Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Topics - Durgur91

Pages: [1] 2
1
Varahlutir Til Sölu / snilldar græjupakki til sölu
« on: January 14, 2015, 19:06:49 »
ég er með þrusugóða 12" Ground zero keilu í boxi sem er um 800w rms og svo audiobahn magnara sem er 1000w rms sem er ennþá ný í kassanum (keilan drap síðasta magnarann sem var 800w rms og þetta var komið úr bílnum áður en ég fékk mér annan magnara) og það er coax tengd fjarstýring fyrir magnarann og svo fylgir með þéttir annars stútar þetta snilldar tvíeyki alternatornum hjá manni...

Keilan:

Model                    GZHB 30XBT
Diameter                300 mm / 12"
Boxtype                 Basstunnel
Volume Net             45 L / 1.59 cu.ft.
Dimensions              570 x 380 x 420 (300) mm / 22.4“ x 15“ x 16.5“ (12“)
Woofer                   GZHW 30X
Power Handling        800 WRMS
Impedance              2 x 2 Ohm
Frequency response  35 - 100 Hz

Adjustable low pass filter
-
Phaseshift switch
-
Bass remote
-
High level input
-
Illumination
Plexiglas Front mit weißer LED Beleuchtung / Plexiglass front with white LED light





magnarinn:

    Monoblock Class AB Intake Series Car Amplifier
    RMS Power Rating:
        4 ohms: 500 watts x 1 chan.
        2 ohms: 1000 watts x 1 chan.
    PWM MOSFET power supply
    Large display volt meter with blue illumination
    Bass Boost on/off switch
    High gloss chrome-plated finish
    Mono channel operation
    Throughput RCA connections
    Cobalt blue illumination
    Double-Sided glass epoxy circuit board
    Air-Induction groove and air intake fan help force cooler outside air into the chassis of the amplifier and help to maintain its optimum operating temperature
    Chrome flame fan grilles for an enhanced appearance
    3-way Protection Circuitry: Thermal, Short Circuit and Overload
    Heavy duty aluminum alloy heatsink for extreme heat dissipation
    Nickel-Plated RCA level inputs
    Nickel-Plated block terminals
    Input Sensitivity: 200mV-8V
    Variable Low-Pass Filter (50-120 Hz, 18 dB/octave)
    Subsonic Filter (20-50 Hz)
    Frequency Response: 10-40,000 Hz
    THD: 0.02%
    Signal-To-Noise Ratio: >100 dB
    Dimensions: 11-7/8"L x 11-3/16"W x 2-1/8"H
    4-gauge power and ground wiring is required for installation. Contact us for information regarding a discount on select amplifier kits when purchased together with this amplifier.
    1-year Manufacturer's warranty



ein mynd af þéttinum (bláa snúran er +12v fyrir display sem sýnir voltin á kerfinu)



og svo ein mynd af fjarstýringunni:



er að selja þetta því að stuttu eftir að magnarinn fór og ég fékk annað í staðinn þá seldi ég bílinn sem þetta var í og fékk mér jeppa sem ég tímdi ekki að setja þetta í... núna á ég bíl með skottplássi en hinsvegar lítið barn líka sem kémur alltaf með þannig að ég hef ekkert við þetta að gera og er bara búið að vera niðri í rakalausri geymslu síðan

þessi pakki kostaði rúm 200þ. þegar ég keypti þetta fyrir utan snúrukitt og boxið og þéttirinn voru í bíl í ca 2 1/2 mánuð og magnarinn ennþá í kassanum þannig að mér finnst réttlætanlegt að setja á þetta 120þ.

skoða skipti á jeppa á grind eins og pajero, patrol, pathfinder eða svoleiðis má vera orðinn vel morkinn og ryðgaður svo lengi sem að vél sé í þokkalegu standi og hellst dekkjaður allavega til að geta keyrt heim, vill helst beinskipt enn skoða allt!

hafið samband í pm eða í síma 8426433 en ekki eftir 8

2
BÍLAR til sölu. / seldur með miklum söknuði
« on: November 10, 2014, 16:27:12 »
Subaru Forester
1998
Hvítur
Aflgjafi: Bensín
1994cc - 123 hestöfl
Skipting: Beinskipting
Ekinn: 247Þ. km
Skoðaður út 2015

Búnaður:

Rafmagn í rúðum
Rafmagn í speglum
Rafmagns loftnet (ofur drægni á því)
Fjarstýrðar samlæsingar
Húddhlíf
Orginal verkfærinn og tjakkur ennþá undir gólfi í skotti

Ástand:

Mjög gott lakk miðað við 16 ára gamlann bíl, nokkrar doppur hér og þar en engir stórir blettir. Það eru stráheilir sílsar og óryðgaðar hjólskálar sem er ekki algengt á subaru

Nýleg kúpling (2012) og svo var skipt um ballansstangarenda útaf endurskoðun annars flaug hann í gegn

nýlega smurður líka

innrétting fáranlega vel með farin, sæmileg dekk sem endast "löglega" séð út þennan vetur en væru svosem fín einn í viðbót

er búinn að skipta um kérti, háspennukefli og þræði en það er ennþá einhver gangtruflun við meir en 50% gjöf grunar annaðhvort bensíndælu eða síu (dæla fylgir með)

Fékk gallaða þræði, komnir aðrir og gangurinn í bílnum er allt annar.

svo er hann aðeins að smita vatni með vatnsdælunni en gerir það bara í gangi þegar hann er heitur en ekki þegar hann er stopp en hann kláraði ekki forðabúrið frá akureyri til borgarness þannig að það er ekkert stóráhyggjuefni (fylgir nánast fullur brúsi af frostlög með)

Frekari upplýsingar:

ég er bara uppiskroppa með þann tíma sem ég hef í bílinn þar sem það er barn á leiðinni hjá mér og ég þarf að klára að ganga frá íbúðinni hjá mér áður en að það kemur

mjög þéttur og góður bíll og ég á eftir að sjá mikið á eftir honum.

ef ég laga hann þá fer hann af sölu

ætla að leyfa mér að hafa hann hérna inni ef að ég fæ gott tilboð í hann þá gæti vel verið að hann fari.

Áhvílandi: 0 kr.

Skoða skipti á dýrari og ódýrari. er með tæplega 200þ. krónu græjupakka sem ég get látið með honum 12" ground zero keila og audiobahn magnari (NÝR Í KASSANUM) + þéttir (keilan var í bíl í ca 1 1/2 mánuð svo dó fyrrv. magnari nennti svo ekki að tengja þetta aftur og er búið að vera niðrí geymslu síðan)

skoða helst fjölskylduvænan station bíl eða fólksbíl með stóru skotti

Verð: fæst á 400þ. eða skipti

hafið samband í pm eða í síma 8430691 eftir 5 ég heiti þorvaldur

tek betri myndir við tækifæri hér er ein ristavélamynd



Fleiri myndir:
bara kveikt á parkinu á þessum, ekki sprungnar perur










3
BÍLAR til sölu. / "97 Suzuki Vitara stuttur á 31"
« on: January 03, 2014, 19:14:04 »
Suzuki Vitara
1997
grænn
Aflgjafi: bensín
1,6L er skráður 95hp
Skipting: beinskiptur
Ekinn 216.xxx þús. km
Búnaður:

Rafmagn í rúðum
Hiti í sætum
Loftpúðar (airbag)

Ástand:

lakkið er mjög flott á honum og lítið sem ekkert ryð, smá beigla á framstuðara og svo smábeygla á frambretti bílstjóra megin

Frekari upplýsingar:

nánast ný Kumho 31x10.5 á 15" dekkjum (keypt í nóvember)
nýbúið að skipta um tímareim og kúplingu (gert í ca 213þ. km.)
nýbúinn að taka bremsudælurnar og færslurnar alveg í gegn að framan og nýir klossar og diskar.
setti filmur í hann um daginn hjá V.I.P. mjög flott vinnubrögð

er að selja hann því að ég hef ekkert við hann að gera, keypti til að nota sem winterbeater en það snjóar ekkert uppá akranesi :mad:
hann stóð sig með prýði í jólasnjónum á akureyri í síðustu viku, trúði aldrei að svona lítið jeppi væri jafn góður. svo hef ég engann tíma fyirir jeppaferðir vegna vinnu

set á hann [COLOR="#FF0000"]350þ.[/COLOR] skoða öll tilboð og öll skipti

sími hjá mér er 8430691(svara ekki milli 07:00-16:00) og nafnið er Þorvaldur, notið hann eða pm til að hafa samband

myndir
















4
Bílar Óskast Keyptir. / Óska eftir GT Mustang eða Bronco
« on: November 13, 2013, 23:42:20 »
titill segir svosem allt, ef þetta er mustang má vera eitthvað dund og fixerí og helst ekki yngri en 2002 en ef ég fæ bílinn á frábæri verði skoða ég allt ;) , ef þetta er Bronco þarf hann að vera 66-77 eða stóri bronco og innra boddí og toppur í lagi.

hafið samband í pm eða í g-mail -- durgur91@gmail.com

skoða bara bíla sem ég fæ á góðu staðgreiðsluverði

5
Gerð : Chrysler Sebring LXI

Ekinn :180 þúsund mílur (ca. 290 þ.km) en er fluttur inn "05 í 147þ. mílum

Árgerð 1999

Vél: 2.5 v6 24 ventla (6g73 varahlutir passa úr pajero og stealth/3000gt) 167 hestöfl

Eyðsla innanbæjar er 14l utanbæjar er hann í 10.7l     hann var í 12.4l innanbæjar og í 9l utanbæjar en það er farið að dropa meðfram o-hring uppað bensínsíunni (lekur bara meðan svissað er á bílnum)

Drif: Framhjóladrifinn

Gírkassi: 41TE uldradrive Chrysler skipting 4 þrepa með o/d er í ca 2000 rpm á 60 mílum

Þyngd: 1420 kg

Aukahlutir & búnaður
- ABS hemlar, diskar að framan og aftan
- 17" Álfelgur á alltílagi dekkjum (nýlega málaðar, ásamt bremsudælum)
- samlæsingar
- Geislaspilari
- Glertopplúga
- Innspýting
- Kastarar
- Líknarbelgir
- Loftkæling
- Leður áklæði
- Rafdrifnar rúður
- Rafdrifnir speglar
- Rafmagn í bílstjórasæti
- Reyklaust ökutæki
- Veltistýri
- Vökvastýri
- Cruise Control

Ástand:
eins og ég tók fram aðeins ofar þá dropar aðeins meðfram bensínsíu en ekkert merkilegt kemur ekki bensínlykt inní bílnum nema bíllinn stendur lengi í gangi með opna rúðu eða topplúgu, svo dropar hann aðeins olíu meðfram pakkdós framaná sveifarás og smá meðfram pakkdós fyrir hægri öxulin. svo er lakkið svoldið matt á toppnum og farið að sjá smá yfirborðsryð við framrúðuna.
hurðahúnn brotinn farþega meginn.

ætlaði mér að gera við þetta en núna vegna breyttra aðstæðna verð ég að fá mér 4/5 dyra bíl.
hér er listi yfir það sem ég fann á ebay eða summitracing:

bensínsía:  stilling - 47xx,-     summit - um 3000þ.

komplett pakkningasett fyrir mótor með heddpakningum, pakkdósum, ventlaþéttingum, tímareim+strekkjaraog meira: bæði á ebay og summit  sama verð - 148$ eða um 17þ.

og samskonar sett í skiptinguna var á um 75 $ eða tæpar 9000,-

hurðarhúnninn var á 7$ (830,-) stk eða á 12$ parið (1420,-) í svörtu lakki

næsta skoðun: er í 8-10 2014

í skoðuninni var sett útá: hurðarhúnin, lekamengun og að handbremsan gerði ekkert virkar núna bara aðeins stíf.
 

set á hann 140þ. er heitur fyrir einhverri corollu eða legacy í skiptum en skoða svosem allt og þarf ekki að vera í toppstandi


hafið samband í pm eða í 8430691 og ég heiti þorvaldur








6
BÍLAR til sölu. / "91 Volvo 480 Turbo
« on: July 11, 2013, 18:21:36 »
Volvo 480 Turbo
1991 (stutt í fornbílinn)
Svartur
Aflgjafi: Bensín
1721 cc - 120 hestöfl - 179 NM
ekki nema skráð 999 Kg en hef mælt hann í 930 á Kjalarnesi með fullan bensíntank og farangur fyrir viku á Akureyri og hann mokast alveg áfram
Skipting: Beinskipting
Ekinn 220.xxx km.
4 eigendur á Íslandi 1 í Hollandi (fluttur inn 2001)

Búnaður:

Leðursæti
5 gírar
Rafmagn í rúðum og speglum
Loftkæling
samlæsingar

Ástand:

Bíllinn var hliðartjónaður í fyrra og var "gróflega" viðgerður en við tjökkuðum póstinn og sílsinn aðeins út og skelltum nýjum hurðum á hann, hann er ekki skakkur (búið að mæla í bekk) en hurðarpósturinn fór aðeins inn og dró sílsinn aðeins upp, það var eftir að tengja spegilin bílstjóramegin.

Hurðaspjöldin eru döpur og það er smá rifa á bílstjórasætinu en hún er í saumnum þannig að það er þessvegna hægt að taka klæðinguna af og líma bót aftaná til að halda þessu saman.

Það var smá rifa á barkanum milli loftflæðiskynjara og túrbínu sem var teipuð en það er hægt að fá parta í þetta í haugum frá bæði UK og svíþjóð.

Hann er með breyttu pústi frá BJB (ársgamalt og kostaði 80þ.) sem er tvöfalt og djúpt grimmt hljóð en enginn hávaði.

Hann fekk endurskoðun á ytri öxulhosuna farþ. meginn en við skoðun kom í ljós að hjöruliðurinn var líka ónýtur og fylgja bæði með ss ný öxulhosa og liður úr umboði (kostaði 91þ.).

Heddið var tekið upp í 200þ. ventlasæti, fóðringar og pakkdósir.

Alls ekki mikið ryð minniháttar ryð aftast á báðum sílsum og smá á neðri vatnskassabitanum sem væri nóg að slípa burt, skella smá rust-stopper á og spalsa og mála.

Var búinn að fá tilboð í réttingu og spöslun uppá 100þ. og ætlaði mér að mála hann sjálfur en er með of mikið að volvoum og þarf að losa mig við hann.

Frekari upplýsingar:

Bíllinn selst einungis aðila sem ætlar sér að gera hann upp og mun fylgja kaupsamningur um það.

Skoða skipti og þá helst á bílum og er til í að setja með honum uppí dýrari "97 Carinu E sem er að detta í 200þ. km. og rann athugasemdalaust í gegnum skoðun 1. Júlí síðastliðinn, en ath. að ég er ekki orðinn 25 og get því ekki tekið yfir lán

Verð:
Litlar 150þ. Krónur, Turbo bílar sem eru í svipuðu ástandi bæði í svíþjóð og Þýskalandi eru að fara á 150-300þ. þannig að ég tel Þetta vera Mjög gott verð

Hafið samband í síma 843-0691 eða 773-8192 (nova), í pm eða í durgur91@gmail.com

verð í bænum á morgun og verð þar yfir helgina svo að ég get sýnt hann fram á sunnudag, bíllinn keyrir og stoppar án vandræða og ekkert mál að skella númerunum á hann en spurning ef það á að fara eitthvert á honum þyrfti að hafa með sér geymi því ég veit ekki hvort að geymirinn í honum er einnþá heill (samt verslaður síðasta sumar)

Myndir:  hér er ein rest er á l2c http://www.live2cruize.com/spjall/showthread.php/176943-quot-91-Volvo-480-Turbo (nenni ekki að linka)


7
þetta er sett í bílinn í nóv og ég tók þetta undan í byrjun mai, er keyrt ca 2-3000 km.
Þetta er allt 2" og opið á kútnum er 3 1/2 eða 4" man ekki

Hvarfakútur: 12.000,-

Kraftkútur:    8.000,-

Pústtúba:     5.000,-






8
Varahlutir Óskast Keyptir / vantar púst í Carinu E 1.8
« on: May 06, 2013, 21:51:45 »
vantar allt pústið frá grein, endilega hafið samband í skilaboðum ef þið eigið eða vitið um eitthvað

9
titill segir svosem allt þetta er 4.0 lítra non HO bíll og er með þessu yndislega renix kerfi sem kom 86-90 annars ef einhver hefur áhuga er ég góða 96 toy carinu 1.8 bsk sem ég get látið í sléttum skiptum fyrir heillegan xj sama hvaða árgerð og hvernig ryðmál eru svo lengi sem það er gott kram

endilega hafið samband í skilaboðum eða í email durgur91@gmail.com

10
BÍLAR til sölu. / "97 Mercedes-Benz C220 Esprit
« on: November 04, 2012, 00:55:13 »
Gerð og undirgerð: Mercedess-Benz C220 Esprit

Árgerð: 1997

Akstur: 305þ. km. vélin er með tímakeðju, brennir ekki olíu og þjappar ótrúlega vel

Litur: Brilliantsilber (grár)

Dyrafjöldi: 4

Vélarstærð: The M111.960 is a 2.2 L (2199 cc) 16-valve engine with bore and stroke of 89.9 x 86.6 mm and compression ratio of 10:1. It produces 110 kW (150 hp) of power and 210 N-m of torque.

Bsk/Ssk: sjálfskiptur

Eyðsla: er um 9-10 L/100km hjá mér hérna innanbæjar á Akranesi

Aukabúnaður: Þar sem þetta er Esprit típa þá er bíllinn lærri og stífari ásamt orginal magnara með svaka græjum og bassaboxi er samt pioneer spilari í honum með fjarstýringu, að euki er Esprit bíllinn lærri og með stífari fjöðrun ásamt blárri innréttingu.
það er rafmagn í öllu nema sætum, að meira að segja takki innaní bíl og á lyklinum til að opna skottið og það ótrúlega er að allt rafmagn virkar :D
svo er spólvörn og abs í honum

Ástand: það er nýbúið að taka allar bremsur í gegn og svo flaug hann líka í gegnum skoðun og er með 13 miða og endastafurinn 8, er smá ryðblettir en ekkert alvarlegt (svo fylgir lakk með) það dropar aðeins af vatnskassanum en ekkert alvarlegt fer ekkert af honum í keyrslu svo að maður taki eftir (fór frá Akureyrar til Reykjavíkur og vatnið rétt slefaði sentimeter niður á forðabúrinu) svo er hægt að finna hann hvar sem er
er á mjög góðum 15" nagladekkjum á stálfelgum og svo fylgja sumardekk á 16" felgum með lengri felguboltum með

Verð: það er sett á hann 540þ. en það er ekki nauðsynlega fast verð ef gott tilboð gefst
Skipti: skoða skipti á breyttum jeppum eða 8cyl chrysler eða ford jeppa/pallbíl (T.D. Grand Cherokee, Durango, Dakota, Ram, Explorer, Bronco, Expedition eða F-X50)

Myndir: hér eru myndir af honum á báðum felgugöngunum og kem með myndir af innréttingunni á morgun





hafið samband í síma 8430691 eftir klukkan 4 eða í Email: durgur91@gmail.com eða í einkaskilaboði og ég heiti Þorvaldur
 

11
titillinn segir svosem allt, nema að ég er með benz í skiptum 97 c220 espirit í mjög góðu standi

sendið pm eða email í durgur91@gmail.com ef þið hafið áhuga get sent myndir og frekari upplýsingar

12
BÍLAR til sölu. / "98 SsangYong Musso (geðveikur í vetur)
« on: October 07, 2012, 13:48:05 »
-Gerð: Ssangyong Musso
-Árgerð: 08/98
-Vél: 2.3 bensín (sama og er í 230e benz er 16 ventla með tímakeðju og er 150 hö.
-Bsk/ssk: beinskiptur 5 gíra með 2wd hi, 4wd hi og 4wd lo.
-Eyðsla: er í rétt rúmum 13 innanbæjar en er í 10 í langkeyslu
-Akstur: 214 þ.
-Ástand: mjög gott, kom mér mjög á óvart hvað hann var heillegur og er lakkið mjög gott, komið smá yfirborðsblettur við hornið á hurðarlistanum á farþegahurðinni annars mjög góður, nánast ný 31" BF Goodrich all-terrain og mjög nýlegt púst undir honum.

það er það eina sem hrjáir hann er að rúðan h/ megin að aftan fer ekki niður.

set á hann 350þ. og skoða öll skipti á bílum og jeppum. (sérstaklega heitur fyrir v8 Grand Cherokee)
hafið samband í 8426433 eða í email: durgur91@gmail.com og ég heiti þorvaldur




13
BÍLAR til sölu. / 1997 Ford Explorer Executive XLT
« on: July 14, 2012, 13:17:47 »
-Tegund & undirtegund: Ford Explorer Executive XLT

-Árgerð: 1997

-Litur: Grænn

-Vélarstærð: 4011 rúmsentimetrar eða 242 rúmtommur

-Sjálfskiptur/Beinskiptur: Sjálfskiptur

-Eyðsla: 15-17 lítrar innanbæjar og er í 11.7 til 12.5 í langkeyrslu, fer aldrei uppfyrir 15 í akstrinum hér í rvk en ég keyri líka eins og gömul kona svo að sjálfsögðu er hægt að hafa hann bara í afturdrifinu

-Akstur skv mæli: 252.XXX Km.

-Næsta skoðun: Júlí 2013, fór í skoðun á föstudaginn í síðustu viku eiginlega athugasemdarlaust (athugasemd útá handbremsu (ekki endurskoðun) en búinn að herða útí)

-Dyrafjöldi: 5 dyra og hægt að opna afturrúðu (kemur sér oft vel)

-Ástand bifreiðar: fáranlega þéttur með góðri smurbók, ekkert alvarlegt ryð (smá yfirborðs í hjólskálunum að aftan)  og lakkið mjög gott (massaði hann þegar ég fékk hann svo bónaður reglulega, svo veit ég ekki hvort að vélin og skiptingin hafa einhvern tímann verið gerð upp eða þetta er útafþví að hann hefur verið í sveit mest alla ævi en hann hreyfist ekki á kvarðanum milli olíuskipta og skiptingin er mjög þétt (akkílesarhællinn í explorer), en annars er komin smá rifa á bílstjórasætinu og á sólskerminum farþegameginn.

-Búnaður/aukabúnaður: rafmagn í öllum rúðum (sjálfvirkt niður hjá bílstjóra), Keyless entry code sem virkar (mjög hentugt þegar maður vill láta hann ganga sig heitann), útvarpstæki með kasettuspilara og græjur sem þrusuvirkar öruglega orginal magnari, cruise control, loftpúðar var skipt um púðann hjá farþega og skynjarann vegna endurskoðunar 2009, abs, álfelgur, wind deflector, air condition sem hefur svínvirkað síðustu daga og svo þar sem þetta er executive er hægt að stilla útvarpið afturí, tengja headphones þar líka og svo er sér miðstöð afturí svo er hann líka með orginal filmum sem koma vel út.

-Dekk/Felgur: er á rúmlega ársgömlum Toyo Open Country heilsársdekkjum sem eru míkróskorin í stærðinni 30x9,5R15 á orginal flottum álfelgum með nýlegum miðjukoppum

-Það sem ég hef gert við hann: er í raun bara að smyrja hann og bóna, fékk hann með ónýtan abs skynjara og slag á aftari hjöruliðskross í drifskaptinu skipti um skynjarann og fékk í hann orginal skapt úr v8 bíl og skipti um krossana í því just to be safe... jú svo smellti ég dúndurflottri "kraftsíu" í hann eftir að ég baðaði hana uppúr k&n olíu og hann hljómar fáranlega vel.

-Verð:  Tilboð: !!!320þ.!!! eða 450þ. í skiptum skoða samt skipti á einhverju breyttu og 50þ. á milli (gott tækifæri til að gera svaka díl)

-Skipti: svoða svosem skipti á öllu en ég er að selja þar sem mig langar í eitthvað skemtilegt helst v8 er heitastur fyrir Mustang eða öðrum V8 fólskbíl/sportbíl en skoða eins og ég segi allt líka breytta jeppa.
                         Ring             Nova
Hafið samband í 8430691 eða 7738192 og sjálfur heiti ég Þorvaldur og er líka hægt að nalgast mig í E-mail á durgur91@gmail.com og í pm. Svara þó ekki símanum fyrr enn eftir 18:00 vegna vinnu

Myndir verða menn nú að sjá svo hér er gripurinn












14
BÍLAR til sölu. / Kia Grand Sportage 99/00 á 290 þús !
« on: January 30, 2012, 18:35:29 »
Kia Grand sportage
1999/2000 (fyrst skráður í des 99 geri ráð fyrir að þetta sé 00 módel selt 99)
tvílitur grænn/grár
Aflgjafi: Bensín
1998cc - 126 hestöfl -
Skipting: Beinskipting og 2wd og 4wd Hi/Lo
Ekinn 175.614 km.

Búnaður:

-Geislaspilari (loftnetið ótengt en svosem ekkert mál að kippa því úr og tengja)
-Rafmagn í rúðum og speglum
-Dráttarkúla
-Kastaragrind
-Húddskóp
-Vindskeið
-Handvirkar lokur (brotna ekki eins og sjálfvirku)

Ástand:

skoðaður út árið

Bíllinn er mjög góður og þéttur að mestu leyti.

það sem hrjáir greyið er að hjöruliðskrossinn öðrumeginn að framan er slappur (finnst þegar hann er keyrður í 4wd), það er farið að myndast slatti af yfirborðsryði víðsvegar um bílinn en sem betur fer engin göt enn sem komið er og svo virkar ekki afturrúðuþurkan (skiptir svosem engu máli þar sem flestir á þessari síðu rífa þær úr og seta tappa í götin.

hann er ótrúlega góður í snjó og hækkaði hann ótrúlega í áliti hjá mér þegar ég dró ford explorer á bílakerru í gegnum 30-40 cm jafnfallið fyrr í vetur.

og ennþá betri er að hann er ekki að fara með nema 10-13 L/100km þannig að 65 lítra tankurinn kemur manni ótrúlega langt

Myndir










bíllinn fæst á felgunum og dekkjunum sem eru undir á auka 60 þ. en framdekkin eru keypt ný í haust og hin keypt rétt fyrir jól annars fer hann á heilsársdekkjum á svona felgum sem eru 30x9.5 R15



Skoða Slétt skipti á góðum 4x4 fólksbíl/jeppa með dráttarkúlu helst legacy

Verð: 290.000 kr.

Mamma er að selja þennan en þar sem hún hefur ekki hundsvit á bílum
Hafið þá samband í Pm, E-mail: durgur91@gmail.com eða í síma 8430691 Þorvaldur

15
BÍLAR til sölu. / 96/97 Dodge Dakota V8 og BSK !!!
« on: September 04, 2011, 12:50:01 »
Ég er hérna með þennan fína dodge sem þarfnast nýs eiganda.  í honum er annaðhvort 318 eða 360 með holley dóti utaná ásamt flowmaster pústkerfi og er að svínvirka. hann er bsk 5 gíra og með cruise control. hann hefur verið að eyða ca 18 á hundraðið hjá mér en í góðri gjöf fer hann létt með 25+ :naughty:, hann er á mjög góðum 31x10.5 heilsársdekkjum og eru öruglega 3 til 4 ár eftir á þeim, það var nýlega skipt um drifin og drifsköptin. hann er 6 manna (bekkur frammí). hann er líka nýsmurður.
ástæðan fyrir sölunni er að ég lennti í því að brjóta millikassan en hef ekki aðstöðu til að skipta um hann (er þó eitthvað byrjaður á því) en annar í toppstandi fylgir með, þeir eru báðir selectrac eða ss: 2hi, 4hi og 4 lo

ég set á hann 200þ. en er opinn fyrir tilboðum ásamt skiptiboðum.

hafið samband í 7738192 eða 8430691 Þorvaldur EN BARA EFTIR 7 !!!

annars bara í pm eða durgur91@gmail.com

en hér eru myndir










16
Aðstoð / drifvesen í dodge dakota 96
« on: August 17, 2011, 21:14:00 »
eins og titillinn segir er ég í vandræðum með afturdrifið hjá mér en það brotnaði um daginn. þótt ég hafi nú ponsu vit á chrysler bílum þá takmarkast sú kunnátta aðallega til xj cherokee jeppa......

en það er ss brotið hjá mér afturdrifið og mér þótti gaman að sjá hvort einhver gæti hjálpað mér að komast að því hvernig hásing er í honum og hvaða hlutfall er. orginal er þetta 318 bíll með bsk og np231 millikassa en það er reyndar kominn 5.9 með smá holley dóti í hann núna.

grindarnúmerið er 1B7GG23Y6TS630704

ef það hjálpar eitthvað og svo er minnsta mál að redda myndum af hásingunni ef það hjálpar eitthvað

17
Varahlutir Óskast Keyptir / vantar bremsudælur í volvo 240
« on: April 26, 2011, 22:27:48 »
titillinn segir svosem allt, mig vantar frambremsudælur í 240 fyrir ss kælda diska

hafið samband í pm eða í durgur91@gmail.com

18
BÍLAR til sölu. / 12 skoðaður "92 Legacy á 120Þ.!!!
« on: April 21, 2011, 16:07:42 »
]Subaru Legacy GL
1992
grár
Aflgjafi: Bensín
2000cc
Skipting: Beinskipting
Ekinn 237.XXX km.

Búnaður:

geislaspilari, rafmagn í rúðum og speglum, hæðarstillari fyrir ljós, dráttarkúla, samlæsingar

Ástand:

það lekur pústið á honum meðfram fremstu sakskeytum, rann ígegnum skoðun 4 apríl en þar var sett athugasemd útá parkljósaperu og að frambrettið h/ meginn væri eiginlega ónýtt af ryði (búið að laga bæði), sílsar eru í toppstandi og bara yfirborðsryð í afturhjólskálum (búið að bletta yfir)... öruglega hellingur sem ég er að gleyma en það er bara að hringja eða senda pm eða e-mail.









ER Á AKUREYRI

Verð: 120þ. kr. hendið á mig tilboðum (engin skipti)

Hafið samband í síma 8430691 eða í gegnum durgur91@gmail.com.

 - Þorvaldur

19
BÍLAR til sölu. / Hyundai coupe 1999 á 200þ.!!!
« on: August 17, 2010, 00:42:58 »
Bíltegund - Undirtegund :Hyundai Coupe
Árgerð :1999
Ekinn :232 Þ.
Skoðaður :10 endastafur 0
Verðhugmynd er æskilegt að komi fram :200 þ.
Er lán á bílnum ? :nei
Skipti :nei
Litur : eldrauður
Bsk / ssk :Bsk
Vél: slagrými/afl/vægi: 1.6/120-135 hö
Aukabúnaður : rafmagn í rúðum, kastarar í svuntu, góðir hátalarar og stór spoiler.
Símanúmer eða aðrar upplýsingar til að hafa samband við viðkomandi :7738192, Þorvaldur annars duddast@simnet.is
Myndir :



svo ein mynd af felgunum



Einnig má setja inn :Bíllinn er lækkaður og crossbrace milli demparaturnanna undir húddi, hann er líka með opið 2"púst frá kvarðakút og hægt er að semja um hvort kraftsía fæst með

handbremsubarkinn hægrameginn er slitinn

nýlega sprautauður að framan til að letta grjótbarning, var ekki næg glæra þannig að hann er aðeins mattari að framan en restin af bílnum

SKOÐA ÖLL TILBOÐ

20
BÍLAR til sölu. / 1993 Toyota Touring
« on: May 25, 2010, 22:29:34 »
Bíltegund - Undirtegund : Toyota Corolla Touring Gli
Árgerð :1993
Ekinn :260Þ.
Skoðaður :08
Verðhugmynd er æskilegt að komi fram : 110 Þ. eins og hann er núna
Er lán á bílnum ? :nei
Skipti :bara á einhverju amerísku 8 gata
Litur : vínrauður
Bsk / ssk :bsk 4x4 með millikassalæsingu
Vél: slagrými/afl/vægi:  1.6 16ventla 104 hö
Aukabúnaður :rafmagn í rúðum og speglum, aukagangur af dekkjum á felgum og aukafelga, kortageymsla yfir skottinu með hátölurum (overhead storage compartment)
Símanúmer eða aðrar upplýsingar til að hafa samband við viðkomandi :8430691 eða 7738192 Þorvaldur eftir 16:30 eða duddast@simnet.is
Myndir : koma á morgun ásamt viðmiðunarmyndum hvernig hann var áður en ég fór í hann.

Einnig má setja inn :
Ástand bílsins (ef eitthvað er að honum/ástand lakks/ryð) ég fekk bílinn í skiptum fyrir annan og er búinn að keyra hann í  viku (skoðunarfresturinn skilaði númerunum aftur inn í dag) það sem er í raun að honum eru nokkrar rispur og smá beyglur hér og það en er miklu betra en þegar ég fekk hann,það er lítið ryð en það sem var í sílsunum er búið að slípa niður og bera undirvagnsmálningu á, það er ónýt ein bremsudælan að aftan en ég fer í hana á morgun þannig að bíllinn sé ökuhæfur, hann pústar út því að ein pakkningin situr ekki rétt en hún er ný, laga þetta kanski á  morgun líka, rafmagnið í afturrúðunum virkar ekki, annars er lakkið bara ágætt en farið að lýsast hér og þar,en er alls ekki áberandi,
Þarfnast bíllinn viðhalds ? hvað er langt í næstu tímareimaskipti/skipti á olíu á kassa/sjálfskiptingu má koma fram
það er ekki upprunalega tímareimacoverið þannig að ég hef ekki hugmynd með skiptin á henni, olían er tiltölulega nýleg og snertir hann ekki við henni,,

Pages: [1] 2