Topp tíu hlutir til að gera núna
Á meðan kellingarnar eru niðri í bæ með hávaða gefst karlmönnum landsins einstakt tækifæri til að gera allt það sem þeir annars ekki komast upp með. Hér er topp tíu listi yfir slíka hluti, við byrjum á númer tíu:
10. Drekka bjór.
9. Láta hækka jeppann upp, 38" er passlegt. (Í sumum tilvikum getur reynst nauðsynlegt að kaupa jeppa fyrst.)
8. Fara ekki út með ruslið.
7. Gefa börnunum nammi.
6. Dánlóda klámi.
5. Opna klósettið og sleppa því að loka því aftur. Og leyfa hundinum að drekka úr því.
4. Kaupa mótókrosshjól...
3. ...og heimabíó
2. Hlusta á þögnina.
1. Panta áskrift að Sýn og Enska Boltanum - með 10 ára binditíma.