Sælir félagar.
Þessi bíll er að því að ég best veit kominn á Samgönguminjasafnið að Ystafelli.
Ég ætlaði að fá hann lánaðann í myndatöku fyrir plaköt sem á að nota í umferðarátak og var búinn að fá loforð um bílinn, en vegna einhvers innanhúss misskilnings hjá Brimborg þá var búið að senda bílinn norður þegar til átti að taka.
Þetta reddaðist samt allt saman og útkoman var flott.
Bíllinn var að ég held Formula Ford með 1.3L ford mótor.