Suzuki mótorinn er nú 75kg, Volvo mótorinn trúlega nær 200. Svo er hann með alveg rosalegt millikassamix, minnir að hann sé með 3 gíra kassa einhvern fyrir aftan volvo gírkassann. Svo eru þyngri hásingar og fjöðrunarpartar. Svo er þessi sidekick 93 árgerð, sem er eitthvað þyngru út úr verksmiðju heldur en 92 árgerðin. Þetta telur allt.
Minn bíll er ennþá með klafa að framan (reyndar heimasmíðaða klafa sem eru ekki þyngri en original dótið), original vél og gírkassa + lágadrif, Toyota millikassa með lágadrifi, Toyota 8" afturhásingu úr fjaðrabíl, Toyota 7.5" framdrif úr klafabíl.