Bílaklúbburinn Krúser heldur áfram að sýna nýinnflutta, eða bíla sem ekki hafa sést lengi á fimmtudagskvöldum sem fyrr að Bíldshöfða 18.
Næstkomandi fimmtudagskvöld eða þann 28. Júní kl: 20:00 mun Krúser sýna, nýskveraðan og glæsilegan
1979 Pontiac Trans Am með 1977 framenda[/u] beint úr smiðju undirritaðs!
Bílinn er nýbúið að taka í gegn og er hann að sögn þeirra sem séð hafa, gríðarfallegur, skora þess vegna á alla að mæta sem sjá sér það fært!

Um 21:30 verður síðan tekinn rúntur í bæinn, en það verður auglýst á staðnum, og fer að sjálfsögðu eftir veðri.
Spáð er mjög góðu veðri og er þetta því tilvalið tækifæri að sýna sig og sjá aðra! Sífellt er aukning á meðlimum í Krúser og telja þeir á sjötta hundraðið nú þegar!

Glimrandi tónlist í anda sjöunda og áttunda áratugarins, og fyrir slikk er hægt að fá ískalt CocaCola og súkkulaði með til að seðja hungrið.
Sannir bílaáhugamenn láta sig ekki vanta á þetta! Hvar verður þú??
Með kveðju,
Krúser-hópurinn
komnir til að vera.
Bíldshöfða 18.