Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: kiddi63 on March 06, 2010, 13:21:24
-
Kannski er of snemmt að spá í það en verður ekki sýning nú með vorinu?
Og er eitthvað ákveðið hvar hún verður? :smt024
-
Það verður eflaust ekki eins gott að fá tæki til sýningar eftir þessa meðferð sem menn hafa verið að fá hér á spjallinu.
Ég hef heyrt frá mönnum að ef það yrði hringd og óskað eftir bílum til sýningar þá yrði svarið NEI.
En það á auðvitað eftir að koma í ljós hvað spjall lokunarmenn eru í raun búnir að valda miklum skaða í raun og veru en eins og staðan er núna þá verður maður var við mikla heyft og reiði í garð stjórnar klúbbsins.

Vá hvað menn eru bitrir....... :shock:
er þetta í alvöruni svona alvarlegt?
kv Bæzi
-
Já, þeir byrja vel. Svo kemur líklega meira í þessum dúr.
-
Ég held að menn ættu frekar að meta það að ákvörðunin var endurskoðuð til að koma á móts við óskir spjallverja.
Ef menn ætla að fara að setja það einhvað fyrir sig að stjórnin vildi haga sínum málum öðruvísi en áður var gert og ætla að sitja heima fyrir vikið þá gera þeir það bara.
Mér þætti bara heiður af því að vera boðinn með bílinn minn á sýningu.
Ef þetta hefur svona svakalega mikil áhrif á líðan þessara manna þá eiga þeir við stærri vandamál að stríða en þeir vilja láta af vera.
-
Sælir,
Jú það verður sýning,það er verið að vinna í þeim málum og við munum auglýsa hana um leið og allt er klárt.
-
Það verður eflaust ekki eins gott að fá tæki til sýningar eftir þessa meðferð sem menn hafa verið að fá hér á spjallinu.
Ég hef heyrt frá mönnum að ef það yrði hringd og óskað eftir bílum til sýningar þá yrði svarið NEI.
En það á auðvitað eftir að koma í ljós hvað spjall lokunarmenn eru í raun búnir að valda miklum skaða í raun og veru en eins og staðan er núna þá verður maður var við mikla heyft og reiði í garð stjórnar klúbbsins.
Það væri flott að fá það á hreint hverjir það eru, svo maður sé nú ekki að hringja í þá að óþörfu! :-"
-
Sælir félagar. :)
Ég vona að það verði stór og flott sýning í ár, og ég vona líka að þeir sem leitað er til láni sín tæki. :!:
Þó svo að ég sé ekki sammála þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru á spjallinu þá verð ég nú að segja að sumir hafa tekið full stórt upp í sig, og hafa verið með óþarfa yfirlýsingar hér inni.
Ég veit ekki til þess að spjallinu hafi verið lokað á einn né neinn, né að því hafi verið breytt, aðeins boðaðar breytingar 1. apríl !
Persónulega finnst mér að menn hefðu átt að bíða og sjá hvernig þetta þróaðist, sem það hefur gert og á hugsanlega eftir að breytast meira.
Ég vonast hinns vegar til að sjá sem flest tæki á komandi sýningu sem vonandi verður flott, enda hefur standardinn á þeim verið mjög flottur síðustu tvö árin.
Kv.
Hálfdán. :roll:
-
Sælir,
Þap er engin hætta á öðru en að þetta verði prýðleg sýning og öllum til sóma,moli og allir þeir sem hafa unnið hvað mest í kringum þetta
hafa lagt allt í þetta og meira til.
-
Nú ef vantar bíla þá á ég þrjá og mundi glaður lána þá á sýningu ef ég yrði beðin um það. það er engin ástæða til að láta einhverja fýlupúka vera með bíla þarna þannig að það er örugglega gott ef KK vissi hverjir vilja ekki lána bílana sína, svo eru þeir örugglega í svo mikilli fýlu að þeir ætla sko ekki að keppa í sumar. :-" Nei bara smá grín
-
Þetta er rétti andinn Hilmar 8-)
-
maður myndi klárlega vilja hafa bílinn sinn á sýningu KK ef maður yrði beðinn um það þótt maður voni að það verði aldrei af þessari lokun.
-
Ef menn ætla að seiga nei þá er það þeirra mál og veldur þá bara fjölbreitni. ég yrði ekkert nema stoltur ef minn bíll kæmi til greina að standa þarna fyrir augum flestra bílaáhugamanna á íslandi. Ef hann er ekki þess verðugur ætla ég samt að reyna að blanda mér í þetta með sjálfboðavinnu sem gerir ekki nema gott í uppbyggingu bíladellu á íslandi. Man það þegar ég fór fyrst nú 2008, ég var alveg gáttaður hvað voru til flottir bílar á íslandi!
Vona að þetta verði svaka sýning í ár!!
-
Auðvitað yrði maður stoltur ef það beðið um að hafa bíl sinn á bílasýningu. Skil ekkert í mönnum að neita slíkri beiðni!
-
Fólk er fífl! Ef menn ætla að seiga nei þá er það bara þeirra mál
-
fólk var með of mikinn æsing til að byrja með (þ.m.t undirritaður) en eftir að þeir skiptu um skoðun til að mæta óskum spjallverja þá hvarf nú helsti biturleikinn, Ef ég væri beðinn um að koma með minn bíl á sýningu þá myndi ég lýta á það sem heiður! Ekki það að ég eigi bíl til að sýna :lol:
en ég mæti klárlega á sýninguna með eins marga og ég kem í bílinn, mæti með nýja myndavél líka :mrgreen:
Og munið... Biturleiki leysir ekkert :P
-
Eru menn með hvítasunnuhelgina í huga sem fyrr. :?:
-
Eru menn með hvítasunnuhelgina í huga sem fyrr. :?:
nei, það er verið að miða við 7-9 Maí, en það er spurning hvaða hús standa til boða þá helgi.
-
kommon! verð ekki kominn með vélina þá ](*,)
verður samt stuð eins og alltaf 8-)
sendi á þig póst Moli
-
Eru menn með hvítasunnuhelgina í huga sem fyrr. :?:
nei, það er verið að miða við 7-9 Maí, en það er spurning hvaða hús standa til boða þá helgi.
nice er i frí lau og sun F1 og Bilasýning góður dagur =D>
-
:!:Jæja, er búið að ákveða stað og stund :?:
-
Sæll,
Já það er búið að ákveða það,sýningin verður fyrstu helgina í Maí og verður í MEST húsinu við Rauðavatn.
-
Flott er takk fyrir Friðrik.
-
kommon! verð ekki kominn með vélina þá ](*,)
verður samt stuð eins og alltaf 8-)
sendi á þig póst Moli
bara gera eins og einn maður reddaði sér í fyrra með hlóð eitthverju sem ég man ekki hvað var í húddið ( allavegana eitthvað þungt) um nóttina þannig að það mundi ekki bera eins mikið á því að bíllinn væri vélarlaus á síningunni, menn redda sér á mismunandi hátt :-"

Þetta var vélarlaus Camaro og þetta var á sýningunni 2008, hann strappaði framendan á bílnum reyndar bara niður áður en sýning hófst.
-
var ekki vélarlaus japanskur bíll á 2009 síningunni og mig minnir að hann hafi hlaðið sandpokum í húddið nóttina fyrir sýninguna eða er ég bara að rugla eitthvað?
-
Það hafa margir mætt vélarlausir á sýningu.
-
var ekki vélarlaus japanskur bíll á 2009 síningunni og mig minnir að hann hafi hlaðið sandpokum í húddið nóttina fyrir sýninguna eða er ég bara að rugla eitthvað?
Hann var reyndar þýskur, opel astra turbo.

Vantaði ekki bara heddið á þann bíl ekki allan mótorinn?
-
nei mig minnir að ég hafi litið oní húddið þegar þeir voru að hlaða sandpokum eða einhverjum fjáranum oní húddið og ég sá bara ekkert nema sandpoka strákurinn sem átti bílinn fékk vélina of seint eða eitthvað þannig til að getað græjað það fyrir síninguna þannig menn redduðu sér á annan hátt :-"
-
eg er með 2 bila sem hafa ekki sest a siningu aður til að lana þa cadillac 65 og galaxie 67 \:D/
-
var ekki vélarlaus japanskur bíll á 2009 síningunni og mig minnir að hann hafi hlaðið sandpokum í húddið nóttina fyrir sýninguna eða er ég bara að rugla eitthvað?
Hann var reyndar þýskur, opel astra turbo.
Vantaði ekki bara heddið á þann bíl ekki allan mótorinn?
þær voru nú tvær rauðar opel östrur þarna á sýninguni :D
önnur vélarlaus og á hina vantaði heddið
-
kommon! verð ekki kominn með vélina þá ](*,)
verður samt stuð eins og alltaf 8-)
sendi á þig póst Moli
bara gera eins og einn maður reddaði sér í fyrra með hlóð eitthverju sem ég man ekki hvað var í húddið ( allavegana eitthvað þungt) um nóttina þannig að það mundi ekki bera eins mikið á því að bíllinn væri vélarlaus á síningunni, menn redda sér á mismunandi hátt :-"
hann er að tala um myndavél held ég... óþarfi að hengja lóð á hana

:lol:
en já ég er að tala um myndavél ;)
kemst því miður ekki, en veit að það verða þónokkrir með myndavélar :D
-
Hvaða hús er MEST húsið?
-
stálgrindar hús rétt við olís hjá rauðavatni/norðlingaholt
-
(http://img.photobucket.com/albums/v628/461poncho/MEST.jpg) (http://img.photobucket.com/albums/v628/461poncho/MEST.jpg)