Jæja, er ekki kominn tími á smá stöðuuppfærslu ? Þannig er mál með vexti að í síðustu keppni síðasta sumar bilaði hjá mér mótorinn ! Tók ég þá bílinn af númerum parkeraði honum inn í skúr og leit ekki á hann fyrr en í síðustu viku, þá fór ég nú að verða forvitinn að vita hvað hefði gerst þó ég þættist nú vita hvað hefði gengið á ! En allavega þá dreif ég mig í skúrinn í síðustu viku og reif vinstra heddið af og þá kom þetta í ljós
Vel gert
brotinn stimpill á á cyl. 5 og 7, einnig skemmt hedd á 7. jú og ónýt blokk !
En það þýðir ekkert að væla yfir þessu, nýja blokkin er komin í skúrinn, stefnan er að koma bílnum í gang á vormánuðum 2014, er OFF þetta árið.