Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Messages - Gunnar M Ólafsson

Pages: [1] 2 3 ... 10
1
Keppnishald / Úrslit og Reglur / Re: OUTLAW - Listinn
« on: January 15, 2016, 18:06:20 »
Langar að vera með og læt mig vaða á listann :-)

1969 Pontiac GTO
11.830@113.63
Kv Gunni

2
Almennt Spjall / Re: Heiðursfélagi #1 á glæsilegum ZL1 Camaro !
« on: November 08, 2014, 19:27:52 »
Glæsivagn.  8-)
Vonandi að hann verði á afmælissýningunni.

3
Því miður eru líkurnar á þurru veðri um helgina afar litlar. :-(

4
Algerlega frábært  :D
Hafsteinn og Frumherji eiga heiður skilið.
Sé ekki betur en að menn fái félagsgjaldið x2 til baka bara beð þsssum samning. 8-)
Til hamingju kvartmílumenn.
 :D

5
Það er ekki boðlegt að taka séns með keppnina.
Veðurspá verður að vera skotheld.

6
Næstkomandi föstudagskvöld 13/7 kl 2030 verður hittingur við Grillhús Guðmundar Sprengisandi.
Allir velkomnir að mæta.
Kveðja.
Muscel car deild KK.

7
Flottar myndir, flott  myndasíða hjá þér  8-)

8
Takk fyrir flottar myndir  :D

9
Sælir félagar. :D

Langaði að þakka fyrir frábæran dag í frábæru veðri.



Þarna voru á milli 40-50 bíla í "pittinum" og það átti eftir að bætast við.
Nokkuð gott miðað við að bæði Fornbílaklúbburinn er með landsmót á Selfossi og Krúsers voru að rúnta upp í Borgarnes.

En mega flottur dagur og ég þakka fyrir mig.

Kv.
Hálfdán. :roll:

KK Muscel Cars er sannarlega flottur hópur  8-)

10
Almennt Spjall / Re: FYRRI MUSCLE CAR DAGURINN 2012
« on: June 23, 2012, 21:06:14 »
Flottur dagur.
Ég taldi vel á fimmta tug bíla 8-)
Björn Berg vinur minn setti frábæran tíma "first time out" 11,52 á 117+mílum þrátt fyrir að hitta illa á 3 gír.
Mikið eftir hjá honum. ÁFRAMM BJÖSSI
Kv Gunni

11
Almennt Spjall / Re: FYRRI MUSCLE CAR DAGURINN 2012
« on: June 20, 2012, 16:17:13 »
Auðvitað mætir maður  :D

Skora á alla eigendur USA V8 bíla að mæta og eiga skemtilegann dag  8-)

12
Keppnishald / Úrslit og Reglur / Re: Kvartmíluæfing 2 júní!
« on: June 02, 2012, 18:21:37 »
Takk fyrir flotta æfingu í þessu líka fína veðri vonandi verða fleirri svona góðir dagar í sumar :)


Sama segi ég  8-)

13
Muscle Car deildin og rúnturinn. / Föstudagskvöld 1.6.2012
« on: May 31, 2012, 19:47:17 »
Ágætu félagar í Muscel car deild KK og þið sem viljið keyra með okkur, HITTUMST Föstudagskvöldið 1.6. kl 20:30 við Grillhús Guðmundar Sprengisandi.
KL 21:45 keyrum við niður í bæ og förum gömlu rúntleiðina í miðbænum, Lækjargata, Skólabrú, Kirkjustræti, Aðalstræti, Hafnarstræti, Hverfisgata, Laugarvegur.
KL 23:00 Komum saman á bílastæði við Héðinsgötu (Slippurinn+CCP)
23:45 Samkomu lokið.
En sumir rúnta áfram meðan aðrir fara heim 
KV Gunni
P.S  Það er ekki víst að ég geti mætt, þannig að ég óska ykkur öllum góðrar skemmtunar
Annaðhvort verða Moli eða Hálfdán þarna til að stýra þessu, jafnvel báðir 

14
Glæsilegt, gaman að sjá svona "live" mynd af þessu. :D
Takk fyrir Arnar
Kv Gunni

15
Hæ,
Fyrsti hittingur Muscle car deildarinnar var á föstudaginn, hér eru nokkrar myndir  8-)

http://www.flickr.com/photos/bb-kristinsson/sets/72157629975004929/







Kveðja,

Flottar myndir. Takk fyrir bræður
Kv Gunni

Björn

17
Muscle Car deildin og rúnturinn. / Re: HITTINGUR
« on: May 03, 2012, 19:36:45 »
Veðurspáinn er góð  8-)
Allir að mæta :D

18
Muscle Car deildin og rúnturinn. / HITTINGUR
« on: April 29, 2012, 23:17:24 »
                                              MUSCLE CAR DEILD KK
Nú er komið að því að vakna af vetrardvalanum og mæta á fyrsta hitting sumarins.
Hann verður næsta föstudag þ.e. 4. maí kl 20:30 á Grillhúsi Guðmundar Sprengisandi svo framarlega sem veður leyfir, en þetta getur breyst svo þið fylgist með hérna á spjallinu.
http://ja.is/kort/#q=index_id%3A1518271&x=361281&y=405085&z=9
Þarna eru flott bílastæði og staðurinn er mjög huggulegur og með sterka skírskotun í mótorsport.
Planið er að hittast þarna í sumar nema þegar sérstakir viðburðir eru eins og Muscel car dagurinn ofl. Vertinn á staðnum hefur lýst áhuga á að halda með okkur sérdag í sumar sem eingöngu verður tileinkaður „Muscel cars.“ Eins verður vonandi fljótlega hægt að fá afslátt af veitingum þarna fyrir KK fólk, en mætingin mun ráða þar nokkru um.
Það verður bara flott að hittast þarna, fá sér léttar veitingar , rabba saman, skoða bílana og taka svo góðan rúnt ef stemming er fyrir því, eða bara slaka á í góðum félagsskap áður en haldið er heim.
KV. Gunni

19
Almennt Spjall / Re: Bíósýning Kvartmíluklúbbsins
« on: September 24, 2011, 17:31:16 »
Mæti á hvað sem er en two lane blacktop er mitt val  8-)

Sammála  :D
Væri ekki flott að hafa 3 BÍÓ á helgi og allir að mæta á "KÖGGUNUM" taka svo flottan rúnt á eftir ?  8-)

20
Hlekkir / Re: Stupid
« on: September 13, 2011, 19:09:36 »
:shock:
Spyrna í öfuga átt á kvartmílubraut til að líkja eftir götuspyrnu  ](*,)
CLOSE CALL at King of the Concrete


Það virðast engin takmörk vera fyrir fávitaskapnum í þessu landi :evil:

Gunnar  fávitaskapurinn hér heima er jafn mikill og úti í heimi hann bara virðist vera minni útaf haus fjölda

usa     312,200,000
Ísland        318,452
 :-k 0.001 %

Og ekki gleyma að það hefur verið farinn fram Spyrna í öfuga átt á kvartmílubrautinni

verða kominn 10 ára
Quote from: mbl.is,25/09/2001


TVEIR ungir karlmenn liggja enn alvarlega slasaðir á gjörgæsludeild Landspítalans-háskólasjúkrahúss eftir kappakstur tveggja bifreiða, fólksbifreiðar og jeppa, á kvartmílubrautinni í Kapelluhrauni í Hafnarfirði í fyrrakvöld.


TVEIR ungir karlmenn liggja enn alvarlega slasaðir á gjörgæsludeild Landspítalans-háskólasjúkrahúss eftir kappakstur tveggja bifreiða, fólksbifreiðar og jeppa, á kvartmílubrautinni í Kapelluhrauni í Hafnarfirði í fyrrakvöld. Annar mannanna gekkst undir aðgerð í gær og gekk hún vel að sögn læknis á vakt en búist er við að hinn maðurinn þurfi einnig að gangast undir aðgerð.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Hafnarfirði var bílunum ekið inn á myrkvaða brautina í leyfisleysi og þeim ekið á miklum hraða brautina á enda. Síðan var þeim snúið við og ekið samsíða á miklum hraða í hina áttina út að rásmarkinu. Þar hafi ökumennirnir hins vegar ekki náð að bremsa í tæka tíð með þeim afleiðingum að bílarnir þeyttust yfir hæð við enda brautarinnar og ofan í um tíu metra djúpa gjótu. Við þetta kviknaði í bílunum og voru þeir alelda þegar slökkviliðsmenn bar að garði um miðnætti. Tók talsverðan tíma að slökkva eldinn. Fólki sem var í bifreið skammt frá hafði hins vegar tekist að bjarga ökumönnunum og farþegunum út úr bílflökunum.

Ökumaður fólksbifreiðarinnar er sautján ára, nýbúinn að fá bílpróf. Hann var einn í bílnum og slapp lítið meiddur samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins en í jeppanum voru auk ökumanns, sem er átján ára, tveir farþegar; karl og kona innan við tvítugt. Ökumaðurinn og annar farþeginn í þeirri bifreið slösuðust alvarlega og liggja á gjörgæsludeild en stúlkan hlaut m.a. rifbeinsbrot.


Engin merki
Kvartmílubrautin er í eigu Kvartmíluklúbbsins í Hafnarfirði og er hún að sögn Grétars Jónssonar, stjórnarmanns í Kvartmíluklúbbnum, samtals um 900 metrar að lengd. Þar af er um 460 metra aksturskafli og um 400 metra bremsukafli. Merkingar sem sýna m.a. hvar bremsukaflinn tekur við voru að sögn Grétars málaðar á brautina í sumar en þar sem brautin er ekki upplýst hafa ökumenn bifreiðanna í fyrrakvöld að því er virðist ekki áttað sig á því hvar brautin endaði.
Brautin er malbikuð og var að sögn Grétars lögð fyrir 25 árum. Hann ítrekar að brautin sé í einkaeigu og að óviðkomandi sé stranglega bannað að aka brautina. Engin merki eru hins vegar við brautina sem sýna það. Að sögn Grétars hefur Kvartmíluklúbbnum reynst erfitt að loka brautinni fyrir óviðkomandi m.a. vegna annarrar umferðar sem þurfi að vera um svæðið en bendir á að fyrir nokkrum árum hafi verið sett upp skilti við brautina sem sýndi að óviðkomandi væri bannaður aðgangur að brautinni.

"Það merki var hins vegar eyðilagt eins og svo margt annað á þessu svæði," segir hann og bendir auk þess á að eitt sinn hafi brautin verið lokuð af með læstu hliði en að hliðinu hafi verið stolið stuttu síðar í heilu lagi. "Við höfum því oftar en einu sinni reynt að loka svæðinu en það er allt eyðilagt þarna uppfrá hjá okkur," segir hann. Bætir hann því þó við að klúbburinn hafi átt í góðu samstarfi við lögregluna í Hafnarfirði við að passa upp á brautina.

Grétar ítrekar hins vegar að í kjölfar slyssins í fyrrakvöld verði reynt að loka svæðinu að nýju og sett upp nýtt skilti sem banni óviðkomandi aðgang.


Aukinn áhugi á kvartmílu
Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði hefur það komið fyrir að hún hafi þurft að hafa afskipti af ökumönnum sem hafi farið í óleyfi inn á kvartmílubrautina en segir það þó ekki algengt. "Það hefur komið fyrir en þó ekki oft," að sögn varðstjóra í lögreglunni. Hann telur ennfremur aðspurður ólíklegt að ökumennirnir í fyrrakvöld hafi farið í kappakstur á brautinni vegna áhrifa frá kvikmyndinni The Fast and The Furious sem nú er verið að sýna í Bíóhöllinni. Í myndinni segir frá ungu fólki sem stundar ólögmætan kappakstur í skjóli nætur á götum Los Angeles-borgar.
Grétar Jónsson, stjórnarmaður í Kvartmíluklúbbnum, segir það einnig ólíklegt að fyrrnefnd kvikmynd hafi hvatt til kappakstursins. Aðspurður segir hann að félögum í Kvartmíluklúbbnum hafi fjölgað mikið síðustu árin en að sú fjölgun hafi átt sér stað áður en umrædd mynd var frumsýnd.

Sem dæmi um þá fjölgun sem átt hefur sér stað í kvartmílukeppni bendir Grétar á að fyrir tveimur árum hafi 20 til 30 manns keppt í kvartmílu en að síðasta sumar hafi milli 60 og 70 manns keppt í kvartmílu. Að sögn Grétars má m.a. rekja þessa fjölgun til auglýsingaherferðar klúbbsins síðasta vetur en þá var fólk hvatt til að hætta hraðakstri á götunum en keppa þess í stað í kvartmílu.




Ég hefði orðað mína athugasemd alveg eins þótt atburðurinn hefði skéð hér á landi !!!

Pages: [1] 2 3 ... 10