Kvartmílan => Almennt Spjall => Topic started by: Jón Bjarni on January 29, 2010, 17:58:53
-
Bara minna á að það verður að vra búið að auglýsa allar laga og reglubreitingar sem á að leggja fyrir á aðalfundi fyrir 6 feb.
:)
-
hvernær rennur fresturinn út?
-
Nú 6 feb það stendur þarna.
-
Hér er mín tillaga að SE flokk:
SE flokkur
GÖTUBÍLAFLOKKUR
FLOKKALÝSING
Flokkur fyrir bíla sem keyrðir eru á götum,með fulla skoðun og löglegir skv. Íslenskum lögum og tilbúnir til skoðunar í löglegri skoðunarstöð. Keppnistæki skulu auðkennd með: SE/ og númeri ökumanns. Eftirfarandi Þyngdartakmörk eru í flokknum: Ökutæki með vélarstærð að 415 cid, skulu vera lágmark 1300kg. Ökutæki með vélarstærð yfir 415 cid, skulu vera lágmark 1500kg.
ÚTBLÁSTURSKERFI
Útblásturskerfi verður að vera til staðar í bílum í keppni samkvæmt reglum um gerð og búnað ökutækja á Íslandi. Kerfið má ekki beinast að vagni eða dekkjum , og vera tilbúið til skoðunar hjá viðurkenndri skoðunar stöð hvenær sem þurfa þykir. Hámarks sverleiki röra er 4".
ELDSNEYTI
Nítró gas N2O (glaðloft) Forþjöppur og aðrir aflaukar (power adders) og alkohól bannað.
STUÐARAR
Stuðarar upprunalegir eða eins og upprunalegir skylda. Séu notaðir plast stuðarar skulu þeir líta út eins og upprunalegir
GRIND
Grind skal vera upprunaleg eða eins og upprunaleg og þá úr eins efnum.
5. HJÓLBARÐAR OG FELGUR
HJÓLBARÐAR
Öll viðurkennd götudekk leyfð sem eru með löglegan stimpil það er DOT eða sambærilegan sem viðurkenndur er af skoðunarstöðum og tæknimönnum KK. Stærð dekkja má ekki vera meiri en 30 X 12,5. FELGUR: Allar gerðir af felgum leyfðar. Minnsta stærð á felgum 13" nema að bíllinn hafi komið á minni felgum frá framleiðanda.
BODDÝSTÁL
Allt í ökumanns og farþegarými verður að vera upprunalegt eða eins og upprunalegt og þá úr eins efni og framleiðandi notaði. Það sama á við um ál. Magnesíum er bannað.
KLÆÐNING
Allir bílar skulu vera með fulla innréttingu í keppni.
YFIRBYGGING
Allir bílar skulu vera með yfirbyggingu eins og þeir komu með úr verksmiðju og úr sömu efnum. Trefjaplast vélarhlíf leyfð. Trefjaplast bretti eru leyfð að framan. Trefjaplast samstæður bannaðar. Að öðru leyti en að framan verður yfirbygging að vera ú sömu efnum og komu frá viðkomandi framleiðanda. Bannað er að klippa úr yfirbyggingu hvort sem um er að ræða tvöföldun eða eitthvað annað.
BRETTI
Allir bílar verða að vera með samskonar bretti og þeir komu með úr verksmiðju. Innribretti verða að upprunalega lögun og vera úr sömu efnum og original. Ekki er leyft að klippa úr létta eða breyta innribrettum á nokkurn hátt nema til að koma fyrir pústflækjum og má þá ekki klippa meira en svo að brún brettis má ekki vera meira en 15mm frá ystu brún röra. Bannað er að klippa úr eða breyta hjólskálum að aftan á nokkurn hátt, þær má þó styrkja.
GÓLF
Upprunalegt gólf eða gólf sem lítur út sem upprunalegt og er úr eins efnum og upprunalegt skylda.
GÖTUAKSTURSBÚNAÐUR: Allur götuakstursbúnaður sem skyldugur er skv.reglum um gerð og búnað ökutækja á Íslandi er skylda í keppni. Meða götuakstursbúnaði er verið að tala um virkar þurrkur, miðstöð, rúðu upphalara, ljós, hurðalæsingar o.s.f.
RÚÐUR
Allar rúður verða að vera úr gleri eins og upprunalega. Allar rúður skulu annars vera úr öryggis gleri.
-
klukkan hvað er aðalfundurin vonandi ekki of snemma það er fullt af fólki að vinna á laugadögum
-
hann er kl 14:00
-
SE flokkur
GÖTUBÍLAFLOKKUR
FLOKKALÝSING
Flokkur fyrir bíla sem keyrðir eru á götum,með fulla skoðun og löglegir skv. Íslenskum lögum og tilbúnir til skoðunar í löglegri skoðunarstöð utan pústkerfis. Keppnistæki skulu auðkennd með: SE/ og númeri ökumanns. Eftirfarandi Þyngdartakmörk eru í flokknum: Bílar með Small Block, skulu vera lágmark 1300kg. Bílar með Big Block, skulu vera lágmark 1500kg.
ÚTBLÁSTURSKERFI
Opið púst leyft.
ELDSNEYTI
Nítró gas N2O (glaðloft) Forþjöppur og aðrir aflaukar (power adders) og alkohól bannað.
STUÐARAR
Stuðarar upprunalegir eða eins og upprunalegir skylda. Séu notaðir plast stuðarar skulu þeir líta út eins og upprunalegir
GRIND
Grind skal vera upprunaleg eða eins og upprunaleg og þá úr eins efnum.
5. HJÓLBARÐAR OG FELGUR
HJÓLBARÐAR
Öll viðurkennd götudekk leyfð sem eru með löglegan stimpil það er DOT eða sambærilegan sem viðurkenndur er af skoðunarstöðum og tæknimönnum KK. Stærð dekkja má ekki vera meiri en 30 X 12,5. FELGUR: Allar gerðir af felgum leyfðar. Minnsta stærð á felgum 13" nema að bíllinn hafi komið á minni felgum frá framleiðanda.
BODDÝSTÁL
Allt í ökumanns og farþegarými verður að vera upprunalegt eða eins og upprunalegt og þá úr eins efni og framleiðandi notaði. Það sama á við um ál. Magnesíum er bannað.
KLÆÐNING
Allir bílar skulu vera með fulla innréttingu í keppni.
YFIRBYGGING
Allir bílar skulu vera með yfirbyggingu eins og þeir komu með úr verksmiðju og úr sömu efnum. Trefjaplast vélarhlíf leyfð. Trefjaplast bretti eru leyfð að framan. Trefjaplast samstæður bannaðar. Að öðru leyti en að framan verður yfirbygging að vera ú sömu efnum og komu frá viðkomandi framleiðanda. Bannað er að klippa úr yfirbyggingu hvort sem um er að ræða tvöföldun eða eitthvað annað.
BRETTI
Allir bílar verða að vera með samskonar bretti og þeir komu með úr verksmiðju. Innribretti verða að upprunalega lögun og vera úr sömu efnum og original. Ekki er leyft að klippa úr létta eða breyta innribrettum á nokkurn hátt nema til að koma fyrir pústflækjum og má þá ekki klippa meira en svo að brún brettis má ekki vera meira en 15mm frá ystu brún röra. Bannað er að klippa úr eða breyta hjólskálum að aftan á nokkurn hátt, þær má þó styrkja.
GÓLF
Upprunalegt gólf eða gólf sem lítur út sem upprunalegt og er úr eins efnum og upprunalegt skylda.
GÖTUAKSTURSBÚNAÐUR: Allur götuakstursbúnaður sem skyldugur er skv.reglum um gerð og búnað ökutækja á Íslandi er skylda í keppni. Meða götuakstursbúnaði er verið að tala um virkar þurrkur, miðstöð, rúðu upphalara, ljós, hurðalæsingar o.s.f.
RÚÐUR
Allar rúður verða að vera úr gleri eins og upprunalega. Allar rúður skulu annars vera úr öryggis gleri.
-
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?topic=27936.0 Varð þessi tillaga hér ekki að lögum á aðalfundi KK 2008 ? Finn ekkert yfir þetta á forsíðu.
-
Jú rétt hjá þér Kristján,spurning hvernig málið liggur fyrst önnur/ný nefnd var ekki skipuð,en ég ákvað að setja inn mína tillögu fyrst það er óskað eftir því að tillögum sé skilað inn.
Ég held ég skilji hvað þú ert að fara, að það er ekki hægt að breyta reglum nú fyrst það er engin reglunefnd.
-
Reglugerðarnefnd var sett til 2ja ára.
Nefndin er bara búinn að starfa í 1 ár og er að hefja seinna árið.
Eftir því sem ég best veit þá hafa nefndinni ekki borist neinar tillögur um breitingar og nefndin ekki sjálf komið með neinar tillögur um breytingar.
Fyrsta starfsárið var í fyrra og ættu menn að muna eftir því sérstaklega þar sem einn ónefndur nefndarmaður sagði sig úr nefndinni í fyrra rétt fyrir aðalfund vegna ágreinings.
-
Hefur þessi nefnd ekki verið algjörlega óvirk síðan í fyrra?

Getur vel verið að nefndin hafi ekki verið með vikulega fundi yfir lagabreytingum á flokkum.
Hins vegar eru allir þessir aðilar virkir meðlimir þessa klúbbs og vita nákvæmlega hvað félagsmenn vilja og hvað ekki.
Það gæti verið að þessari nefnd hafi ekki fundist þurfa að breyta flokkum eins og félagsmönnum, allavega miðað við hve fáar tillögur til lagabreytinga sáust hér á spjallinu.
-
Tja það er ekkert sem segir að það verði að breyta reglunum ár hvert.
-
Hefur þessi nefnd ekki verið algjörlega óvirk síðan í fyrra?
Getur vel verið að nefndin hafi ekki verið með vikulega fundi yfir lagabreytingum á flokkum.
Hins vegar eru allir þessir aðilar virkir meðlimir þessa klúbbs og vita nákvæmlega hvað félagsmenn vilja og hvað ekki.
Það gæti verið að þessari nefnd hafi ekki fundist þurfa að breyta flokkum eins og félagsmönnum, allavega miðað við hve fáar tillögur til lagabreytinga sáust hér á spjallinu.
Ég held að þeir hafi bara ekki haft einn einasta fund síðan eftir aðalfund í fyrra.
-
Reglugerðarnefnd var sett til 2ja ára.
Nefndin er bara búinn að starfa í 1 ár og er að hefja seinna árið.
Eftir því sem ég best veit þá hafa nefndinni ekki borist neinar tillögur um breitingar og nefndin ekki sjálf komið með neinar tillögur um breytingar.
Fyrsta starfsárið var í fyrra og ættu menn að muna eftir því sérstaklega þar sem einn ónefndur nefndarmaður sagði sig úr nefndinni í fyrra rétt fyrir aðalfund vegna ágreinings.
Nefndin er búinn að vera 2 ár er það ekki,þó þeir hafi ekki komið með neitt 2008 þá þetta kosið 2008?
-
ÚTBLÁSTURSKERFI
Útblásturskerfi verður að vera til staðar í bílum í keppni samkvæmt reglum um gerð og búnað ökutækja á Íslandi. Kerfið má ekki beinast að vagni eða dekkjum , og vera tilbúið til skoðunar hjá viðurkenndri skoðunar stöð hvenær sem þurfa þykir. Hámarks sverleiki röra er 4".
það er leifilegt og skoðunarhæft að vera með sílsapúst ef það er það sem þúr ert að meina

Ef að þeir hafa verið kosnir inn á aðalfundi 2008 þá er komið 1 ár á aðalfundi 2009, 2 ár eru þá á aðalfundi 2010.
Þannig að þessi reglunefnd ætti að vera ennþá starfandi. Það sem ég vildi hafa sagt í fyrri þræði er að þeir eru að LJÚKA seinna árinu.
-
ÚTBLÁSTURSKERFI
Útblásturskerfi verður að vera til staðar í bílum í keppni samkvæmt reglum um gerð og búnað ökutækja á Íslandi. Kerfið má ekki beinast að vagni eða dekkjum , og vera tilbúið til skoðunar hjá viðurkenndri skoðunar stöð hvenær sem þurfa þykir. Hámarks sverleiki röra er 4".
það er leifilegt og skoðunarhæft að vera með sílsapúst ef það er það sem þúr ert að meina
en sílsapúst má ekki beinast upp að bílnum né upp að dekkinu... það þarf að blása beint útfrá bílnum eða beint niður í jörðu
-
Við vorum tvö ár í reglunefndinni. því lauk í fyrra.
-
ÚTBLÁSTURSKERFI
Útblásturskerfi verður að vera til staðar í bílum í keppni samkvæmt reglum um gerð og búnað ökutækja á Íslandi. Kerfið má ekki beinast að vagni eða dekkjum , og vera tilbúið til skoðunar hjá viðurkenndri skoðunar stöð hvenær sem þurfa þykir. Hámarks sverleiki röra er 4".
það er leifilegt og skoðunarhæft að vera með sílsapúst ef það er það sem þúr ert að meina
Þetta er bara óbreytt eins og það hefur verið til margra ára.
-
Fyrsta starfsárið var í fyrra og ættu menn að muna eftir því sérstaklega þar sem einn ónefndur nefndarmaður sagði sig úr nefndinni í fyrra rétt fyrir aðalfund vegna ágreinings.
Fyrsta starfsárið var 2007 held ég,þeir voru aldrei kosnir heldur skipaðir af stjórn KK, upprunalega tillagan um reglunefnd kemur inn 2007 og svo 2008 kemur þessi breyting inn sem Kristján vísar í.
Þannig að frá og með 2009 hefur ekki verið nein reglunefnd.
-
Ég man ekki til þess að það hafi verið nein reglunefnd 2007.
Getur verið að minnið mitt sé gloppótt en mig minnir endilega að þessi reglunefnd hafi verið sett á 2008
Gæti vel verið að hún hafi farið í gang mjög seint á árinu 2007.
Minnið í mér segir að reglunefnd hafi bara skilað einhverju frá sér fyrir aðalfund 2009.
Endilega leiðréttið mig ef ég er að bulla og þá endilega komið með eitthvað áreiðanlegt.
-
Reglunefndin sem ég sat hóf störf 2007 og skilaði þá auðu vegna ágreinings, fyrir aðalfund 2008.
reglunefndin skilaði tillögum inn eftir starf 2008 fyrir aðalfundinn sem var haldinn 2009 ágreiningslaus en manni færri, af sömu ástæðum og frá árinu áður.
reglunefnd hefur ekki að mér vitandi verið sett saman af stjórn fyrir árið 2009 sem hefði átt að skila inn tillögum núna 2010.