Author Topic: Sandspyrna 20.ágúst  (Read 4123 times)

Offline Bílaklúbbur Akureyrar

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 125
    • View Profile
    • Bílaklúbbur Akureyrar
Sandspyrna 20.ágúst
« on: August 10, 2005, 19:19:52 »
Sælt veri fólkið.

 Bílaklúbbur Akureyrar heldur tvær fyrstu umferðirnar í Íslandsmeistaramótinu í sandpyrnu þann 20.ágúst n.k.
Skáning fer að opna á heimasíðu klúbbsins http://ba.is/

Keppt er til Íslandsmeistara í eftirtöldum flokkum:

1.Krosshjól
2.Ofurhjólaflokkur
3.Vélsleðar
4.Fólksbílar
5.Útbúnir fólksbílar
6.Jeppar
7.Útbúnir Jeppar
8.Opinn flokkur

Krosshjólaflokkur:
1.Krosshjól, endurohjól, þríhjól og fjórhjól, eins og tveggja strokka.
2.Hámark 750cc.
3.Skylt er að loka framgjörð. Mælt er með áli tryggilega festu með plastströppum.
4.Dekkjabúnaður verður að vera úr gúmmíi, málmspyrnur bannaðar.
5.Skylt er að vera í kross-stígvélum og með kross-brynju auk hefðbundins öryggisbúnaðar.

Ofurhjólaflokkur:
1.Götuhjól og sérsmíðuð hjól. Tvíhjól, þríhjól og fjórhjól.
2.Allar breytingar leyfðar.
3.Skylt er að loka framgjörð. Mælt er með áli.
4.Dekkjabúnaður verður að vera úr gúmmíi, málmspyrnur bannaðar.
5.Bremsubúnaður skal virka eðlilega ( fram og afturbremsur ).
6.Lágmarksfjöðrun að framan 50 mm.
7.Neyðarádrepari sem tengdur er við ökumann með línu skylda.
8.Leðurgalli, (smekkbuxur og jakki, samrennt eða heilgalli ) kross-stígvél með stáltá og kross-brynja, auk hefðbundins öryggisbúnaðar skylda.
9.Hámarks þyngd 400 kg tilbúið í keppni án eldsneytis og ökumanns.

Vélsleðaflokkur:
1.Skylt er að loka gati fremst á skíði, sé það til staðar
2.Nítró leyft.

Fólksbílaflokkur:
1.Ökutæki skráð sem fólksbílar
2.Aðeins ein drifhásing. Fjórhjóladrifin ökutæki fara í jeppaflokk.
3.Hæðarmunur fremst og aftast á síls má ekki vera meiri en 10cm.
4.Hámarks hæð hjólbarða skal mælast 29"
5.Í ökutækjum sem eru þaklaus, með blæju eða plast húsi skal vera 6.veltibogi.
7.Ökutæki sem fari hraðar en 5,49 sek. skulu hafa veltiboga og ökutæki sem fari hraðar en 4,99 skulu hafa veltibúr.
8.Öll ökutæki sem fari undir 5,99 sek. hafi 5 punkta öryggisbelti.
9.Fjarlæga má innréttingu úr ökutækjum sem eru með veltibúr.
10.Óheimilt er að fjarlægja hluti af eða úr ökutækjum í keppni.
11.Hjólbarðar skulu vera DOT merktir, viðurkenndir af löggildri skoðunarstöð, óskornir og standi ekki út fyrir óbreytta brettabrún.

Útbúinn fólksbílaflokkur:
1.Lágmarksþyngd ökutækis er 1300 kg.
2.Upphaflegur hvalbakur eða eins útlítandi á upphaflegum stað, úr sömu efnum af sömu efnisþykkt er skylda.
3.Ótakmarkaðar breytingar leyfðar á vél.
4.Óheimilt er að fjarlægja hluti af eða úr ökutækjum í keppni.
5.Í ökutækjum sem eru þaklaus, með blæju eða plast húsi skal vera veltibogi.
6.Ökutæki sem fari hraðar en 5,49 sek. skulu hafa veltiboga og ökutæki sem fari hraðar en 4,99 skulu hafa veltibúr.
7.Öll ökutæki sem fari undir 5,99 sek. hafi 5 punkta öryggisbelti.
8.Dekkjabúnaður er opinn.

Jeppaflokkur:
1.Drif á fjórum hjólum sem eru öxultengd við vél.
2.Hjólbarðar mega ekki ná út fyrir brettabrún.
3.Í ökutækjum sem eru þaklaus, með blæju eða plast húsi skal vera veltibogi og minnst 4 punkta öryggisbelti.
4.Óheimilt er að fjarlæga bretti, vélarhlíf eða framstykki.
5.Ökutæki sem fari hraðar en 5,49 sek. skulu hafa veltiboga og ökutæki sem fari hraðar en 4,99 skulu hafa veltibúr.
6.Öll ökutæki sem fari undir 5,99 sek. hafi 5 punkta öryggisbelti.
7.Dekk skulu vera DOT merkt. Dýpka má slitraufar

Útbúinn jeppaflokkur:
1.Lágmarksþyngd ökutækis er 1200 kg.
2.Drif á fjórum hjólum sem eru öxultengd við vél.
3.Vél skal vera bílvél, ótakmarkaðar breytingar leyfðar.
4.Veltibúr og minnst 4 punkta öryggisbelti skylda, Öll ökutæki sem fari undir 5,99 sek. hafi 5 punkta öryggisbelti.
5.Óheimilt er að fjarlægja hluti af eða úr ökutækjum í keppni.
6.Dekkjabúnaður er opinn.

Opinn flokkur:
1.Allt sem ekki kemst í aðra flokka.
2.Ótakmarkaðar breytingar leyfðar á vél.
3.Dekkjabúnaður er opinn
Útbúnir og opinn flokkur:
Ballest og nítró er leyft.
Höfuðrofi, sæti með háu baki og sprengiheld kúplingshús skylda.
Sprengimotta eða hlíf á sjálfskiptingu skylda sé tími undir 4,99 sek.
Eldsneytis og rafgeymir skulu vera utan farþegarýmis í lokuðum bílum.
Hjólbarðar skulu vera úr gúmmíi, keðjur eða áboltaðar/soðnar spyrnur eru bannaðar.
Í útbúnum og sérsmíðuðum flokkum eru skófludekk eða skófluskorin dekk skylda.
Ökutæki undir 4,99 sek. þarf veltiboga í lokaðan bíl en veltibúr í opinn bíl. Veltibúr er skylda í öllum bílum sem fara undir 4,50 sek.

Allt flokkar eru tveir:

Allt flokkur hjóla og vélsleða

Allt flokkur annara ökutækja

Allt flokkar eru flokkar sem heimilt er að keyra í lok hverrar keppni. Skráning er á keppnisstað og verður viðkomandi keppnistæki að vera skráð í keppni til að mega taka þátt. Undanþágur frá þessu er keppnisstjórn heimilt að veita á keppnisstað, en skal þá keppandi greiða sérstaklega fyrir þáttöku.

Flokkurinn er keyrður með útsláttar fyrirkomulagi og raðað í flokkinn eftir besta tíma ökutækis úr flokkakeppni. Byrjað er á lakasta tíma, þá næstlakasti tími osfr. Ef ökutæki hefur ekki keppt í flokkakeppni skal það teljast með lakasta tímann. Séu fleiri en eitt tæki skráð, án þáttöku í flokkakeppni skal dregið um rásröð þeirra (frá lakasta tíma.) Ræst skal á jöfnu með "pro tree".

Offline Anton Ólafsson

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.972
    • View Profile
Sandspyrna 20.ágúst
« Reply #1 on: August 12, 2005, 01:46:09 »
Skráninginn er kominn af stað.

Offline Anton Ólafsson

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.972
    • View Profile
Sandspyrna 20.ágúst
« Reply #2 on: August 16, 2005, 02:24:35 »
Jæja það styttist í sandinn!!!!

Offline Crazy

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 23
    • View Profile
Sandspyrna 20.ágúst
« Reply #3 on: August 16, 2005, 03:08:14 »
:wink:

Offline ljotikall

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 838
    • View Profile
    • http://kvartmila.is
Sandspyrna 20.ágúst
« Reply #4 on: August 16, 2005, 04:10:08 »
sælir... eigiði ekki fleiri gamlar sandspyrnu myndir til ad setja inna þraðinn?
aukalimur#858
ljotikall@visir.is
pontiac = Poor old nigger thinks its a cadillac.
kveðja Guðjón Jónsson

Offline Krissi Haflida

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.144
    • View Profile
Sandspyrna 20.ágúst
« Reply #5 on: August 16, 2005, 09:03:48 »
hér er ein.
Kristján Hafliðason

Offline Crazy

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 23
    • View Profile
Sandspyrna 20.ágúst
« Reply #6 on: August 16, 2005, 13:11:30 »
fleirri

Offline Kristján Stefánsson

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 685
    • View Profile
Sandspyrna 20.ágúst
« Reply #7 on: August 16, 2005, 13:16:15 »
flottar myndir :)

Offline kiddi63

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 851
    • View Profile
    • http://www.kvartmila.is
Sandspyrna 20.ágúst
« Reply #8 on: August 16, 2005, 15:41:48 »
Bara sandstuð í gangi núna, hér eru  gamlir  sandkóngar . .  8)
Kristinn Eyjólfsson (Kiddi63)   s:8486593
K.E.Flutningar ehf
Bíladellan bjargaði mér frá helv bolta-óreglunni.
Mitsubishi Sigma 1993 v-6 3000 - Grand Cherokee 1995. 6cyl 4.0 L
Yamaha fj 1200. árg 1989
http://www.facebook.com/Kiddi63?ref=name

Offline 1965 Chevy II

  • On the bumper looking at god
  • *******
  • Posts: 8.089
  • Friðrik Daníelss.
    • View Profile
Sandspyrna 20.ágúst
« Reply #9 on: August 16, 2005, 19:25:30 »
Beinn tengill á skráningu: http://ba.is/main/sandurskraning.htm
.....and 500 pounds of torque......what ever that is.
1.30 60ft 5.78 @ 119.9mph 1/8 - 9.07 @ 148.2 mph N/A Pump gas

Offline thunder

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 503
    • View Profile
    • https://www.facebook.com/groups/145312835494896/
ausur
« Reply #10 on: August 16, 2005, 19:45:20 »
ausur til sölu fyrir sandspyrnu uppl 8696741 Danni
chevy nova 69
chevy torfærubill 02
chevy monsa 76
islandsmeistari í sandi 2014
5,319 íslandsmet
besti timi á monsu 9,98@134 mph

Offline firebird400

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.307
    • View Profile
Re: ausur
« Reply #11 on: August 16, 2005, 21:18:14 »
Quote from: "thunder"
ausur til sölu fyrir sandspyrnu uppl 8696741 Danni


Ath 6 stykki til sölu
Agnar Áskelsson
6969468

Offline Krissi Haflida

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.144
    • View Profile
Sandspyrna 20.ágúst
« Reply #12 on: August 19, 2005, 15:14:17 »
er góð skráning??
Kristján Hafliðason