Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Daníel Már on May 21, 2011, 14:35:28

Title: Æfing?
Post by: Daníel Már on May 21, 2011, 14:35:28
Jæja víst það er keppni næstu helgi, er þá ekki tímabært að hafa æfingu í næstu viku ? :)
Title: Re: Æfing?
Post by: 1965 Chevy II on May 21, 2011, 16:29:44
Það verður ekki æfing fyrir þessa keppni, með heppni nàum við að keyra keppnina  :!: :wink:
Title: Re: Æfing?
Post by: SMJ on May 25, 2011, 17:18:48
Það verður ekki æfing fyrir þessa keppni, með heppni nàum við að keyra keppnina  :!: :wink:

"Með heppni"?
Mér finnst það eigi ekki að auglýsa keppni, ef það leikur vafi á því hvort brautin verði tilbúin. Það verður að virða tíma og skipulagningu keppanda og fjölskyldna þeirra.
Hitt er svo annað mál að blessuð verðurspáin er okkur ekki hliðholl um þessa helgi, því miður, en það er alltaf von....
Title: Re: Æfing?
Post by: SPRSNK on May 25, 2011, 17:33:32
Keppnin er á keppnisdagatali klúbbsins og því er hún auglýst.
Framkvæmdir sem ráðist var í á brautinni hafa farið úr skorðum vegna veðurlags í vor sem og óvæntra atvika við innflutning á hjálparefnum sem töfðust í flutningi.
En þetta er allt að koma!

Vonandi verður keppni - það er kominn svakalegur fiðringur í alla heyrist mér \:D/
Title: Re: Æfing?
Post by: SMJ on May 25, 2011, 18:28:16
Veðurspáin er að lagast.... \:D/
Title: Re: Æfing?
Post by: 1965 Chevy II on May 25, 2011, 19:36:49
Við reynum að keyra keppnir ef það nokkur kostur, þess vegna var hún auglýst þó það yrði tæpt, veðrið þarf að vera 100% því það á eftir að setja trackbite ofan á gúmmíið sem Rúdólf er búinn að vera að draga í brautina undanfarið

Náist þetta ekki þá verður bara að hafa það við eigum líka fjölskyldur sem sitja á hakanum á meðan við vinnum í sjálfboðavinnu fyrir klúbbinn og félagsmenn.Það geta komið upp aðstæður sem valda frestun og þá má bóka það að okkur finnst það í það minnsta jafn slæmt og öðrum sennilega verra.

Vilji menn fara í mótorsport þar sem aldrei þarf að fresta þá bendi ég á Rallykross eða torfæru.

Að öðru leiti lofar brautin góðu og það hlakkar í manni að prufa og finna út "sweet spot" í track preppi á brautinni okkar en þeir segja úti að
hver braut sé ólík annari hvað það varðar.
Title: Re: Æfing?
Post by: íbbiM on May 25, 2011, 22:50:56
djöfull verður magnað að prufa henda bíl af stað með almennilegu tracki
Title: Re: Æfing?
Post by: 1965 Chevy II on May 25, 2011, 23:29:35
Já það verður gaman að sjá hvað þetta gerir fyrir okkur  8-)
Title: Re: Æfing?
Post by: Kristján Skjóldal on May 26, 2011, 09:09:32
já þetta verður spenadi að sjá!! annars er nú 1,020 ekki slæm 60 ft sem er metið á því gamla :mrgreen:
Title: Re: Æfing?
Post by: Daníel Már on May 26, 2011, 10:24:21
Helv slæmt samkvæmt mbl.is það á að vera rigning.