Humm, var að taka eftir þessum pósti núna....... Er þetta ekki "govenorinn" sem kom úr skiftingunni? Átt ekkert að þurfa að eiga við hann nema þú sért komin með manual ventlaboddy eða viljir breyta skiftipunktum hjá þér.....
Fyrst að þú ert búin að rífa pönnuna undan og síuna, hvernig var vökvin (var brunalykt af honum?) og sían, var eitthvað vatn komið í olíuna?
Mæli mjög mikið með því að þú farir upp í Bílabúð Benna, kaupir þér Shift Kitt frá B&M eða Transgo... Þá færðu líka teikningar með kittinu til að geta gert þetta sjálfur þ.s. þú fækkar kúlum, færð aðrar pakkningar og aðra gorma fyrir ventlana sem eru í ventlaboddy-inu (þetta er IDIOT-proof að gera þetta)..
Það eru nokkrir valmöguleikar í þessu setti, þ.e.a.s. hvort þú ert að fara að setja kittið í þungan bíl eða léttan, aflmikin eða std. bíl o.s.frv.
Kittið kostar rúman 5 þús. kall minni mig.
Það sem þú græðir á þessu kitti er að skiftingin verður miklu sneggri að skifta sér í staðin fyrir þessar letilegu skiftingar 1.2.3.....
Gott að byrja á þessu til að vera viss með að þetta sé ekki inn í skiftingunni, það er aldrei að vita (hún var í lagi eins og þú sagðir).. Keyptu svo stálsíu (ekki pappa) og settu góðan vökva á hana ekki einhvert sull.. Keyptu eitthvað frá Mobil 1 eða Valvoline, viðurkenndan Dexron staðal. Mæli einnig með B&M eða álíka sjálfstæðum olíukæli fyrir skiftinguna..... Ef þú ferð eftir þessu þá ertu í góðum málum
Ekki dæma 700 skiftinguna strax úr leik