Author Topic: Kúluvarp, spjótkast, MC og ST  (Read 23177 times)

Offline 1966 Charger

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 849
    • View Profile
Kúluvarp, spjótkast, MC og ST
« on: July 06, 2017, 14:14:55 »
Hvernig brigðist þú við ef þú hefðir sjálfur skráð þig til keppni í kúluvarpi á frjálsíþróttamóti, tækir nokkur köst með kúlunni en svo mundi keppnisstjórnin taka einhliða ákvörðun,  án þess að vara þig við eða spyrja þig álits, um að þú værir orðinn keppandi í spjótkasti en þyrftir áfram að nota kúluna við köstin?   Kúluvörpin þín yrðu svo skráð sem þau væru spjótköst og þar með yrðirðu slappasti "spjótkastari" íslandssögunnar :).

Hliðstæðar aðferðir voru framkvæmdar af keppnishaldara á Íslandsmótinu í kvartmílu 24. júní s.l.   Þar skráðu undirritaðir sig í góðri trú sem keppendur í MC flokki enda var boðið upp á slíkt á vefsíðu Kvartmíluklúbbsins.  Við vorum þar tveir skráðir í MC (sem leyfir mjög takmarkaðar breytingar á keppnistæki).  Annar okkar datt út í tímatökum vegna bilunar en þegar sá sem eftir var ætlaði að fara sínar ferðir solo, þá kom allt í einu upp að hlið hans bíll í ST flokki (þar sem leyfðar eru miklar beytingar á bílum).  Þegar gerð var athugasemd um þetta við keppnisstjórn var svarið að flokkar væru ekki keyrðir nema keppendurnir væru fleiri en tveir og að þessvegna hefði keppnisstjórn ákveðið að setja MC bílinn í ST.  Við þetta vinnulag er margt að athuga og færa má rök fyrir að keppnishaldari hafi gert röð mistaka.

Alvarlegasta athugasemdin er sú að keppnisstjórn tók ákvörðunina ÁN ÞESS að upplýsa keppanda um hana fyrir fram og hvað þá að sýna keppandanum þá lágmarks virðingu að spyrja hann um hvort hann vildi færa sig um flokk og leyfa honum að velja þá flokka sem bíll hans er gjaldgengur í (hann var nefnilega gjaldgengur í fleiri en einn flokk) EÐA hætta keppni og fá keppnisgjöldin endurgreidd.

Mistök keppnishaldarans voru þessi:
1.  Að láta keppendur ekki vita, þegar skráningu lauk, að ekki yrði keppt MC flokki vegna lítillar þátttöku og að bjóðast ekki til að endurgreiða keppnis- og tryggingargjald sem keppendur þurfa að greiða fyrir fram, ÓHÁÐ ÞVÍ hvort lágmarksþátttöku sé náð að mati keppnishaldara.
2.  Að gera enga athugasemd við MC skráningu okkar við undirskrift þátttökutilkynningar í aðstöðu keppnisstjórnar á keppnisstað örfáum klukkustundum fyrir keppni þar sem skýrt er skráð á þátttökutilkynningarblaðið sem keppnishaldari fékk afhent, og er með í fórum sínum, að við séum keppendur í MC flokki.
3.  Að stilla ST bíl upp við hlið MC bílsins án þess að spyrja MC keppandann álits hvort hann vildi keppa í ST flokki (eða TS flokki sem hann hefði einnig getað) eða hætta keppni og fá keppnisgjöld og tryggingar (11.000 kr.) endurgreiddar.
4.  Þegar skráningu lauk voru þrír bílar skráðir í ST flokkinn sem MC bílunum tveimur var bætt inn í.  ST flokkurinn var því þegar orðinn löglegur og þurfti ekki að bæta við MC bílunum.  Í TS flokki var hinsvegar bara skráður einn bíll svo það hefði verið skynsamlegra að bæta tveimur bílum við þar til að gera TS flokkinn gildan.  Hversvegna datt keppnishaldara það ekki í hug?  ST flokkurinn er sekúntuflokkur þar sem breakout reglan 11.49 er í gildi.  Í tímatökum fóru tveir ST bílanna langt undir þeim tíma.  Óskiljanlegt er af hverju keppnisstjórn datt ekki í hug að það mætti færa þá yfir í TS flokk þar sem aðeins einn bíll var skráður fyrir.  Slík ráðstöfun hefði gert TS og ST flokkana gilda að því gefnu að báðir MC keppendurnir og tveir ST keppendurnir sem fóru lágar ellefu hefðu samþykkt slíkar uppástungur keppnisstjórnar. Sá eini keppandi sem skráður var í TS hefur tjáð okkur að hann hafi fengið einn vin sinn til að keyra með sér í flokknum til að hafa eitthvert company.  Hversvegna var þessum tveimur lágu 11 sekúntna bílum ekki boðið að færa sig þangað?
5.  Ef keppnishaldari mun koma með þau mótrök að keppendur ættu að vita um þessa þriggja bíla reglu þá er svar okkar þetta: Á vef keppnishaldarans sjálfs, á keppnisdeginum 24.06. s.l. , er eftirfarandi 6 ára gamli orðrétti texti það sem fannst um lágmarksþátttöku í keppni: „Hér má sjá þá flokka sem eru í boði 2011, lágmark 2 keppendur þurfa að vera í viðkonamdi flokk til að hann sé keyrður.“  Þarna stangast því á upplýsingar á vefsíðu keppnishaldara og ákvörðun keppnishaldara. Ef keppnishaldari bendir á að á AKÍS síðunni standi:  „Þar sem annað er ekki tekið fram skal lágmarksfjöldi keppenda sem hefja keppni í hverjum keppnisflokki vera þrír til að úrslit telji til Íslandsmeistarastiga“ þá er því til að svara að ákvæðið um fjölda snýst bara um hvort keppnin sé til íslandsmeistarastiga.  Að sjálfsögðu mætti keyra flokk með tveimur keppendum ef þeir óska þess, þeir fá bara engin stig. 
6.  Á vefsíðu AKÍS kemur fram að kærufrestur vegna flokkaskráningar lýkur 30 mínútum ÁÐUR en keppni hefst. Á þeim tíma töldum við að við værum keppendur í MC flokki en þegar hið sanna kom í ljós var þessi kærufrestur liðinn auk þess sem gagnslaust hefði verið að kæra keppnishaldarann sem fer sjálfur með úrskurðarvald í slíkum kærumálum.

Að ofangreindu virtu er álit undirritaðra að framkoma keppnishaldara í garð okkar 24.06. s.l.  megi annað hvort kalla vísvitandi blekkingu eða að vankunnátta keppnishaldara hafi valdið röð ofangreindra mistaka.

Undanfarin ár hefur KK lyft grettistaki varðandi aðstöðu og umhverfi til keppnishalds og skal því hrósað hér.  En það eitt og sér dugar þó ekki til að laða að keppendur ef keppnishaldari kemur fram við keppendur af fálæti og virðingarleysi eða ef vankunnátta hans er á því stigi að keppendum er att út í tóma vitleysu.

 Hér hafa ofangreind vinnubrögð keppnishaldara leitt til að tveir keppendur, með áratuga langa keppnisreynslu, munu ekki taka þátt kvartmílukeppnum fyrr en vinnubrögð keppnishaldara hafa lagast varðandi ofangreind atriði.  Fyrsta skrefið í þá átt væri að keppnishaldari endurgreiði skráningar- og tryggingarkostnað okkar (samtals 21.000 kr.) sem er bara brot af kostnaði okkar við þátttökuna.

Ragnar S. Ragnarsson og Björn Gíslason
« Last Edit: July 08, 2017, 10:26:16 by 1966 Charger »
66 Charger, 451, .582" lift, 10" conv.  4.10:1. 1868 kg/4118 lbs.
60=1,994, 11,79@114 mph venjuleg Firestone radial dekk.
Íslandsmeistari MC 2007, 2008 og 2009.

Offline 1965 Chevy II

  • On the bumper looking at god
  • *******
  • Posts: 8.089
  • Friðrik Daníelss.
    • View Profile
Re: Kúluvarp, spjótkast, MC og ST
« Reply #1 on: July 06, 2017, 18:00:11 »
Hér áður var keppendum boðið að færa sig um flokk, ef keppandi kaus að gera það ekki fékk viðkomandi bara að fara sýnar ferðir og fá mætingarstig og mögulega stig fyrir met, að mínu viti
stenst svona yfirgangur enga skoðun.
.....and 500 pounds of torque......what ever that is.
1.30 60ft 5.78 @ 119.9mph 1/8 - 9.07 @ 148.2 mph N/A Pump gas

Offline Kristján Skjóldal

  • On the bumper looking at god
  • *******
  • Posts: 4.781
  • ef stórt er gott þá er stærra betra
    • View Profile
Re: Kúluvarp, spjótkast, MC og ST
« Reply #2 on: July 13, 2017, 12:24:17 »
Já þetta er fáránlegt að gera þetta svona það er bara svoleiðis !
best á Camaro 1972 1,49 60 f 6,49 1/8  10,19 1/4 @ 131.96.  best á  Blower Camaro 1967 1,16 60 F 5,12 1/8 og 8,16 1/4 @169. best á Dragga 8,26 @ 170,97 en þá voru ekki komnir 60 f timar. sandur 3,34 draggi og á hjóli 4,56 kveðja Kristján Skjóldal

Offline Kiddi

  • TÚRBÓ
  • Doing 20ft wheelies
  • ******
  • Posts: 2.762
    • View Profile
Re: Kúluvarp, spjótkast, MC og ST
« Reply #3 on: July 18, 2017, 18:43:21 »
Sammála ykkur.. brjálað rugl  :shock:

.. og ruglið virðist halda áfram :!:

Hér er ekki að sjá nein svör keppnisstjóra/stjórnar til að skakka leikinn.




PS.
Ég styrkti kvartmíluklúbbinn með station gjaldi nú snemma í vor þrátt fyrir að vera með bíl á gjörgæslu inn í skúr...
Ef þetta er það sem koma skal ofan á margt annað þá er þetta allt í lausu lofti =;


Kiddi
8.93/154 @ 3650 lbs.

Offline 69Camaro

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 216
    • View Profile
Re: Kúluvarp, spjótkast, MC og ST
« Reply #4 on: July 19, 2017, 11:02:47 »
Handvömm
Ari Jóhannsson
1969 Camaro, N/A   8.55 ET / 160,7 MPH., 5.34 /130.0 MPH 1/8, 1.22 60ft.

Offline Harry þór

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 714
  • Camaro 427
    • View Profile
    • http://www.korfubilar.is
Re: Kúluvarp, spjótkast, MC og ST
« Reply #5 on: July 20, 2017, 08:56:27 »
Það er loksins að það heyrist hljóð úr horni. Flott að vera á kantinum og þegar það verða mistök þá stökkva menn til ! þessi mistök má alfarið skrifa á mannfæð og nýtt fólk í stjórnstöð , margir í fríi.

það var haldinn fundur eftir þessa keppni og þar kom fram hvað er að gerast.

mbk harry þór
1969 Camaro 427 sYc
11.99 Drag radial 60 ft 1.650
12.24 BFG  radial 60 ft 1.795  111.93 mph
Altered dragster 598 bbc 4.77.  1/8 - 147.5 mph - 1.09 60 ft
1/4 7.65 - 163.5 mph

Offline Jón Bjarni

  • Administrator
  • On the bumper looking at god
  • *******
  • Posts: 111.750
    • View Profile
    • Myndirnar mínar
Re: Kúluvarp, spjótkast, MC og ST
« Reply #6 on: July 21, 2017, 16:09:49 »
Sæll Ragnar.

Afsakðu sein svör, en ég verð að viðurkenna að ég fer afar sjaldan á þetta spjall og var ekki búinn að sjá þetta.

Það er rétt að það voru gerð mistök á þessari keppni, Það var planið að ræða við ykkur um að flytja um flokk en þar sem ég lagðist niður í veikindi þá misfórust upplýsingar um það á milli mín og Ingimundar og taldi hann að það væri búið að ræða þetta við ykkur.
Þið hefðuð að sjálfögðu átt að fá að keyra í MC og ég vona að við sjáum ykkur þar í ágúst.
Ég biðst afsökunar á þessum leiðu mistökum og mun klúbburinn endurgreiða keppnisgjöldin vegna þessa.

Kveðja
Jón Bjarni
Jón Bjarni Jónsson - Upplýsingarfulltrúi Kvartmíluklúbbsins
BMW 530D MR.X editon

Offline 1966 Charger

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 849
    • View Profile
Re: Kúluvarp, spjótkast, MC og ST
« Reply #7 on: July 21, 2017, 17:40:38 »
Sæll Jón Bjarni

Við tökum afsökun þína gilda enda ertu að bera hana fram fyrir hönd klúbbsins.   Mistök geta alltaf átt sér stað og hér eru þau viðurkennd og krafa okkar samÞykkt.  Við viljum að lokum koma á framfæri að ein höfuðástæða skrifa okkar voru viðbrögð eins starfsmanns keppninnar (sá heitir Ingólfur) vegna þess að hann hvorki sýndi athugasemd okkar skilning né virtist íhuga hvort hún væri réttmæt.  Vonandi dregur hann lærdóm af þessu. 

Frekari eftirmál verða ekki af okkar hálfu um þetta mál.

Ragnar og Björn
66 Charger, 451, .582" lift, 10" conv.  4.10:1. 1868 kg/4118 lbs.
60=1,994, 11,79@114 mph venjuleg Firestone radial dekk.
Íslandsmeistari MC 2007, 2008 og 2009.

Offline 1965 Chevy II

  • On the bumper looking at god
  • *******
  • Posts: 8.089
  • Friðrik Daníelss.
    • View Profile
Re: Kúluvarp, spjótkast, MC og ST
« Reply #8 on: July 21, 2017, 23:29:22 »
Sæll Ragnar.

Afsakðu sein svör, en ég verð að viðurkenna að ég fer afar sjaldan á þetta spjall og var ekki búinn að sjá þetta.

Það er rétt að það voru gerð mistök á þessari keppni, Það var planið að ræða við ykkur um að flytja um flokk en þar sem ég lagðist niður í veikindi þá misfórust upplýsingar um það á milli mín og Ingimundar og taldi hann að það væri búið að ræða þetta við ykkur.
Þið hefðuð að sjálfögðu átt að fá að keyra í MC og ég vona að við sjáum ykkur þar í ágúst.
Ég biðst afsökunar á þessum leiðu mistökum og mun klúbburinn endurgreiða keppnisgjöldin vegna þessa.

Kveðja
Jón Bjarni
:smt023
.....and 500 pounds of torque......what ever that is.
1.30 60ft 5.78 @ 119.9mph 1/8 - 9.07 @ 148.2 mph N/A Pump gas

Offline Kiddi

  • TÚRBÓ
  • Doing 20ft wheelies
  • ******
  • Posts: 2.762
    • View Profile
Re: Kúluvarp, spjótkast, MC og ST
« Reply #9 on: July 22, 2017, 11:10:53 »
Góð lending  =D>

Jón Bjarni sýnir að hann er meiri maður en margur.
8.93/154 @ 3650 lbs.

Offline Ingó

  • Stjórn KK
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 504
    • View Profile
Re: Kúluvarp, spjótkast, MC og ST
« Reply #10 on: July 23, 2017, 14:18:24 »
Sæll Ragnar.

Mitt starf á þessari keppni var að vera kynnir. Ég hef það fyrir reglu að blanda mér ekki í störf keppnisstjóra enda ekki mitt að gera.

Kv Ingó
Ingólfur Arnarson

Offline 1966 Charger

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 849
    • View Profile
Re: Kúluvarp, spjótkast, MC og ST
« Reply #11 on: July 23, 2017, 22:11:38 »
Það varst þú sem varst fyrir svörum þegar ég fór upp í stjórnstöðina og gerði athugasemd við að þið stilltuð ST bílnum upp við hliðina á Bjössa og spurði ykkur mjög skýrt hvort þið gerðuð ykkur grein fyrir að Bjössi væri skráður keppandi í MC.  Svarið þitt var að þið keyrðuð ekki flokka þar sem væru færri en þrír keppendur.

Njóttu dagsins

Ragnar
66 Charger, 451, .582" lift, 10" conv.  4.10:1. 1868 kg/4118 lbs.
60=1,994, 11,79@114 mph venjuleg Firestone radial dekk.
Íslandsmeistari MC 2007, 2008 og 2009.