81
Keppnishald / Úrslit og Reglur / Re: Keppnisreglur
« on: February 08, 2010, 17:30:27 »Sæll Ingólfur
Þú virðist nú forðast eins og hægt er að ræða það sem er tekið úr lagabreytingatillögunni þinni. Þú talar um gamaldags vantraust hugsunarhátt á stjórn hann er nú ekki eldri en það að félagsmenn klúbbsins voru ekki sáttir við að fá ekki að vita hverjir væru í reglunefnd og lögðu því til breytingartillögur sem voru kosnar inn á aðalfundi 2008.
Þar var samþykkt að upplýst væri hverjir skipuðu þessa nefnd.
Þar var samþykkt að félagsmenn gætu sent inn reglubreytingartillögu.
Þar var samþykkt að reglunefnd væri ekki skipuð af stjórnarmeðlimum.
Þessi þrjú atriði ert þú að leggja til að detti út. Mín skoðun er sú að á sínum tíma var það mistök að ekki skyldi upplýst með að hverjir sætu í nefndinni sem ollu því að félagsmenn upplifðu nefndina sem einhverja leyninefnd og baktjaldamakk. Afhverju það er túlkað sem gamaldags vantraust hugsunarháttur að benda á þetta miðað við það sem upp kom þegar þetta var ekki upp á borðunum á ég erfitt með að skilja.
Kv Kristján
Sæll Kristján.
Er það rétt skilið hjá mér að sú stjórn sem þú situr í sé ekki treystandi!! Og að hún starfi ekki eftir lögum félagsins!! Ef hún starfar ekki eftir lögunum er þá ekki eitthvað bogið við löginn. Lög KK eiga að vera hefðbundin að fyrirmynd ÍSÍ og það á að forðast í lengstu að breyta þeim. Keppnis reglur eiga ekki að vera í lögum félagsins.
Kv Ingó.