Kvartmílan > Aðstoð
3gen transam spurningar.
-Eysi-:
okey :wink: keyptir þú þennan trans am með úrbræddri 305 ?
Racer:
keypti hann já með 305 mótor sem var búinn að kveðja þennan heim eða þannig.. 5 og 7 stimpils bulla var með stórt gat í sér og eitt hedd var brotið milli tveggja hólfa á því og ef ég man rétt þá var milliheddið með sprungu svo það hafa verið átök sem hann stóð í , eina ástæðan að ég keypti bílinn var útaf því að skiptinginn var meira virði en bílinn :D , fékk bílinn á djók verði.
gæti selt hann núna á tíföldu verði núna ef einhver myndi vilja hann.. segji tíföldu verði útaf því hvað sumir verðleggja þessa 3gen nú í dag þó nokkrir búa í raunverulegum heimi og þeirra bíla seljast.
og nei þetta er ekki Guli sem fékk vél úr torfærubíl og tjónaðist að framan.. minnir að sá var meira segja með t-topp?
Að vísu keypti ég eina 350 vél úr torfærubíl sem var með ónýta blokk en svona er lífið , hann náði allanvega að keyra frá skúrnum sem ég hafði hann í á vatnsleysustönd inná Voga á þeirri vél þó hita mælirinn fór í botn og lyktinn var ekki skemmtileg.
Framrúðan fauk úr við akstur austur fyrir fjall og fannst aldrei hehe.
Ég kvarta ekki.. þetta eru sögur sem fylgja bílnum.
-Eysi-:
já einmitt ég skoðaði hann einmitt líka fyrir hvaa, 1 og hálfu ári síðan eða lengra síðan man það ekki alveg, þá var hann til sölu á mjög litlum prís :lol: Man bara ekki alveg hvað það er langt síðan.
Chevy_Rat:
já :) og úlitið ofaní húddinu hjá þér þarna er orðið mykið bjartara en það var áður,já og benzínlagnirnar eru á réttum stað miðað við árgerð'84 og orginal vélarstærð-305 sbc,en þeir koma ekki með beinu innspítíngarnar í þá fyrr en '85 fyrir þann tíma var bara blöndungur í þeim,en t.d í '82-'84 Firebirdinum sem var með 2.8L-V6 og blöndung þá voru benzínlagnirnar staðsettar vinstrameiginn í húddinu en það breitti svo sem eingu þegar maður setti ofaní í þá V8-sbc,þá smíðaði maður sér bara góða bogna lykkju úr stáltein undir og aftan við balancerinn á vélinni og sauð á hana augu fyrir bolta og boltaði hana sitthvoru meiginn fasta neðst í blockina nyður við olíupönnu og hafði svo bara slöngur yfir í bensíndæluna og benslaði þær við stál-lykkjuna svo þær væru hvergi utaní og færu strax í gat!!!,þetta er orðið ágætt í bili :wink: .kv-TRW
Racer:
svona stóð hann áður en ég tók hann í burtu í byrjun feb 2006 , keypti hann 29 janúar 2006 klukkan 15:00 ef ég man rétt:
Fyndið var að bílakerran sem ég fékk undir hann vildi ekki koma honum upp að aftan sökum að afturfelgurnar voru of stórar svo góð voru ráð og ég var settur undir stýri á transam og spoti í lancerinn minn og svo var ekið að kvöldi til með ljóslausan transam með móðu í úr hlíðahverfinu og til voga og svo fór að rigna þegar í kóp var komið og ég héld að ég hef aldrei keyrt eins vel þó ég vissi ekkert hvert var farið og fylgdi eftir rauða ljósinu á lancer og svaka var ég kominn með stóra vöðva í vogum.
var víst búinn að standa þarna síðan í nóv og eigandinn búsettur í bænum en skráður í eyjum hafði ekki snert hann síðan í nóv.
bílinn er handmálaður gulur og það var nú ekkert gert falleg enda rúður og gúmmílistar gult einnig.
ef ég hefði ekki keypt hann þá hefði Högni vinur minn notað hann í varahluti í sinn recaro transam eða Gaulzi strippa hann í sinn rauða.
ég man enn að ég hringdi í Högna og bauð honum að kaupa hann ásamt mér en Högni var ekki til í það og ég vissi að Árna vini mínum langaði alltaf í 3gen svo ég fékk Árna vin minn til að kaupa hann með mér (ég var nú atvinnulaus og fátækur maður í þá dagana) og hann hefur nú verið þögull eigandi síðan og ég hef ekki nennt að kaupa hann út þar sem hann er góður vinur og ég kaupi allt meðan hann leggur það á sig að tala um þegar hann verður til að þá verður rúntað þar sem Árni kann nú ekki mikið að gera við þá er þetta fínt samkomulag þar sem hann kemur með drykkina og matinn og tónlistina í staðinn :)
Fyrir forvitna þá er númerið á bílnum Ti-818 og já það er flott númer , orginal svartur og mun verða það aftur.. þar að segja þegar bílinn fer í gang á ný og Högni vinur minn nennir að sprauta hann eins og hann lofaði eða var það kannski ég sem neyddi hann til að samþykkja og vil ekki heyra annað svar ;) , hann mun samþykkja þegar ég reddar aðstöðu og tækjum og lit og vinn lakkið í burtu.
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version