Author Topic: Bugatti Veyron  (Read 2278 times)

Offline frikkiT

  • In the pit
  • **
  • Posts: 73
    • View Profile
Bugatti Veyron
« on: October 30, 2005, 20:16:47 »
Bugatti hefur eftir margra ára bið hafið framleiðslu á tækniafrekinu Bugatti Veyron. Margir hafa beðið eftir tryllitækinu alltof lengi og voru flestir farnir að halda að þetta voru bara draumar og concept bílar hjá Bugatti sem aldrei mundu vera framleiddir. En nú er gripurinn klár fyrir framleiðslu og verða fyrstu bílarnir brátt komnir í hendur heppinna einstaklinga.
Vélin í bílnum er líklega mesta afrekið: Svokölluð W16 vél sem stendur saman af tveim VR8 vélum sem á einhvern undraverðan hátt tengdar eru saman í eina massíva orkustöð. Til að aðstoða þetta skrímsli við að skila 1001 hestafli í 6000 rpm eru fjórir turbochargers í viðbragðstöðu. Risablokkin ætti að toga bílinn þunga þokkalega vel áfram enda með maximum tourqe 1250 Nm á milli 2,500 og 5,500 rpm. Þetta allt kemur bílnum frá kyrrstöðu í 100 km/h á u.þ.b 2.5 sek. og áfram í hámarkshraðann sem er áætlaður 400 km/h... ekki slæmt!
Bíllinn er alls ekki neitt ljótur en vélin, verður að segjast, finnst mér vera miklu meira spennandi en skelin.
Um 300 verða framleiddir og allir handsmíðaðir.

Offline Þráinn

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 112
    • View Profile
Bugatti Veyron
« Reply #1 on: November 01, 2005, 07:07:15 »
4 x turbo  :shock:  það kom mér mikið á óvart, en mér þykir líka mjög
 merkilegt hjá þeim að staðsetja viftureimina og altanetorinn og allt það
 "öfugu megin" á mótorinn
Þráinn Ársælsson #862
IH Scout '80
MMC Colt '90 (seldur)
MMC lancer '90 4x4
Yamaha YZ 250
Porsche 924 '81
Lada 2105 '87 (dáin)lenti undir skurðgröfu.... ég var á gröfunni :P
Hræhatsú Karade '90 (rip)
Buggy '78 og 83 (held ég)

Offline geysir

  • In the pit
  • **
  • Posts: 65
    • View Profile
Bugatti Veyron
« Reply #2 on: November 01, 2005, 11:00:39 »
Gullfallegir bílar.

Og vélin er meistaraverk.


En bíllinn er VIRKILEGA fallegur að innan.

Afsakið stærðina.
Atli Þór Svavarsson.

Offline stefan325i

  • In the pit
  • **
  • Posts: 59
    • View Profile
    • http://www.gstuning.net
Bugatti Veyron
« Reply #3 on: November 02, 2005, 01:25:43 »
Quote from: "Þráinn"
4 x turbo  :shock:  það kom mér mikið á óvart, en mér þykir líka mjög
 merkilegt hjá þeim að staðsetja viftureimina og altanetorinn og allt það
 "öfugu megin" á mótorinn



ætli það sé ekki svo það þurfi ekki að taka vélina úr bílnum til að komast að þessu.
BMW 318is 2.5 Turbo
12.046 @ 116.5 mph
Stefán
Gstuning
Iceland