Kvartmílan => Keppnishald / Úrslit og Reglur => Topic started by: stigurh on December 13, 2008, 14:32:46

Title: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: stigurh on December 13, 2008, 14:32:46
Setjið inn hvað er jákvætt við sandspyrnubraut.

Menn hafa svo mismunandi skoðanir og sjá mismundi vinkil á þessu máli.

Ég sé ekki nein vandkvæði á svona brautargerð og að öllum líkindum er hægt að gera svona braut fyrir klink!

Keppnishaldið einfalt og auðvelt að halda utanum það.

Vinsælt sport allstaðar ! Margir keppendur og margir áhangendur í kringum þá.

KK myndi stækka um helming í félagatali !

Vinsamlega vera málefnalegir.
stigurh
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Jón Þór Bjarnason on December 14, 2008, 16:13:12
Eg skil ekki þessa umræðu því stjórn hefur ekki rætt um það að á stjórnarfundi að setja sandspyrnubraut á svæðið.
Þetta hefur verið rætt lítillega hér á spjallinu.
Það er búið að kalla til malbikssérfræðinga og erum við að bíða eftir þremur tilboðum í brautina.
Það á eftir að hanna og teikna svæðið upp eins og það á eftir að líta út til framtíðar og er Hafnarfjarðarbær að leita að færum arkitektum til þess verkefnis. Þegar sú vinna er búinn er fyrst hægt að skoða sandspyrnubraut á svæðinu, ekki fyrr. Ég bið félagsmenn um að vera með tærnar aðeins nær jörðinni og þá sérstaklega í kreppunni.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Heddportun on December 14, 2008, 21:12:53
Sýnist áhuginn fyrir þessu vera mikill eins og sést hefur á spjallinu og innkoma í kassa KK aukast til muna

Ekkert vesen með rigningu og veður sem slíkt

Búnaður fyrir braut væri 1stk Traktor,plógur ofl smátterí

Torfærubílar,Jeppar,Motorkrosshjól og Draggar kæmu frekar en á Malbiksbraut undanfarin ár,aukning félasgmanna um nokkra rugi

Þó svo að þetta sé ekki inni í myndinni eins og staðan er í dag þá á að gera ráðfyrir sandspyrnubraut á teikningum,ef það er ekki gert þá getur það verið vandamál seinna meir að fá hana samþykkta eða plass fyrir hana

Áhuginn er þannig að það væri vel hægt að stofna sjóð til byggingar Sanspyrnubrautar sem félags og góðunnara myndu leggja frjálsframlög og væri óháð innkomu KK fyrir Malbiksbraut

Stofnuð væri sjálfstætt starfandi eining innan KK sem héldi utan um sandspyrnubrautina og rekstur hennar því stjórnin virðist ekki hafa áhuga á sandspyrnubraut eða vilja félagsmanna miða við fjárhagsstöðu og önnur verkefni

Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Jenni on December 14, 2008, 23:19:41
Það er löngu timabært að fara að huga að sandspyrnubraut hjá kvartmílubrautinni, við erum búnir að vera a hælunum með sandspyrnumálin i mörg ár, höfum verið með sandspyrnur í keppnisdagatalinu í mörg ár, en ekki staðið við neitt. Það er bara ekki rétt að það séu sandfjörur um allt sem hægt er að fá afnot af.! Það einmitt núna sem við eigum að drífa í þessu, vera búnir að stika út braut áður en búið er að teikna, og reyna að fá hana á kortið áður en allt verður upptekið. Klúbburinn hefði hæglega getað verið búinn að sletta undir braut með ýtunni sem hann var með í láni endurgjaldslaust hjá Kraftvélum á síðasta ári, Kraftvélar borguðu meira að segja olíuna á hana. Og hvenær er betra að fá góðan díl í sand en einmitt núna, þegar lítið er að gera hjá verktökunum. Bara mitt álit.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Elmar Þór on December 14, 2008, 23:39:25

Ein sem er á sama máli og ég að þessi ýta var guðsgjöf, held að hún hafi bætt slatta í peningakassan :D hehehehe
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: bluetrash on December 15, 2008, 00:02:50
Ég verð að vera sammála þessu sem er sagt um að gera alla vega ráð fyrir henni á teikningu. Það er það minnsta sem stjórn KK gæti gert fyrir félagsmenn. Leyft þeim svo að standa að söfnun og þess háttar til að gera hana svo að veruleika ef rétt er að stjórnin sýni ekki vilja fyrir þessu.

Ég á græju sem ég væri til í að prófa að fara með í sandspyrnu og í framhaldi þróa hana áfram fyrir tilvonandi keppnir  :wink:
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Halldór H. on December 15, 2008, 03:09:27
Eitt skil ég ekki alveg í öllu þessu.

Það er engu líkara en að keppendur eða félagsmenn skipti engu andskotans máli.
Ef stjórnin fær ekki hugmyndina þá hú alveg vita vonlaus, sínist mér allavega á skrifum sumra manna í stjórn.

Það er rétti tíminn núna til að tala og semja við verktaka, það er kreppa  frammundan hjá þeim eins og öðrum
þannig að mér finnst líklegt að þeir séu til í flest hvort sem er malbik eða sandur.

KK er búið að tala um sandsp ár eftir ár en ekkert gerist,,,  það mundi vafalaust breytast ef væri braut í hrauninu.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Jón Þór Bjarnason on December 15, 2008, 08:15:29
Eitt skil ég ekki alveg í öllu þessu.

Það er engu líkara en að keppendur eða félagsmenn skipti engu andskotans máli.
Ef stjórnin fær ekki hugmyndina þá hú alveg vita vonlaus, sínist mér allavega á skrifum sumra manna í stjórn.

Það er rétti tíminn núna til að tala og semja við verktaka, það er kreppa  frammundan hjá þeim eins og öðrum
þannig að mér finnst líklegt að þeir séu til í flest hvort sem er malbik eða sandur.

KK er búið að tala um sandsp ár eftir ár en ekkert gerist,,,  það mundi vafalaust breytast ef væri braut í hrauninu.

Keppendur og félagsmenn almennt kjósa stjórn til að sjá um almennan rekstur á svæðinu og þar verður að fara eftir lögum landsins.
Fljótfærni hefur kostað okkur oft peninga og síðast var það í sumar þegar það vantaði smá rörbút í frágang á nýju ljósunum og félagsmenn grófu upp rör meðfram gamla veginum sem innihélt símastreng og klipptu í sundur í staðinn fyrir að kaupa smá rörbút. Þessi smá rörbútur kostaði klúbbinn rétt rúmlega kr 200.000.-
KK er að semja við verktaka núna í kreppunni þó svo það sé ekki sandspyrnubraut akkurat núna en þá kemur hún eflaust strax í kjölfarið þegar teikningar og samþykktir liggja fyrir. Ég stend ekki í vegi fyrir sandspyrnubraut heldur er ég með smá vit í kollinum og veit að það er ekki hægt að framkvæma þetta fyrr en allt liggur fyrir. Auðunn varaformaður hefur verið að tala við fólk hjá Hafnarfjarðarbæ og þeim líst vel á þessa hugmynd.

Það virðist vera sumum mönnum hér gersamlega ómögulegt að skilja að það eru lög og reglur sem klúbburinn þarf að fara eftir.
Sum mál taka lengri tíma en önnur.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Dodge on December 15, 2008, 23:41:33
Ég ætla nú ekki að skíta yfir neinn eða gera lítið úr vinnu manna, en þeir sem eru kosnir í stjórn í svona félagasamtökum eru yfirleitt bara þeir 4 - 5 sem gefa kost á sér....

Helsta kostinn sem ég sé við að gera sandspyrnubraut er að þá væri hægt að keppa í sandspyrnu... og þætti eðlilegt að það væri high priority hjá klúbbi sem gefur sig út fyrir það tvennt að halda kvartmílu og sandspyrnu..

sandur er málið!  8-)
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Hera on December 16, 2008, 12:38:14
Fyrir þá sem hafa ekki skoðað teikninguna sem var uppkast til að fá svæðið samþykkt sem akstursíþróttasvæði þá er sandspyrnubraut á þeirri teikningu  :wink:
þannig að ég held að það hafi verið og sé hugsað út í það.

En það þarf að fara að teikna svæðið og eins og ég las (einthverstaðar hér á vefnum) þá er víst verið að vinna eithvað í því af kk og Hafnafjarðarbæ að fá arkitekt til að hanna þetta og teikna. Það er grundvöllur fyrir öllum framkvæmdum að þær séu samþykktar.

ég tel það jákvætt að setja sandspyrnubraut á svæðið.
Lengir sumarið og mögulega áhorf og félagsmenn sem þýðir auknar tekjur, sem þýðir meira fé til uppbyggingar á svæðinu = allt jákvætt með það að mínu mati.

En ég er á því að það þurfi að vanda val á forgangsröðun og ekki ana út í neitt sem gæti komið eins og búmerang í hausin á okkur til baka.

Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Stebbik on December 19, 2008, 01:14:30
Það er löngu timabært að fara að huga að sandspyrnubraut hjá kvartmílubrautinni, við erum búnir að vera a hælunum með sandspyrnumálin i mörg ár, höfum verið með sandspyrnur í keppnisdagatalinu í mörg ár, en ekki staðið við neitt. Það er bara ekki rétt að það séu sandfjörur um allt sem hægt er að fá afnot af.! Það einmitt núna sem við eigum að drífa í þessu, vera búnir að stika út braut áður en búið er að teikna, og reyna að fá hana á kortið áður en allt verður upptekið. Klúbburinn hefði hæglega getað verið búinn að sletta undir braut með ýtunni sem hann var með í láni endurgjaldslaust hjá Kraftvélum á síðasta ári, Kraftvélar borguðu meira að segja olíuna á hana. Og hvenær er betra að fá góðan díl í sand en einmitt núna, þegar lítið er að gera hjá verktökunum. Bara mitt álit.

samála Jenna

Hvernig væri að fá tilboð hjá verktökum núna þegar litið er gera hjá þeim. er nokkuð viss um sandspyrna kemur til með að gefa $$$ í kassann. ? ?
Hörku sport. væri viss um að fólk kæmi á svona keppnir.
en þar sem ég er byrjandi í sportinu ætti maður kanski bara að halda kjafti, því það virðist vera í þessum klúbb ef maður kemur með ábendíngar
sem stjórnarmenn eru ekki sammála þá verður maður ekki vinsælasti pappírinn á svæðinu
Eg er nokkuð viss um að það sé hægt að búa til sérstaka nefnd um sandspyrnubraut í vetur með nokkrum eðal mönnum sjálfur er ég til í að vera meðreiðarsveinn í sandspyrnubrautarnefnd .

kv Stefán   :roll:
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Jón Þór Bjarnason on December 19, 2008, 01:47:07
Stefán og aðrir félagsmenn.

Ég bið ykkur um að lesa aftur yfir það sem stjórn hefur skrifað um þetta mál
Stjórn er ekki á móti þessu heldur erum við að fara yfir málin og skoða allar hliðar málsins og þar koma Hafnarfjarðarbær einnig að máli.
Þetta er ekki eitthvað sem er hægt að hrinda í framkvæmd á einni nóttu heldur þarf að fá leyfi fyrir öllum framkvæmdum á svæðinu.
Þetta er líka spurning hvort félagsmenn vilja frekar seinka malbiksframkvæmdum og fara í gerð sandspyrnubrautar.
Það er alveg sjálfsagt að ræða þessi mál en gerum það af skynsemi en ekki flýti.

Ég hef ekki orðið var við að ég né aðrir stjórnarmenn höfum sagt einum né neinum í þessum klúbb að halda kjafti Stefán.
Sumir eru bara gjarnir á að lesa það sem þeir vilja og sjá ekki hitt. Verum svolítið skynsamir í kreppunni.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Jón Þór Bjarnason on December 19, 2008, 01:51:02
Það er löngu timabært að fara að huga að sandspyrnubraut hjá kvartmílubrautinni, við erum búnir að vera a hælunum með sandspyrnumálin i mörg ár, höfum verið með sandspyrnur í keppnisdagatalinu í mörg ár, en ekki staðið við neitt. Það er bara ekki rétt að það séu sandfjörur um allt sem hægt er að fá afnot af.! Það einmitt núna sem við eigum að drífa í þessu, vera búnir að stika út braut áður en búið er að teikna, og reyna að fá hana á kortið áður en allt verður upptekið. Klúbburinn hefði hæglega getað verið búinn að sletta undir braut með ýtunni sem hann var með í láni endurgjaldslaust hjá Kraftvélum á síðasta ári, Kraftvélar borguðu meira að segja olíuna á hana. Og hvenær er betra að fá góðan díl í sand en einmitt núna, þegar lítið er að gera hjá verktökunum. Bara mitt álit.
Hverjum borgaði ég þá litaða olíu í sumar?
Minnir að það hafi verið tankbíll upp á braut að fylla á ýtuna sem ég svo borgaði.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Shafiroff on December 19, 2008, 05:56:47
sælir félagar.já rétt NONNI en hversu margir lítrar voru gefins sem kannski er ekki aðal málið ég meina þetta voru ekkert smá margir dagar ,unnið á vöktum við að ýta og slétta en já ok allt í lagi með það.en eins og NONNI tíundar þá er málið í skoðun hjá okkur og HAFNARFJARÐARBÆ þannig að þetta er allt í vinnslu en ég fagna því ef það eru einhverjir góðir menn sem eru tilbúnir að láta gott af sér leiða.spurning um að þið finnið eitthvað útúr því og setjið saman góðan hóp sem gæti skoðað allar hliðar málsinns það er að segja tilboð og annað í þeim dúr.kv AUÐUNN HERLUFSEN.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: bluetrash on December 19, 2008, 06:04:28
Ég er game. hvað þarf að gera ég skal mæta þó svo ég sé nú varla byrjaður í þessu að ráði
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Halldór H. on December 19, 2008, 18:09:35
Hæ öllsömul

Éer búinn að reikna þetta gróflega.

Það kostar 1 - 1,5 millz að gera svona braut sem er 300m x 10m.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Kristján Skjóldal on December 19, 2008, 19:54:43
já það er flott =D> en mér finnst þessi þráður ekki standa undir sínu :???:þar stendur HVAÐ ER JÁKVÆTT VIÐ SANDSPYRNUBRAUT Á SVÆÐI KK og það er ekkert gert mema rakka hana niður :D
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Halldór H. on December 19, 2008, 20:41:36
Mikið er ég sammála þér Stjáni.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Heddportun on December 19, 2008, 21:04:16
Skal glaður legga 10þús í púkkið ef það er stofnaður reikningur fyrir gerð sandspyrnubrautar
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: stigurh on December 19, 2008, 21:26:49
Halldór, þú ert með svakalega fínar tölur þarna, getur þú útlistað þetta fyrir okkur ?
stigurh
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Moli on December 19, 2008, 22:04:58
Ég er eiginlega sammála Stíg, finnst þessi tala heldur lág, ef tekinn er efniskostnaður og vinna. Við verðum að hafa stærra svæði heldur en bara brautina og bremsukafla.  :-#
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Halldór H. on December 20, 2008, 02:54:36
 Rúmmeter af sandi kostar 80 kr og það þarf 3000 m3 í 300m langann kafla sem er 10m breiður þá eru það 240 þús kr.
 Það þarf 190 trailera af efni í þetta, þeir keyra fyrir 230 kr, per km, kostur ef efnið fæst sem nærst staðnum.
 Jarðýta er með ca 8 þús á tímann og hún getur jafnað undir brautina á ca 30 tímum, sem gera 240,000.
 Þarna er komin tæp hálf milla og rezt fer í akstur.

 Eins og ég sagði er þetta gróflega reiknað.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Gilson on December 20, 2008, 02:59:37
Rúmmeter af sandi kostar 80 kr og það þarf 3000 m3 í 300m langann kafla sem er 10m breiður þá eru það 240 þús kr.
 Það þarf 190 trailera af efni í þetta, þeir keyra fyrir 230 kr, per km, kostur ef efnið fæst sem nærst staðnum.
 Jarðýta er með ca 8 þús á tímann og hún getur jafnað undir brautina á ca 30 tímum, sem gera 240,000.
 Þarna er komin tæp hálf milla og rezt fer í akstur.

 Eins og ég sagði er þetta gróflega reiknað.

Svo þarf að gera ráð fyrir allskonar kerfiskostnaði eins og t.d. leyfi og teikningar.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Halldór H. on December 20, 2008, 03:11:16
Það þarf varla að láta teikna svonalagað og leyfi kostar ekkert, þetta er ekki mannvirki.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Geir-H on December 20, 2008, 03:20:36
Rúmmeter af sandi kostar 80 kr og það þarf 3000 m3 í 300m langann kafla sem er 10m breiður þá eru það 240 þús kr.
 Það þarf 190 trailera af efni í þetta, þeir keyra fyrir 230 kr, per km, kostur ef efnið fæst sem nærst staðnum.
 Jarðýta er með ca 8 þús á tímann og hún getur jafnað undir brautina á ca 30 tímum, sem gera 240,000.
 Þarna er komin tæp hálf milla og rezt fer í akstur.

 Eins og ég sagði er þetta gróflega reiknað.

Ertu viss um að þetta sé rétt hjá þér?

Er yfirleitt km gjald sem er u.þ.b 200 + tímagjald sem er 3000kr minnir mig er ekki alveg með tölurnar á hreinu en skal komast að því á morgun
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Halldór H. on December 20, 2008, 03:21:58
Nei það er annað hvort km gjald eða tíma vinna.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: stigurh on December 20, 2008, 09:33:12
Takk fyrir þetta Halldór. Þetta er gott innlegg. Þetta er að vísu ekki staðfesting en engu að síður mjög sannfærandi. Þetta er í samræmi við það sem ég hef alltaf sagt, fyrir klink !

Fáum tilboð, útboð og heimboð í þetta !

Það er mín sannfæring að sandspyrnubraut muni verða KK mun betri rekstrareining en kvartmílubrautin er í dag og þessum peningum vel varið.

Ég held að þegar fram líða stundir muni þátttaka í sandspyrnu vera svo vel sótt að keppnishald taki tvo daga. Smá framtíðarmusic  :-({|=  Brjálað að gera hjá gjaldkeranum !

stigurh
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: maggifinn on December 22, 2008, 15:33:23
Það eru fleiri í þessum pælingum en bara Kvartmíluklúbburinn, http://www.yellowbullet.com/forum/showthread.php?t=98827

New England dragway was approached by a few mud racers to hopefully run a few mud drags on their grounds in the hopes of establishing a permanent facility for mud racing. They accepted and a track is in the works. The Mud drag track is going to run parrallel to the existing asphalt track and will be an almost carbon copy of it. With spectator stands, officials and timing tower and full pro tree timing system. Track will be 180 to 200ft of mud with at least 800 ft of shutdown. The mud races will be running simultainiously with the asphalt drags.

 Hver er munurinn á að keyra þessar mud brautir og sandbrautir? ætli sé minna fok af drullubraut?
 
 (http://i228.photobucket.com/albums/ee49/mudracing/PictureorVideo014.jpg)

 eitt drulluvídjó hér http://vids.myspace.com/index.cfm?fuseaction=vids.individual&VideoID=46199115

Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: stigurh on December 22, 2008, 18:20:12
Það er eins og þeir séu bara að taka 60ft.
stigurh
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Elmar Þór on December 22, 2008, 19:16:24
Rúmmeter af sandi kostar 80 kr og það þarf 3000 m3 í 300m langann kafla sem er 10m breiður þá eru það 240 þús kr.
 Það þarf 190 trailera af efni í þetta, þeir keyra fyrir 230 kr, per km, kostur ef efnið fæst sem nærst staðnum.
 Jarðýta er með ca 8 þús á tímann og hún getur jafnað undir brautina á ca 30 tímum, sem gera 240,000.
 Þarna er komin tæp hálf milla og rezt fer í akstur.

 Eins og ég sagði er þetta gróflega reiknað.

Hvað myndi svona braut vera þykk, 60 -130 cm ?

ódýrasti sandurinn hjá Vatnsskarðsnámum er 785 og myndi ég telja hann of grófan þannig að við þyrftum að fara í fíni sans og hann er sagður kosta  1270 kr per m3. Það væri örugglega hagstæðast að kaupa sandinn hjá þeim þar sem styðst er að ég held að keyra hann. Svo væri kannski hægt að láta þá bara gera sér tilboð í þetta hjá vatnsskarði.
Er nokkuð leyfilegt að taka sand úr fjörum?
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Geir-H on December 22, 2008, 20:05:46
Það er sandnáma í Þorlákshöfn nátturulegur sandur s.s ekkert unnin, en þá er kominn STÓR tala í akstur
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Kiddicamaro on December 23, 2008, 02:48:17
Rúmmeter af sandi kostar 80 kr og það þarf 3000 m3 í 300m langann kafla sem er 10m breiður þá eru það 240 þús kr.
 Það þarf 190 trailera af efni í þetta, þeir keyra fyrir 230 kr, per km, kostur ef efnið fæst sem nærst staðnum.
 Jarðýta er með ca 8 þús á tímann og hún getur jafnað undir brautina á ca 30 tímum, sem gera 240,000.
 Þarna er komin tæp hálf milla og rezt fer í akstur.

 Eins og ég sagði er þetta gróflega reiknað.

ég held að ég hafi alldrei séð jafnmikla einföldun á kosnaði

ef þú færð rúmeter af sandi á 80kr með fyllingu á bílanna þá áttu skilið túle .en mig langar ekki að horfa á þig botna phorsinn við hliðinna á einhverjum öðrum með 5 metra á mann og ekkert tekur við nema öskrandi hraunið á alla kanta.og jarðýta með manni á 8 þúsund  :?: :?: :?: er þetta virkilega svona í sveitinni. og að lokum maður framkvæmir ekkert í dag nema að fá leyfi.

ég stórlega efast að svona framkvæmd með öllum þeim öryggissjonarmiðum sem klúbburinn vill standa fyrir sé undir 15 milljónum

Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Kristján Skjóldal on December 23, 2008, 09:04:11
fyrigefðu er einhver munur á 1/4 brautini okkar:???: bara 900 til 1000 metrar og 5 metrar í hvora átt og svo hraun  :-kog á miklu meiri hraði #-oDóri veit hvað hann er að tala um hann vinnur við þetta =;en þetta var líka gróf reiknað eins og Dóri sagði :-k svo er það núna sem er sníðugt að fá tilboð í þetta dæmi og hætta þessu væli =;þessi braut mundi gera helling fyrir okkar sport  :!:og það væri td hægt að hafa dekk með á mílu þar sem það rignir nánast allar keppnir  :Dgetum við burað í sandi þar sem jú sandur má blotna :-" ps þess vegna hló ég upp hátt þegar þið fóruð að tala um vökvunar búnað á sandinn :lol: hættiði svo að rakka þessa hugmynd niður :evil: stofna nefnd sem fer í málið og skoðar þetta í allar áttir það er hagur KK \:D/
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Heddportun on December 23, 2008, 09:15:51
Það er hægt að notast við Traktor í að dreyfa út sandinum og í önnur verk.Klúbburinn hefur marga félagsmenn sem væntanlega gætu hjálpað til svo þyrfti ekki að bjóða allt út

Ég er í USA og get fengið brautarbúnað notaðan sem nýjan á góðu verði ef hann er ekki til heima eða hægt að smíða
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Jón Þór Bjarnason on December 23, 2008, 09:38:59
Kæru félagsmenn og utanfélagsmenn.
Það er verið að vinna frumvinnuna hjá Hafnarfjarðarbæ. Það er að láta teikna svæðið upp eins og það á að vera í framtíðinni.
Það er ekkert hægt að gera fyrr en sú vinnann er búi. Það er ekki verið að rakka þetta niður heldur þarf að fara að lögum í þessu landi því sektir eru asskoti háar og efast ég að félagsmenn séu tilbúnir að henda peningum klúbbsins út um gluggann. Það er sjálfsagt að hafa tilboð tilbúið í erminni ef hönnunarvinna og samþykkt fyrir teikningum skyldi ganga hratt fyrir sig. Staðsetning skiptir öllu máli og má sandspyrnubrautin alls ekki vera fyrir fyrirhugaðri hringakstursbraut. Ég vona innilega að þetta verði að veruleika sem fyrst.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Kristján Skjóldal on December 23, 2008, 10:36:17
já já =; en svona sand nefnd á að sjálfsögðu að koma að þessu málum með sýn gögn upp á borðið og er ekki spurnig um að það er eðlilegt framhald af þessu svæði ekki satt :?: ](*,)
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: stigurh on December 23, 2008, 18:44:09
Hættu nú alveg, má ekki gera eitt og annað. Hvar fékk ég leyfi til að steypa pitt og veg ? Ég tók mér það leyfi sem þurfti og hef aldrei heyrt neitt um það. Gerum þetta að veruleika og gerum það sem fyrst.
Kristján gefur út Bessaleyfi.
stigurh
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Geir-H on December 23, 2008, 19:15:51
já já =; en svona sand nefnd á að sjálfsögðu að koma að þessu málum með sýn gögn upp á borðið og er ekki spurnig um að það er eðlilegt framhald af þessu svæði ekki satt :?: ](*,)

Stofna strax sandnefnd, ekki bara til að hugsa um braut á svæðinu heldur líka til að halda sandspyrnukeppnir á suðurhorninu.

Þetta þarf að gerast sem fyrst,

Nonni það hlýtur að mega ræða þetta,

Þetta er mál sem þarf að skoðast vel ekki ana að neinu, hugsa að unninn sandur úr námu henti ekki í þetta,
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Shafiroff on December 23, 2008, 20:58:14
sælir félagar.þegar brautin upp í JÓSEPSDAL var græjuð þá var það ekkert neitt sérstakur sandur minnir mig sem notaður var í það ,og fyrir þá sem ekki vita þá standa enn gömul met þaðan allt í lagi að koma því hér að.ég persónulega er búinn að spyrna á öllum þessum brautum og ná sömu tímum á þeim öllum,það er að segja mínum bestu sem er 3.80.þannig að talandi um sand  og ekki sand þá held ég að það sé ekki svo naujið.kv AUÐUNN HERLUFSEN.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Halldór H. on December 23, 2008, 23:05:11
Sæll Auðunn.

Hann var ekki sérstakur sandurinn sem við kepptum á í Krossanesi um árið :D

Besti og jafnframt ódyrasti sandurinn er bara úr fjöru,árfarvegi eða hafsbotni, ekki eitthvað unnið efni.

Kiddi Camaro..  þú þaft að læra að reikna.
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Shafiroff on December 23, 2008, 23:11:09
sæll DÓRI.mikið rétt hálgerð grús og svín virkaði nú samt sem áður.málið er það að ef bílarnir trakka þá er ekkert spól þó að margir haldi það og þá er komin upp sú staða að það er powerið sem telur.ég er marg búinn að skoða þetta á teypi þeir keyra ,þetta hljómar sérkennilega en er nú samt raunin.kv AUÐUNN HERLUFSEN
Title: Re: Hvað er jákvætt við sandspyrnubraut á svæði KK
Post by: Halldór H. on December 23, 2008, 23:20:51
Laukrétt hjá þér Auðunn.