Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: Kristján Skjóldal on July 05, 2008, 10:30:40

Title: Keppni 2
Post by: Kristján Skjóldal on July 05, 2008, 10:30:40
jæja bara vika í næstu mílu #-o
Title: Re: Keppni 2
Post by: Hera on July 06, 2008, 00:11:31
 \:D/  jú jú  bara vona að það verði ekki jafn hvasst og síðast

Title: Re: Keppni 2
Post by: Oddster on July 07, 2008, 14:08:58
bara biðjum til veðurguðanna fyrir sól og blíðveðri  [-o<
Title: Re: Keppni 2
Post by: burger on July 07, 2008, 15:59:13
sammála leiðilegt vedur seinast annars ætla ég að prufa að keppa eftir 2 vikur á nödruni í mod flokknum " pata negra 70" eitt af þeim allöflugustu  :lol:
Title: Re: Keppni 2
Post by: Ravenwing on July 07, 2008, 21:11:32
ég sé ekki betur á spánni en þeir segi lítilsháttar rigning, 5 m/sec vindur og 10 stiga hiti...vonum það rætist ekki hjá þeim með regnið allavegana.
Title: Re: Keppni 2
Post by: Kristján Skjóldal on July 07, 2008, 22:30:46
það er nú bara mánudagur :D og veðurspá á þessu skeri ekki að gera sig nema 1 dag í einu ekki satt [-( :D
Title: Re: Keppni 2
Post by: SnorriVK on July 08, 2008, 00:20:08
http://www.yr.no/stad/Island/Gullbringusysla/Straumsv%c3%adk/langtidsvarsel.html
Title: Re: Keppni 2
Post by: Kimii on July 08, 2008, 00:25:59
samkvæmt belgingum á að vera 12°C, þurt og 2.5 - 5 metrar á sek  \:D/

Kveðja Jóakim Veðurfræðingur
Title: Re: Keppni 2
Post by: Kristján Skjóldal on July 11, 2008, 09:12:55
Jæja ekki lítur þetta vel út með veður :evil: en ef veður spá er svona í hádeigi í dag er þá ekki ráð að fresta þessu þar sem sunudagur er en verri :?: :?:  :cry:
http://www.belgingur.is/
Title: Re: Keppni 2
Post by: Kimii on July 11, 2008, 10:21:45
það á að koma gusa um 3 leytið samkvæmt þeim  :mad:  vonum bara að það tefjist til 5
Title: Re: Keppni 2
Post by: Einar K. Möller on July 11, 2008, 14:12:32
Vedur.is

Update kl.22:35:
Hæg suðvestlæg átt og skýjað, en dálítil súld V-lands og sums staðar þokubakkar úit við sjóinn. Vaxandi suðaustanátt á morgun, 10-15 m/s og rigning síðdegis, fyrst SV-lands. Hægari SV-lands um kvöldið. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast NA-lands.

Belgingur spáir rigningu frá 9 um morgunginn og frameftir degi.

Weather.com spáir bara mígandi rigningu
Title: Re: Keppni 2
Post by: Einar K. Möller on July 11, 2008, 20:11:31
Það er bara að aukast við þessa rigningarspá fyrir morgundaginn. Held að það sé ráð að fresta þessu.
Title: Re: Keppni 2
Post by: Kiddi on July 11, 2008, 20:37:37
Held að það sé ráð að fresta þessu.

Það væri skynsamleg ákvörðun.
Title: Re: Keppni 2
Post by: 1965 Chevy II on July 11, 2008, 20:39:41
Sammála,helvíti hart fyrir dreifbílistútturnar að dröslast í bæinn með allt havaríið upp á von og óvon.
Title: Re: Keppni 2
Post by: Anton Ólafsson on July 11, 2008, 20:57:50
Sammála,helvíti hart fyrir dreifbílistútturnar að dröslast í bæinn með allt havaríið upp á von og óvon.

Verður tekinn einhver ákvörðun í kvöld?
Eða á bara að stóla á þetta??

Spurning hvort maður eigi að stilla vekjaraklukkuna á eftir eða ekki.

Title: Re: Keppni 2
Post by: 1965 Chevy II on July 11, 2008, 22:56:22
Stjórnin ræður þessu væntalega.
Title: Re: Keppni 2
Post by: bæzi on July 11, 2008, 23:54:36
Stjórnin ræður þessu væntalega.

sjáumst vonandi hressir á morgun , á skraufaþurru malbiki.....

kv bæzi
Title: Re: Keppni 2
Post by: SheDevil on July 12, 2008, 00:30:12
Verður keyrt eða ekki ?
Er einhver dagskrá einhverstaðar ?
Klukkan hvað á að mæta ?
Er ekki að finna neitt info neinstaðar, er ég að fara að leggja af stað utan af landi eða ekki ?


kv. Árdís
Title: Re: Keppni 2
Post by: Einar K. Möller on July 12, 2008, 00:32:44
Ég er hættur að spá í þessu og ætla bara að sofa út.

Nenni ekki að rífa mig og dóttur mína á fætur kl. 7 í fyrramálið, ræsa vinina, redda flutningi og mæta svo kannski í rigningu.

En fyrst ekki er búið að blása þetta af núna þá reikna ég ekki með öðru en að keppnin verði keyrð.
Title: Re: Keppni 2
Post by: Gixxer1 on July 12, 2008, 00:35:48
Með tímasetningu þá las ég einhversstaðar ''mæting 9 pittur lokar kl 10. Þeir sem mæta eftir það fá ekki að vera með''

Bjössi S
Title: Re: Keppni 2
Post by: Einar K. Möller on July 12, 2008, 00:37:27
Já... það stemmir... og skiptir ekki máli fyrir þá sem ætla að sofa út og vera ekki með.
Title: Re: Keppni 2
Post by: Valli Djöfull on July 12, 2008, 00:43:30
Það er náttúrulega frekar erfitt að blása þetta af núna, menn komnir utan að landi og allt :)

Við reynum..  Og vonum það besta.. 8-)
Title: Re: Keppni 2
Post by: 1966 Charger on July 12, 2008, 07:50:24
Jæja.... segið okkur sveitavörgunum NÚNA hver staðan er með keppnina
Title: Re: Keppni 2
Post by: Kiddi J on July 12, 2008, 08:02:47
Sæll Raggi,

Það er blautt hérna fyrir utan hjá mér í Hafnarfirðinum en þó þurkublettir. Ætla að hringja í Davíð og spyrja.

Title: Re: Keppni 2
Post by: Valli Djöfull on July 12, 2008, 08:10:46
Spáin versnaði í nótt  :???:
Title: Re: Keppni 2
Post by: 1966 Charger on July 12, 2008, 08:14:59

Takk fyrir uppl. Kiddi vonandi nærðu á formanninum.
Hver er annars keppnisstjóri og hvert er númerið hans? 
Title: Re: Keppni 2
Post by: Kiddi J on July 12, 2008, 08:26:17
EKki málið, Davíð var á leiðinni upp á braut þegar ég hringdi, er að bíða eftir símtali.

Posta in um leið og hann hringir.
Title: Re: Keppni 2
Post by: Valli Djöfull on July 12, 2008, 08:30:04
Davíð hringdi, brautin er blaut, þokubakkar og rigning við hlíðina og í kef city.  Búnar að koma dembur í morgun greinilega því það eru pollar á brautinni.

Hann bað mig að koma því til skila að það væri ekki hægt að keyra í dag.

kv.
Valli
Title: Re: Keppni 2
Post by: Danni Málari on July 12, 2008, 08:49:16
Leiðinlegt að heyra, maður sleppti þá djamminu í gærkvöldi útaf engu.

Hvenær verður tekin ákvörðun um morgundaginn?
Title: Re: Keppni 2
Post by: Valli Djöfull on July 12, 2008, 08:55:14
Mér sýnist í fljótu bragði morgundagurinn ekkert vera fallegri í spám.
Title: Re: Keppni 2
Post by: Daníel Már on July 12, 2008, 08:56:51
fresta framá morgun ef það er gott veður?
Title: Re: Keppni 2
Post by: Gústaf Jóhannsson on July 12, 2008, 09:56:28
Þetta er hrikalegt.Stjórnin verður að taka ákvörðun á föstudegi hvort það verður keppni eða ekki.Veðurspáin sýndi bara rigningu og það stenst.Við sem erum úti á landi erum að keyra 1000 km til að komast á keppni.Sem er svo ekki haldin.Það var hlægilegt að lesa hér á spjallinu þegar Bíladagar voru þá voru menn að væla yfir háu bensínverði og hvað það væri dýrt að koma norður.Það er bara einn atburður en við sem keppum í kvartmílu þurfum alltaf að koma suður upp á von og óvon.Og Bíladögum er ekki frestað vegna veðurs. Það eru menn utanaf landi sem eru að taka þátt í þessu sporti sem er frábært en það er dálítill munur hvort menn séu 1/2 tíma upp á braut eða aka í 5 klukkutíma og eiga eftir að fara heim aftur.Annars vil ég þakka það sem hefur verið gert við brautina og umhverfi hennar núna,þetta er frábært og eiga menn heiður skilið.
Title: Re: Keppni 2
Post by: Gústaf Jóhannsson on July 12, 2008, 10:13:09
Varðandi þetta með að fresta keppninni í bili.Er það fram á morgundaginn eða næstu helgi? Það eru menn að norðan upp á braut og bíða eftir að vita hvort þeir eiga að gista aðra nótt eða hvort þeir getið ekið heim í dag. Það verður að taka ákvörðun og standa við hana.
Title: Re: Keppni 2
Post by: SheDevil on July 12, 2008, 12:05:34
Varðandi þetta með að fresta keppninni í bili.Er það fram á morgundaginn eða næstu helgi? Það eru menn að norðan upp á braut og bíða eftir að vita hvort þeir eiga að gista aðra nótt eða hvort þeir getið ekið heim í dag. Það verður að taka ákvörðun og standa við hana.


Það eru nú fleiri en menn uppá braut utan af landi sem eru að bíða í von og óvon með að heyra eitthvað, ég spurði seint í gærkvöld hvort að það yrði keyrt og hvort ég ætti að keyra utan af landi og er komin í rvk um miðja nóttina, því að menn ætla að keyra. Svo eftir stuttann lúr vakna ég við þær fréttir AÐ LOKSINS KL 8.30 ER HÆTT VIÐ AÐ KEYRA. Þetta er álíka frábært og síðasta æfing. Verður keyrt á morgun, eða næstu helgi ? Ætti ég kanski að sóa deginum bara í að hinkra ?
Title: Re: Keppni 2
Post by: Einar K. Möller on July 12, 2008, 12:10:43
Ahhh...mikið var gott að sofa bara út....

I told you so  :wink:
Title: Re: Keppni 2
Post by: SheDevil on July 12, 2008, 12:26:54
Verður hægt að fá einhver svör fyrir kvöldmatarleitið ?
Title: Re: Keppni 2
Post by: Einar K. Möller on July 12, 2008, 12:36:09
Ég hugsa að það verði ekki reynt að keyra í dag, pottþétt ekki á morgun og þá er næsta keppni eftir hálfan mánuð.
Title: Re: Keppni 2
Post by: SheDevil on July 12, 2008, 12:40:53
Verða þá ekki bara endurgreidd keppnisgjöldin eða hvað ?
Title: Re: Keppni 2
Post by: 1966 Charger on July 12, 2008, 12:46:30
Það væri mjög gott ef að keppnisstjórn léti vita á þessum þræði hvaða hugmyndir hún hefur um morgundaginn.  Allar veðurspár benda á rigningu.  Ef keppni morgundagsins verður aflýst núna þá kemur það sér jafnvel vel fyrir suma keppendur sem geta þá látið önnur plön um helgina rætast.

Góðar stundir

Ragnar
Title: Re: Keppni 2
Post by: Valli Djöfull on July 12, 2008, 13:08:28
Þetta er eitt af því sem er verst við að vera í stjórn.  Spáin var tæp, en leit samt út í gær eins og þetta gæti hugsanlega sloppið.  Ef þeir hefðu frestað keppni hefðu margir hér orðið snargeðveikir í skapinu ef það hefði ekki byrjað að rigna fyrr en 15-17 eins og þetta leit út á tímabili í gær.

Svo það í raun skipti engu máli hvað stjórn sagði, hvort keppni var frestað eða ekki, það hefði hvort eð er einhver orðið pirraður og drullað yfir stjórn :)

Það var mikil pressa á stjórn að reyna að halda þessa keppni því það er sandur næstu helgi og önnur keppni eftir 2 vikur.  Svo kemur verslunamanna helgi og keppni 5 eftir það.

Það er nú þegar búið að fresta fyrstu keppni vegna framkvæmda svo í dag er staðan þannig að það eru 2 keppnir sem verður ekki búið að geta haldið um miðjan Ágúst.  Svo auðvitað skipti gríðarlegu máli að reyna eins og hægt var að halda þessa keppni.

Anyhow, á svona stundum er ég feginn að vera ekki lengur í stjórn og þurfa að hlusta á svona rugl :)
Title: Re: Keppni 2
Post by: SheDevil on July 12, 2008, 13:14:14
Það á aldrei að taka hlutum persónulega Valli, þú hefðir ekkert átt að segja þig úr stjórn bara halda áfram og gefa skít í það þegar fólk er að rífast.
Það eru alltaf ósætti um hitt og þetta og það bitnar alltaf á stjórn og staffi, það er bara þannig. Mér finnst amk bölvað að þú hafir sagt þig úr þessu því ég hef fulla trú á að þú hafir orku vilja og getu í að gera betur og bæta hlutina eftir fremsta megni. Og ég veit að það er þreytandi að hlusta á stanslaust tuð  :mrgreen:
Title: Re: Keppni 2
Post by: Valli Djöfull on July 12, 2008, 13:18:09
Þetta er bara svolítið oft svona hér á bæ.

Auðvitað er mesta stressið fyrir svona frestarnir fólkið sem þarf að koma utan að landi.  Það er það sem menn hugsa mest um þegar kemur að svona veseni eins og frestun.

En hins vegar svona í stað þess að pirrast yfir þessu, hvernig er best að gera þetta næst?  Það væri nær að ræða það held ég :)

Að ykkar mati, spáin tæp á föstudegi í hádegi, hugsanlega rigning seinnipart en erfitt að segja, auðvitað gæti rigningin komið fyrr..

Fresta eða keyra?

Svo verður geggjað flott veður alveg til 17:00 á laugardegi, skammir eða allir sammála um að þetta hefði verið rétt ákvörðun? :)

Þegar það er rigning í kortum tapar stjórn alltaf.
Title: Re: Keppni 2
Post by: 1966 Charger on July 12, 2008, 13:39:50
Anyhow, á svona stundum er ég feginn að vera ekki lengur í stjórn og þurfa að hlusta á svona rugl :)

Valli

Hér er enginn að rugla.
Keppendur eru að biðja um upplýsingar frá KK varðandi keppnina vegna þess að KK hefur því miður ekki frumkvæði af að gefa slíkar upplýsingar. Allar ákvarðanir um keppnishald m.t.t veðurs eru skynsamlegar Á ÞEIM TÍMAPUNKTI sem þær eru teknar og það er tilgangslaust að væla um hana eftir á.  En þegar veðurfarið og spáin er eins og núna þá væri nú gott ef keppnisstjórnin skrifaði okkur sem bíðum með hjálminn á hausnum úti í bílskúr eitthvað si svona:  "Klukkan X verður ákveðið hvort keppni verður haldin á morgun og ákvörðunin verður skrifuð inn á þennan þráð." 


Góðar og óruglaðar stundir

Ragnar
Title: Re: Keppni 2
Post by: Valli Djöfull on July 12, 2008, 13:48:51
Þar er ég reyndar sammála.  Gott að hafa það á bakvið eyrað næst þegar svona staða kemur upp.  Gefa upp tímasetningar sem tilkynnt verður um breytingar á.

Góður punktur :)

kv.
Valli
Title: Re: Keppni 2
Post by: stigurh on July 12, 2008, 13:54:50
Aumingja LITLU börnin, sem hefðu getað gert svo margt annað skemmtilegt !   Djö ég hefði átt, getað, gert eitthvað annað MJÖG merkilegt ef.... 

Svona er lífið stundum, no race !

Væll er þetta mar, fullt af loftbelgjum í þessum klúbbi sem vilja bara fá allt eins og í leikriti.

Farið með æðruleysisbænina og sjá, kannski líður ykkur betur á eftir. Svo má líka kíkja á myndir

http://www.123.is/stigurh

stigurh



Title: Re: Keppni 2
Post by: Saleen S351 on July 12, 2008, 13:58:59
Aumingja LITLU börnin, sem hefðu getað gert svo margt annað skemmtilegt !   Djö ég hefði átt, getað, gert eitthvað annað MJÖG merkilegt ef.... 

Svona er lífið stundum, no race !

Væll er þetta mar, fullt af loftbelgjum í þessum klúbbi sem vilja bara fá allt eins og í leikriti.

Farið með æðruleysisbænina og sjá, kannski líður ykkur betur á eftir. Svo má líka kíkja á myndir

http://www.123.is/stigurh

stigurh



Þurftir þú að keyra frá Akureyri eins og ég, Stjáni og Gunni ?..  En auðvitað skiptir það engu máli.. við hefðum bara, getað, eða gert eh annað  :roll: en maður er greinilega loftbelgur með því að hafa viljað vita eh áður en að ég lagði af stað
Title: Re: Keppni 2
Post by: SheDevil on July 12, 2008, 14:04:52
Aumingja LITLU börnin, sem hefðu getað gert svo margt annað skemmtilegt !   Djö ég hefði átt, getað, gert eitthvað annað MJÖG merkilegt ef.... 

Svona er lífið stundum, no race !

Væll er þetta mar, fullt af loftbelgjum í þessum klúbbi sem vilja bara fá allt eins og í leikriti.

Farið með æðruleysisbænina og sjá, kannski líður ykkur betur á eftir. Svo má líka kíkja á myndir

http://www.123.is/stigurh

stigurh






 :roll:
Title: Re: Keppni 2
Post by: 1966 Charger on July 12, 2008, 14:18:04
Einn þekki ég STÓRAN stíg
sem þekkir ei til rauna.
Og svo veit ég og ekki lýg
að hann kann líka að hrauna.

Verum þrautgóð á raunastund  :)

Ragnar
Title: Re: Keppni 2
Post by: Valli Djöfull on July 12, 2008, 14:22:13
Ok, en svarið samt pælingunni minni, EF spáin er tæp, á að fresta í hádegi á föstudag eða ekki?

Samkvæmt mörgum spám átti þetta svæði að sleppa, vedur.is meðal annars..
Það átti að rigna en HFJ átti að sleppa samkvæmt vedur.is, þetta átti að vera meira útá sjó og nær fjallgarðinum.  Svo sagði belgingur.is að rigningin kæmi, en ekki fyrr en 15:00

Svo spurningin mín er, ef það er einhver sjens að keyra, á þá að fresta?  Og ef spáin var pottþétt rigning eins og einhverjir hér segja, af hverju voruð þið þá að mæta á svæðið?
Af því að það var smá sjens að það yrði hægt að keyra keppni býst ég við? :)

Það fóru líka MARGAR vinnustundir í að koma tímaskiltum í gang í vikunni.  Það var gert því við vorum einnig að vonast til að þetta myndi sleppa til.  Annars hefðum við ekki verið að hanga þarna langt fram á nætur nokkra daga í röð í miðri vinnuviku :)

Þetta var reynt, tókst ekki, það er ekki stjórn að kenna að það rigndi þó það sé auðvelt að benda á þá og kenna þeim um.

Um miðnætti í gær hafði spáin nánast ekkert breyst.  Hún var enn tæp..  Við höfum keyrt svoleiðis hundrað sinnum áður en sloppið svo auðvitað var það þess virði að reyna.  Man einhver eftir síðustu keppninni í fyrra?  Ef við hefðum fengið 20 mín til hálftíma þurrk í viðbót hefði keppnin sloppið þó það hafi hangið yfir okkur rigningarspá allan daginn..:)

Ég veit að það er gríðarlegur kostnaður í þessu hjá mörgum, ekki bara fólki sem kemur utan að landi þó það sé jú meiri bensínkostnaður og tími sem fer í að ferðast á milli.  Þá eru líka flestir aðrir hér búnir að ráðstafa helgum sínum og tíma í kringum keppnirnar.  Og meira að segja veit ég um 1-2 starfsmenn í sjálfboðavinnu hjá KK sem sögðu upp helgarvinnunni sinni til að vera pottþétt lausir á keppnum  :wink:

Það eru allir að fórna í þetta, og þetta kostar okkur öll peninga.

Svona eftirá finnst mér að þetta hafi alveg verið tilraunarinnar virði þó það sé dýrt fyrir marga.  Við gátum ekki byrjað nógu snemma í ár vegna framkvæmda svo við erum komnir í tímaþröng.  Vonandi náum við allavega 4 keppnum í ár.  Og helst 5, en það eru bara 2 eftir eins og staðan er í dag..

Ég er alls ekki að reyna að dissa neinn eða búa til vesen.  Við búum bara á íslandi og þar verðum við að taka svona áhættur.  Það hefði þess vegna geta komið snjókoma  :lol:

kv.
Valli


EF spáin er tæp, á að fresta í hádegi á föstudag eða ekki?
Title: Re: Keppni 2
Post by: Gústaf Jóhannsson on July 12, 2008, 14:27:43
Það er gott að þessi umræða sé til að menn sjái mismunandi sjónarmið. Ef það eru einhverjar líkur á að fresta þurfi keppni,þá þarf að gera það í tíma.Hvort það sé um hádegi eða kvöldmat á föstudegi skiftir kannski ekki máli,bara að það sé nógur fyrirvari.Það þarf að ræða þetta og ákveða tíma sem menn geta sætt sig við. :D Við búum á Íslandi þar sem veðrið breytist stöðugt en kl 4 eða 5 á föstud, er kominn nokkuð raunsæ spá.Ég vona að menn verði ekki með eithvert skítkast út stjórnina heldur að ræða þetta og koma kvartmílunni upp í þann standard sem við viljum hafa.Það er ekki gott að þú sért að hætta í stjórn Valli,þú hefur verið harðduglegur og þetta er mikil vinna. =D> Þökk fyrir það sem komið er og gerum gott betra
Title: Re: Keppni 2
Post by: baldur on July 12, 2008, 15:51:20
Svona var þetta orðið flott í gærkvöldi. Verst að við fengum ekki að njóta þess í dag.
(http://www.foo.is/albums/kvartmila/IMG_3562.sized.jpg)
Title: Re: Keppni 2
Post by: Hera on July 12, 2008, 16:24:52
Flott strákar þið eruð æðislegir að nenna að vinna alla þessa vinnu langt fram á kvöld =D>

Sorglegt með veðrið og allt það en við fáum bara að njóta þessara framfara í næstu keppni  :wink:

Title: Re: Keppni 2
Post by: 1965 Chevy II on July 12, 2008, 17:24:48
Geggjað Baldur,þið eigið skilið slatta af Thule.Þetta er algjör bylting fyrir sportið =D>
Title: Re: Keppni 2
Post by: Harry þór on July 12, 2008, 17:35:47
Sæl öll. Ég tek undir það að upplýsingaflæði þarf að vera meira,í morgun þurfti að leita að frestun. Spáin í gær var ekki afgerandi rigning fyrr en  ca kl 17 í dag. Það verður aldrei hægt að gera öllum til hæfis og ég hef fulla samúð með norðan mönnum , en svona er þetta bara.  #-o

Við verðum bara að vera dugleg að nota æfingar . Svo væri líka hægt að flauta á keppni kl 16 , þegar sólin kemur næst.

Er ekki bara málið að flytja til Race Town , stutt á brautina.  8-)

Til hamingju með ljósin - Baldur - Valli - Jón Bjarni . :-({|=
mbk Harry
Title: Re: Keppni 2
Post by: Anton Ólafsson on July 12, 2008, 21:48:08
Það rignir í reykjarvík
þó veðurspáinn væri engu lík,
Glampandi sól og hitastigið hátt
En þetta var bara veðurspá!!!

Svo hann rignir enn af fullum krafti í Reykjarvík
Title: Re: Keppni 2
Post by: Kristján Skjóldal on July 12, 2008, 22:29:57
já ég kom með skipi norð :smt016
Title: Re: Keppni 2
Post by: Gretar Franksson. on July 13, 2008, 16:34:21
Sælir, þetta veður vandamál hefur fylgt okkur KK mönnnum alla tíð. Langar mig að segja frá hvernig þetta hefur verið undanfarin 15 ár. Aðalreglan hefur verið sú að reyna að standa við auglýsta keppni þá helgina. Veðurspár hafa ekki verið nægilega öruggar þannig ákvörðun um að fresta keppni var stundum tekin um morgun á keppnisdag eða jafnvel um hádegið.

Stundum var hægt að halda keppnina upp úr kl. 15 og það gekk upp. Stundum varð að fresta keppni sem þegar var byrjuð vegna rigningar til næsta dags eða um viku eða lengur.

Eitt árið (minnir að hafi verið 2003) var tekið upp á því að aflýsa keppni eftir veðurspá. Það gekk ekki alveg upp þar sem rigningin kom ekki alltaf á þeim tíma sem spáð var. Þannig hægt hefði verið að halda keppni sem var aflýst.

Sumarið okkar er stutt og erfitt getur verið að halda 5 keppnir. Mín skoðun er því sú að reyna skuli að halda keppni í lengstu lög og reyna að standa við dagsetningu keppninar. Einnig vegna þess að keppendur eru etv búnir að taka frá þessa helgi til að keppa. (og kanski taka frá næstu helgi til að fara í bústaðin með fjölskyldunni)

Tel að rétt hafi verið að verki staðið hjá ykkur Valli og einnig það að þið hafið lausa keppnistíma í ágúst fyrir þær keppnir sem færast aftur fyrir.
Kv. Gretar F



Title: Re: Keppni 2
Post by: 1966 Charger on July 14, 2008, 00:53:08
Kvartmílubræður og systur,

Að mínu mati snýst umræðan hér um tvennt.  Annarsvegar hvenær á að fresta keppni, sem er oft erfitt að meta, og hinsvegar um of litla upplýsingagjöf frá KK um áform um keppnishald.

1.  Í ljósi þess að aðeins var búið að halda eina keppni þá þótti mér skynsamlegt af keppnisstjórn að aflýsa ekki laugardagskeppninni á föstudaginn þrátt fyrir tvísýna verðurspá á föstud.  Þarna tók keppnisstjórn sjens sem var áhættunnar virði.

2.  Aflýsing laugardagskeppninnar hefði þó mátt koma fyrr á laugardagsmorguninn en 8:30 vegna þess að þá var augljóslega orðið blautt og veðurútilit vott og sumir keppendur sem búa ekki á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu þurfa að leggja snemma af stað til að geta mætt á brautina innan þess frests sem KK gefur (kl. 10:00).

3.  Ef keppendur eru með dónaskap við keppnisstjórn vegna ákvarðana hennar um frestun keppni á einfaldlega að vísa þeim frá keppni.  Ákvörðun um frestun verður alltaf byggð á þeirri veðurspá sem til er á þeim tíma sem ákvörðunin er tekin og verður því að teljast skynsamleg á því augnabliki sem hún er tekin.

4.  Ef svipuð veðurspá fer saman við aðrar keppnir í sumar þá væri mjög gott ef keppnisstjórn léti okkur öll vita reglulega hvernig áform um keppni standa með því að skrifa hér á vefsíðuna t.d. "Áform um keppni standa enn,en verða endurskoðuð kl. X. og upplýst hér."  Með þessu móti yrðum við upplýstari og keppnisstjórnin lausari við símafyrirspurnir um frestun.

Vonandi Stíg ég ekki á skott neins með þessum ábendingum.

Góðar stundir

Ragnar