Sæl/ir allir og þakkir fyrir áhugaverða umfjöllun í minn garð og "collega" minna.
Ég heyrði af þessarri umfjöllun og eftir smá umhugsun ákvað ég að skjótast aðeins hingað inn og leggja orð í belg.
Ég heiti Ýrr, og miðað við þráðinn tel ég mig vita að þið þekkið flest deili á mér, amk eftir þessa umfjöllunn á þræðinum.
Bílar og Sport ætla að fjalla um custom art, væntanlega í mai, og er eitt og annað í umhugsunar prósess hvað það varðar. Þá verður væntanlega kynntir þeir aðilar sem starfa við þetta nú þegar og geta sýnt fram á verk þess efnis. Það kunn vera ég og svo "collegi" minn, að NAFNI Orlando, sem er frá Panama. Hann fór einmitt í gær til þeirra félaga hjá bílar og sport og átti orð við þá. Í kjölfarið höfðu þeir í Poulsen samband við mig, m.a fyrir hönd þeirra, í bílar og sport, vegna þessarrar væntanlegu umfjöllun í blaðinu í vor.
Það kemur svo bara allt í ljós þá og þið getð lesið allt um það þegar að því kemur.
Í sumar verður námskeið hjá Poulsen, námskeið í Airbrush tækni, þar mun ég og einn af mínum lærifeðrum, að nafni Craig Fraser -
http://www.gotpaint.com kenna áhugasömu myndlistarfólki að nota airbrush við sína list, en airbrush er ekki einungis nytsamleg í bílasprautun.. heldur í alla listsköpun.
Þakkir fyrir áhugaverða umræðu, og að flestu leyti góð innlegg þar sem umræðan snerist um viðfangsefnið en ekki grunnhyggnar og óviðeigandi vangavelltur sem ekki áttu heima í umræðunni.
Vil ég í kjölfarið minna þá sem það á við, að halda sig við efnið og muna að spjallþræðir eru ekki ósýnilegir og þarf að ganga um slíka vefi af varkárni og virðingu í garð náunganns.
Vonandi koma þessar uppls að gagni og varpi skærara ljósi á umræðuna .
Þakkir til ykkar sem gáfu
verkum mínum góð orð
og Langbarði Takk fyrir stuðninginn Vinur) Rock on!!
Kveðja
Ýrr
http://tattoobike.com