Sælir/Sælar
Nú er það svo að bílarnir og hjólin tilheyra sitthvoru batterínu í kerfinu, þe hjólin tilheyra MSÍ og bílarnir LÍA, þannig að samræming keppnisskilyrða þarf að fara fyrir sameiginlegan fund beggja.
Endanleg tilhögun keppnisregla verður að fara fyrir og vera samþykkt af götuhjólanefnd MSÍ sem leggur svo tillögur fyrir stjórn MSÍ sem svo samþykkir þær í framhaldinu, og ætla má þar af leiðandi að það sé verkefni stjórnar MSÍ að funda með LÍA til að ganga samræmingu fyrirkomulags keppna.
Í gangi er vinna við að afla upplýsinga um þær reglur sem gilda á nágrannalöndunum um hjóla kvartmílu, bæði í klúbba-og landskeppnum og mun götuhjólanefnd leggja þær fram hér til samanburðar um leið og öll gögn hafa borist.(svolítil "Jóhanna" í þessu:
Ég vona að keppendur túlki ekki þetta innlegg á þann veg að götuhjólanefnd ætli sér að ganga sinn veg að hætti ríkisstjórnarinnar, heldur er stefnan að sjáfsögðu sú að leitast við að styrkja og efla sportið.
Unnar bað mig að koma með tillögur að flokkaskipun eftir minn síðasta póst og muna þær birtast eftir að þau gögn sem beðið er eftir hafa skilað sér.
Bestu kveðjur
Asi J