121
Alls konar röfl / Átt þú þessi dekk?
« on: October 22, 2009, 20:21:10 »Nokkur dekk á felgum voru haldlögð í Árbæ um miðjan dag í gær. Dekkin höfðu verið auglýst til sölu á Netinu en talið er að þeim hafi verið stolið. Karl á þrítugsaldri var yfirheyrður í tengslum við rannsóknina en hann sagðist nýlega hafa fundið dekkin í öðru hverfi í borginni og slegið eign sinni á þau. Lögreglan leitar því réttmæts eiganda dekkjanna en sá hinn sami getur haft samband við lögregluna í síma 444-1190 á skrifstofutíma. Óskað verður eftir staðfestingu á eignarhaldi en dekkin má sjá á myndinni hér að neðan.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þá segir að sem fyrr hvetji lögreglan fólk til að hafa samband þegar þýfi er annars vegar.
„Ennfremur er minnt á ábyrgð þess, þegar svo ber undir, sem kaupir þýfi. Í 264. gr. almennra hegningarlaga er m.a. kveðið á um eftirfarandi: Hver sem tekur við eða aflar sér eða öðrum ávinnings af broti samkvæmt lögum þessum skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Sömu refsingu skal sá sæta sem geymir eða flytur slíkan ávinning, aðstoðar við afhendingu hans eða stuðlar á annan sambærilegan hátt að því að tryggja öðrum ávinning af broti. Nú er brot ítrekað eða stórfellt og getur refsing þá orðið fangelsi allt að 4 árum. Sé brot framið af gáleysi varðar það sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum."
http://visir.is/article/20091022/FRETTIR01/146003167