég að það hafi verið óréttmætt gagnvart öðrum keppendum að breyta uppröðun keppnistækja eftir það. Kristján hefði átt rétt að fara stakur í sína staðfestingarferð til þess að komast í næstu umferð á sunnudeginum.
Keppni er hafin og því allar breytingar á uppröðun óréttmætar.
En þetta er bara mín skoðun á málinu.
Og ég vona bara að þú hættir ekki Kristján og mætir galvaskur á næstu keppni, því að fólkið borgar til þess að sjá OF græjurnar.