Kvartmílan > Almennt Spjall
Ótrúleg framkoma LÍA
firebird400:
Já maður spyr sig rétt eins og Harry, hvað varð til þess að LÍA náði svona hreðjartaki á starfsemi KK :?:
Og annað
Rétt eins og nefnt var þá virðist sem einhverjir hafi snúið þessu á bakið svo að ekki þurfi að ræða það sem þetta snýst um:
Umræðan er og var alltaf, það er til svæði til þess að spyrna svo ekki þurfi að spyrna á götum bæja og borgar,
LÍA virðir ekki starf klúbbsins,
og það að snúa þessu upp í leyfismál og reglugerðarþras hefur fært þessa umræðu frá efnislegum uppruna sínum, enda var það það eini leikur LÍA í stöðunni, og verð ég að segja að hann hafi virkað svona líka svakalega vel :?
Hvaða máli skiptir það hvort að einhver mál hjá KK hafi verið svona eða hinseginn, já eða hvar slysin hafa gerst, það kemur þessu bara ekkert við.
Þetta byrjaði með rangfærslum í fjölmiðlum og þegar gerendurnir þar sá að það var verið að útbúa mótleik á þá þá gerðu þeir það sem í þeirra valdi stóð til að stöðva hann, ég held að það hafi engu máli skipt hvað var að í stöðunni eða hvað, þeir hefði bara fundið einhvað annað til að gera það sem þeir gerðu.
Og þá spyr maður sig aftur:
Afhverju þarf KK að lúta stjórn LÍA :?:
Hvert verður framhaldið, á að ræða það sem skiptir máli hérna eða á bara að halda áfram að benda og pota :?:
Kv. Agnar Áskelsson
Meðlimur KK # 873
4x4.is:
Ég er alveg sammála Agnari:
Hvaða máli skiptir það... ...hvar slysin hafa gerst, það kemur þessu bara ekkert við.
Mér finnst mikið nær að spá í framtíðina en velta sér uppúr fortíðinni.
En svona bull:
Hvað *edit* áhorfandinn ætti að vera að þvælast þar sem bíll er kominn á 120 km hraða.
Ég er ekki að ná þessu hjá Halldóri, ég hef séð video frá endalínunni og finnst miklu flottara að sjá ökutækin þaðan (einhver hélt á vélinni). Ég var úti á braut þegar Valur velti og fannst frábært að sjá hann labba frá því en er feginn að enginn stóð þá þar með videocameru. Ég hef líka keppt nokkrum sinnum á þessari braut og var líka á fyrstu mílunni þegar brautin var opnuð (var ennþá á reiðhjólinu þá) svo að heimskulegar yfirlýsingar um að ég hafi aldrei komið á þessa braut eru bara heimskulegar og ekkert annað. Ég ætlaði ekki að standa í bulli eða bullurum hér en gat greinilega ekki sleppt því að svara í þetta skipti.
Slys er slys og ég skil ekki hvað er svona slæmt að vera tryggður ef slys verður.
Kveðja,
Ragnar Róbertsson
s: 6624444
4x4@4x4.is
www.4x4.is
Mamus:
Góðan dag
Eftir að hafa verið að fylgjast með þessari umræðu í dag og í gær þá bara get ég ekki orða bundist.Það fyrsta sem mér datt í hug eftir að hafa lesið yfir þetta er tilvitnun úr íslensku dægurlagi: "Börn og aðrir minna þroskaðir menn".
Byrjum á byrjunninni Óli startar þessari vitleisu með því að fara í viðtal í Kastljósinu til að ræða um hraðakstur á götum borgarinnar, í þessu viðtali kaus hann að gleyma því að til væri braut á íslandi sem er sér til þess gerð að keyra hratt á, það eitt er til háborinnar skammar að forseti Landsambands Íslenskra Akstursíþrótta skuli sniðganga heilan klúbb vegna persónulegs ágreinings.
Til svars við þessari framkomu Óla höfðu KK menn samband við Kastljósið, væntanlega til að vegkja athygli á sér (sem er að sjálfsögðu af hinu góða). Og var þá ákveðið að auglýsa eftir fólki til að hittast á brautinni og gera sjónvarpsþátt. Gott og vel. En....... Það virðist sem að forsvaramenn KK hafi gleymt því að um brautina gilda ákveðnar reglur sem ber að framfylgja. Það er ekki hægt að sleppa sumum reglum þó svo að það mæti ein sjónvarpstöð með tæki og tól á staðinn.
Þið rökræðið um að þetta var hvorki keppni né æfing heldur að þið væruð komnir í sjónvarpsbransan og væruð að búa til sjónvarpsþátt. Samt gátuð þið ekki virt tilmæli lögreglu um að virða hámarkshraða á þessari ótryggðu braut sem er 70km hraði. Ég veit að vísu ekki merkilega mikið um þennan sjónvarpsbransa en ég tel það nokkuð ljóst að bílar þurfa ekki að fara upp fyrir 70km hraða til að myndast vel, það voru engin ákvæði um hvað þið máttuð vera snöggir upp í 70, bara ekki fara yfir 70km hraða.
Grétar F. sagði:
--- Quote ---hefur haldið keppnir á lokuðu vernduðu svæði óslitið öll árin 30 undir leiðsögn og öryggiseftirliti reyndra manna.
--- End quote ---
Ættu þessir reyndu menn ekki að vera búnir að læra allar reglur og skilmála eftir 30 ár í bransanum.
Boss sagði:
--- Quote ---Maðurinn er FÁVITI
--- End quote ---
Mjög málefnalegt.
Svo kom Nóni með mynd af óla þar sem hann er kominn með horn. átt þú ekki að vera í forsvari fyrir þessa síðu. eftir svona barnaskap frá manni sem á að tala fyrir hönd klúbbsinns þá bara get ég ekki tekið þig alvarlega. það var verið að ræða málin ekki leggja í einelti.
Svo spyr sara hvort óli sé ekki sökudólurinn fyrir öllum skítnum sem hefir verið kastað í íslensku mótorsporti. Það kemur málinu ekkert við. málið snýst um lög og reglur ekki pólitík úr fortíðinni.
HK R. Spyr: hvað ef það hefði orðið slys, ég kýs að umorða spurninguna Hað ef það hefði orðið banaslys á þessari ólöglegu æfingu sem var ekki æfing en engu að síður ólöglegt. Hvað myndi það gera fyrir íslenskt mótorsport ef einhver hefði látist við gerð sjónvarpsþáttar í skjóli myrkurs.
Og Maggi Finn Þú ákveður allt í einu að þú viljir læra reglur Lía, af hverju stofnaru þá ekki nýan þráð svona þér til fróðleiks vegna þess að reglur og fortíð Lía hafa ekkert með það að segja að þið brutuð reglur.
Svo segiru:
--- Quote --- Lokað svæði=eigin ábyrgð. Þannig finnst mér það eiga að vera
--- End quote ---
Maggi Maggi Maggi ég taldi mig nú þekkja þig svona lala en ég verða að segja í allvöru talað ég hélt að þú hefðir meira í toppstykkinu en þetta. ok þú villt að menn geti bara hist á einhverju afgirtu svæði keyrt eins og vitlesingar engar reglur og engin lög. hvað helduru að það endist lengi áðir en þú segir ok strákar höfum hérna eina reglu ekki keyra á hvorn annan, og svo kemur önnur regla á endanum verður þú þá orðinn yfirvaldið með reglurnar sem öllum er illa við. Og svo annað, hvar eigum við að stoppa? Byggjum búgarð þar sem við meigum drepa fólk okkur til skemmtunar engar reglur engin lög eigin ábirgð bara sama hvað þið gerið ekki drepast fyrir utan girðinguna í allvöru talað þú hlýtur að sjá hvað þetta er kjánalegt.
Einar Möller segir:
--- Quote --- En ég hef ekki áhyggjur, við munum standa uppi sem "sigurvegarar" vegna þess að við gerum þetta fyrir sportið, LÍA gerir þetta fyrir peninga og "völd".
--- End quote ---
Hafið þið eithvað fyrir ykkur í því að það séu svona miklir peningar í þessu? Bara forvitni ekki kaldhæðni. Og hver eru völdin í því að vera Forseti í félagi sem enginn virðist taka mark á?
Svo kom að sjálfsögðu cr vtek með svarið:
--- Quote ---lia eru lika bara favitar
--- End quote ---
Uss þetta Coment fékk mig næstumþví til að skipta um skoðun á þessu öllu saman og hætta að skrifa þennan pistil.
Svo kemur maggi aftur með hugsunina: hversvegna eru lög og regla? Vegna þess Maggi minn að við erum ekki barbara við lifum í nútímanum og við "maðurinn" erum margoft búin að sanna að við þurfum reglur til að þrífast í svona þjóðfélagi.
429Cobra fyrst þú varst svona klár að finna upplisingar um HK R þá held ég nú að þú hefðir allveg getað haldið áfram ransóknarblaðamennskunni og komist að því hver HK Racing raunverulega er, sem að ég besst veit hefur alldrei verið leyndarmál.
Dr.Aggi ssegir svo:
--- Quote ---En þess má geta að heimild var fyrir þessari uppákomu frá aðstoðar lögreglustjóra Lögreglunar í Hafnarfirði Ólafi Emilsyni
--- End quote ---
fyrst þetta er satt er þá ólafur Emilsson ekki sökudólgurinn af þessu öllu það var jú hann sem gaf ykkur leifi til að halda ótryggða ekkikeppni, og dró það svo til baka. hvað eru menn að æsasig við lía þú segir það sjálfur þarna að lögreglan er sökudólgurinn, á þessi þráður ekki að heita "helvítis löggan".
Svo heldur þú áfram:
--- Quote --- Við höfum engin alvarleg slys á okkar samvisku í þjrátíu ár
--- End quote ---
Nr: 1 þarf virkilega alvarlegt slys svo menn fari eftir settum reglum er ekki bara hægt að vera forsjáll.
nr.2 ég veit ekki betur en að það hafi farið vitlesingur á brautina fyrir einhverjum x tíma á kryppu sem hafði ekki farið í skoðun í tvo áratugi og til að toppa allt þá var ökumanninum ekki meira annt um KK að hann fór ferðina hjálmlaus til að bróta örugglega allar reglur. en það mátti ekki tala illa um þetta mál.
Svo kemur 492 cobra aftur, maðurinn sem ætlaði nú ekkert að pikka um þetta mál.
--- Quote ---Og þá værir þú kannski betur í stakk búinn sem fullgildur meðlimur og snattari fyrir LÍA að fræða mig
--- End quote ---
Er það ekki ofsögum sagt að maður sem er að benda ykkur á það að það voruð þið sem gerðuð mistök eða Löggan eins og sumir vilja halda fram sé snattari Lía. Af hverju getið þið sem fullorðnur menn sætt ykkur við það að þið voruð ekki að fara eftir settum reglum.
Fyrst að ég byrjaði þennan pistil á dægurlagi er þá ekki rétt að ég endi hann eins með frægum slagara frá Sólstrandargæunum:
"Eigum við ekki bara að vera vinir?"
E.S. ég skirfa undir nafnleind vegna þess að ég vill ekki fá þessa snargeðveiku unglinga sem ég sá í sjónvarpinu vera að mynda múgæsing í kringum Einn Lia kall á eftir mér.
429Cobra:
Sælir félagar. :)
Já og hinir sem eru ekki félagar líka.
Jæja Hilmar ég held að þú sért með Volvo-inn á heilanum, þó svo að allur öryggisbúnaður í bílnum hafi haldið og verið eftir öllum ströngustu kröfum.
Ökumaðurinn var eins og allir vita ekki með hjálm, og kemur það ekki keppnistækinu sjálfu við heldur ökumanni, astoðarmönnum hans, brautarstarfsmönnum og síðasta örggisventlinum sem er ræsir.
Ökumaður krippunar slasaðist EKKI alvarlega og er vel hress og uppistandandi í dag, og ekki orð um það meir.
Varðandi það sem ég sagði um leiðabók í rally, þá setti ég það fram sem spurningu EKKI sem fullyrðingu.
Ef þú veist ekki þá lítur spunigarmekið svona út: ? .
Ég sagðist ekki ætla að fjalla um slysið á Sauðárkróki meira hér og það verður ekki gert af minni hálfu.
Ég vann fyrir LÍA í fjölda ára og voru þau flest mjög góð, og þar safnaði ég ómetanlegri reynslu í sarpinn, sem ég hef búið að síðan.
Það eru hinns vegar 10ár eða meira síðan ég hætti aðstarfa fyrir LÍA og einbeitti mér að KK, já og ég VAR öryggisfulltrúi ásamt Hlöðver Gunnarssyni þegar Krippan fór útaf, en er kominn í tímabundið frí frá þessu af persónulegum ástæðum.
Hvorugur okkar var á brautinn vegna skoðunnar á Hemi Hunter Dragster Þórðar Tómassonar sem hafði verið ákveðin á þessum tíma mörgum dögum áður.
Enda voru mínar heimildir þær að ekkert óskráð ökutæki væri á þessari æfingu.
Ég kom því á staðinn eftir að slysið hafði átt sér stað, þar sem öryggisskoðun á keppnisbíl sem beðið er um SFI skoðun á tekur að minnsta kosti þrjár klukkustundir og oft lengri tíma.
Þar sem vissum reglum þarf að framfylgja við slíka skoðun, og þar á meðal nota ómtæki (ultra sonic) til að mæla þykkt röra og fara yfir byggingu grindar keppnistækis eftir teikningum sem fengnar eru frá SFI Foundation. (sjá: www.sfifoundation.com ).
Hvað varðar póst sem ég las hérna frá Ragnari Róbertssyni, þá vil ég byrja á því að þakka Ragnari gott og málefnalegt innlegg.
Mig langar hinns vegar að benda á það að hér í eina tíð þá fylgdust skoðunarmenn LÍA með viðgerðum á bílum sem höfðu bilað í keppnum.
Í einni torfærukeppni við Bolaöldur, þá valt bifreið Árna Kópssonar og bognaði stífa í veltibúri.
Haraldur Ásgeirsson sem var yfirskoðunarmaður LÍA í þeirri keppni, úrskurðaði að skipta þyrfti um þessa stífu áður en bíllinn fengi að keppa áfram og var það gert og viðgerð tekin út af skoðunarmönnum og samþykkt.
Vona að þetta varpi ljósi á eitthvað. :idea:
firebird400:
Heyrðu nú mig
Reglur eru reglur og ef þær eiga ekki við um þegar brautin er opin fyrir þáttargerð þá eiga þær ekki við, skilið.
Og það að óþroskaður unglingur tali sig breiðann fyrir framan myndavélina hefur ekkert með klúbbinn að gera, klúbburinn er ekki ábyrgur fyrir orðum þeirra sem upp á braut koma :!:
Og það að þú byrtir þetta innlegg þitt undir nafnleynd ómerkir það alveg, við ættum öll að hnusna það vegna heigulsskap þíns og það vegna orða einhvers gutta
--- Quote ---E.S. ég skirfa undir nafnleind vegna þess að ég vill ekki fá þessa snargeðveiku unglinga sem ég sá í sjónvarpinu vera að mynda múgæsing
--- End quote ---
Og hvað gefur þér leyfi til að kalla einhvern "snargeðveikann" þú hlýtur að skilja það að menn voru ósáttir að eftir að hafa loksins komist upp á braut að einhver komi bara og stöðvi allt saman á einhverjum óstyðjandi rökum
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
[*] Previous page
Go to full version