Show Posts

This section allows you to view all posts made by this member. Note that you can only see posts made in areas you currently have access to.


Topics - snipalip

Pages: [1] 2 3
2
BÍLAR til sölu. / 1984 Pontiac Firebird Trans Am
« on: July 19, 2013, 06:15:34 »
Er með til sölu 1984 Pontiac Firebird Trans Am.

Árg.: 1984
Vél: Chevrolet 327
Skipting: Sjálfskipting 700r4
Akstur: um 87.000















Bíllinn er algjörlega ryðlaus á boddy og undirvagni en það mætti hressa aðeins uppá lakk. Hann er búinn að standa að mestu leyti inni síðan 2006. Vélin er nýupptekinn og er á henni ný olía, sem og á skiptingu og drifi. Það er búið að keyra þennan mótor innan við 100 km eftir upptekt.

Frekari upplýsingar um vélina:
327 2 bolta block í 040 bor Casting.nr 3914660,date J 16 7=Oktober 16 1967 (Orginal upp úr 275 HP '68 Camaro)
Blockin er alveg slitbrúnarlaus
Ný Létt hónuð + Krosshónuð (og rækilega þrifin eftir það)
Nýjar knastáslegur +  272°Crane Knastás og Crane blæðandi liftur. Knastásinn er nýr.
Nýjar 3 keyways double roller tímagír.
Nýlega renndur 3.250 pottstáls sveifarás sem sér ekki slit á! í málunum 010/010 á rods og mains.
Nýjar höfuðlegur Clevite 77 P series legur 010.
Heddin eru af 305 SBC með stærri ventlunum 1,84-inn.
SBC stimplar á stöngum með Crom Moly hringjum

Fleira sem búið er að gera:
Nýlegt 3" púst, einfalt aftur í einn endakút og tvöfallt út
Ný high volume vatnsdæla
Ný Edelbrock performer double plane millihedd
Edelbrock 600 fcm blöndungur (Holley 750 double pumper gæti fylgt með)
Nýir spindlar
Nýjar spyrnufóðringar að framan
Nýjar balancestangafestingar
Það fylgja honum flækjur sem á eftir að setja í

Hann fékk endurskoðun í þessum mánuði útá ryðhúð á bremsudiskum að aftan vegna lítillar notkunar, þarf bara að pússa upp. Það eina sem er að hrjá hann er kælingar vandamál, þ.e. það vantar betri vatnskassa og tengja í hann hitarofa fyrir rafmagnsviftuna. Annars á hann að vera í góðu standi. (Samningsatriði hvort þetta verður lagað eða ekki fyrir sölu)

Set á hann 700,000 en óska eftir tilboðum.
Einnig skoða ég skipti á dýrari eða ódýrari fólksbíl, slétt skipti eða milliborgun í aðrahvora áttina.

Svara skilaboðum hér eða á sefint@gmail.com eða í síma 8498491

3
Varahlutir Óskast Keyptir / Óska eftir góðum vatnskassa
« on: June 28, 2013, 12:41:49 »
Vantar góðann vatnskassa, man ekki málin en á að fara í 3gen firebird, væri gott ef hann væri úr áli.

8498491

4
Varahlutir Óskast Keyptir / Vantar oil pressure switch/ smurpung
« on: March 28, 2013, 10:21:35 »
Daginn, vantar þriggja pinna oil pressure switch / smurpung í SBC.

S:8498491 eða sefint@gmail.com

5
Varahlutir Óskast Keyptir / sbc flækjur óskast.
« on: August 11, 2012, 03:18:08 »
Flækjur óskast í sbc, short tube eða
long tube með 3" collector helst með
flangs, en skoða allt. eiga að fara í
firebird 1984.

6
Bílar Óskast Keyptir. / Óska eftir fólksbíl eldri en 1988
« on: July 28, 2012, 21:01:16 »
Bíllinn má vera eitthvað bilaður. Helst er ég að leita að einhverjum 80's snattara með 4 eða 6 cylindera mótor, allra-þjóða-kvikindi koma til greina. Skoða allt.

S. 8498491 / sefint@gmail.com
Kv. Guðmundur

7
Varahlutir Óskast Keyptir / .
« on: June 14, 2012, 18:29:54 »
.

8
Er að athuga hvort einhver eigi til frammhurð farþegameginn í 4ra dyra Chevrolet Malibu Classic 1978 - 1983 (1979 bíll). Vantar aðallega karminn, hurðin sjálf má vera ónýt af riði.

Einkaskilaboð, sefint@gmail.com eða S: 8498491

9
BÍLAR til sölu. / Pontiac Grand Am GT - 1400 kall-
« on: January 08, 2012, 16:49:54 »
Pontiac Grand Am GT


Upplýsingar um bílinn:
Árgerð - 2002
Akstur - 125.000 km
Slagrými - 3350cc
Vél - V6
Eldsneyti - Bensín
Hestöfl - 170
Þyngd - 1465 kg
Drif - Framhjóladrif
Skipting - Sjálfskipting
Næsta skoðun - 2012

Aukabúnaður:
Filmur
Fjarstýrðar samlæsingar
Geislaspilari
Hraðastillir
Höfuðpúðar aftan
Kastarar
Litað gler
Líknarbelgir
Loftkæling
Rafdrifnar rúður
Rafdrifnir speglar
Samlæsingar
Segulband
Sílsavindskeiðar
Smurbók
Útvarp
Vindskeið/spoiler
Hiti í sætum
Armpúði
Álfelgur
4 heilsársdekk
Vökvastýri
Veltistýri
ABS hemlar

Myndir




Þéttur og góður bíll.
Upplýsingar hér, sefint@gmail.com eða 8498491

Ásett verð: 1.900.000
Tilboð 1.400.000
Hlusta á öll tilboð og skipti
Góður Staðgreiðsluafsláttur í boði

10
Aðstoð / Fastur spyrnubolti
« on: September 08, 2011, 10:17:54 »
Sælir.
Er að taka spyrnur úr third gen Firebird. Farþegameginn megin labbaði hún úr en hinumegin er fremri boltinn fastur í fóðringunni. Ég er búinn að reyna að snúa honum en fóðringin vindur bara uppá sig, búinn að berja duglega á hann en erfitt að koma duglegum höggum á hann vegna staðsetningar, prófaði að hita hann smá og berja en ekkert haggast, það kviknar líka mikið í olíunni eða húðinni sem hefur verið sprautað á undirvagninn. Mér er sama þó að fóðringin eyðileggist mig langar bara að ná þessu úr. Eruð þið með einhverjar galdralausnir?


11
Aðstoð / 700r4
« on: April 15, 2011, 02:19:34 »
Sælir, ég er með Trans am ´84 sem er með 700r4 skiptingu, skiptingin bilaði en ég fékk 700 skiptingu úr 198? Caprice til að setja í hann til að geta farið að keyra. Hins vegar ætlaði ég að nota converterinn sem var í Trans am við Caprice skiptinguna en þá kom það í ljós að það gekk ekki alveg saman. Minna tannhjólið á Caprice skiptingunni er 2,5mm breiðara en sama tannhjól á Trans am skiptingunni, en annað er að öllu leyti eins, að ég held.

Það sem mig langaði að spyrja um er hvort að það sé einhver annar grundvallar munur á þessum skiptingum, það er enginn stór upphleyptur stafur á Trans am skiptingunni en stórt R að mig minnir á Caprice skiptingunni, ef það segir ykkur eitthvað?
Og veit einhver um converter sem hentar mér? (Hélt að það væri bara nóg að segja converter fyrir 700 skiptingu)

Báðar eiga að vera standard skiptingar.

Takk fyrir..

12
Aðstoð / Skipta um spindla
« on: March 28, 2011, 01:39:09 »
Sælir, ég er að skipta um spindla í 84 trans am, ég hef aldrei skipt um spindla áður svo að ég er með nokkrar spurningar sem ég vonast til að þið getið hjálpað mér með.

Þegar nýji spindillinn er settur í á að berja hann upp í sætið eða má ekkert berja á þetta?

Ég er búinn að berja hann aðeins upp í sætið öðru meginn og var að spá í hvaða röð maður á að gera þetta: -setja fóðringuna á, -setja feitina í, -setja allt á réttann stað og herða niður ?




13
Bílar Óskast Keyptir. / Toyota Hilux stgr.
« on: February 17, 2011, 09:33:27 »
Sæl/ir, óska eftir Toyota Hilux, helst 2.4 diesel Turbo en skoða líka non Turbo eða 2.4 benzín, bara ekki 3.0 v6 benzín. Helst þarf hann að vera eitthvað breyttur, 33" - 38" en skoða samt óbreytta. Má vera single cab, xcab eða dcab, er að leita af ca. 89 - 94 árg af bíl. get staðgreitt rétta bílinn.

Uppl. í einkapósti, sefint@gmail.com eða síma: 8498491

14
BÍLAR til sölu. / 1988 Ford Bronco Eddie Bauer ( Stóri Bronco )
« on: February 04, 2011, 23:19:01 »
Er með til sölu Ford Bronco Eddie Bauer, þ.e. stóri Bronco.

Árg: 1988
Vél: 302 - 5.0
Skipting: Sjálfskiptur - C6
Eldsneyti : Benzín
Akstur: Rétt um 65.000 km.
Litur: Grænn/drapplitaður











Bíllinn er með endurskoðun vegna þess það þarf að kíkja á bremsurnar að framan, það fylgja með bremsudiskar og skálar, og einnig var sett útá spindilkúlur.

Rafgeymirinn er orðinn frekar þreyttur.

Svo er ég með annan eins bíl í varahluti, sama árgerð, grár að lit, með vél og skiptingu og mikið af varahlutum í honum.

Ég ætla að reyna að setja inn nýrri myndir og myndir innanúr honum við fyrsta tækifæri.

Planið er að selja báða bílana saman.

Verð: Sá græni einn og sér - 350.000 kr.
        Báðir saman             - 400.000 kr.

Skoða ýmis skipti, aðalega á diesel jeppum/picup, en skoða flest, bara bjóða.

Einkapóstur - sefint@gmail.com - 8498491 - 8481710

15
Aðstoð / Stóri Bronco 1988
« on: October 29, 2010, 23:15:08 »
Sælir,

- vitiði hvaða hlutföll eru original í þessum bílum?

- Svo er í honum 302/C6 og ég var að spá í að setja í 6.9l diesel´mótor úr 1984 Econoline í staðin, myndi sá mótor passa beint ofaní eða þyrfti að breyta einhverju og hverju þá?

- Og hvað þarf að hafa í huga þegar maður breytir benzínbíl í dieselbíl?

Kv. Gummi

16
Bílar Óskast Keyptir. / Óska eftir gömlum tractor
« on: April 10, 2010, 22:17:37 »
Óska eftir tractor af nánast hvaða gerð sem er, nema helst ekki austantjaldsverkfæri s.s. Zetor og Ursus og svo framvegis. Helst er ég að leita af MF 35 - 240 eða Ford 2000 eða nánast hvað sem er. Þeir mega sem sagt vera fjörgamlir og lítið fyrir augað en helst að það sé hægt að setja í gang og keyra, þeir mega ekki kosta mjög mikið en skoða samt allt.

Upplýsingar í S: 8498491 eða einkapóst eða snipalip@hotmail.com

17
BÍLAR til sölu. / Bronco II Eddie Bauer - Fæst fyrir lítið
« on: February 16, 2010, 13:37:37 »
Til sölu Ford Bronco II Eddie Bauer´89 modelið, 2,9 V6 bsk. Hann er á "33 dekkjum. Með honum fæst einhver tíningur af varahlutum og önnur 2,9 vél, einnig 302 mótor með 4 gíra trukkakassa og millikassa. Fæst fyrir lítið.

Frekari upplýsingar og fyrirspurnir á mailið andhrimnir3@hotmail.com eða ferskeytla@gmail.com

18
Alls konar röfl / 350/ 383/ 400 sbc
« on: December 15, 2009, 21:05:20 »
Sælir

Ég ætlaði að athuga hvort að þið ættuð eitthvað drauma-setup á sbc, 350 - 383 stroker til 400 sbc, er að leita af ca. 500 - 600 hp, á að fara í götubíl.
Annaðhvort eitthvað sem þið hafið gert, vitið um, eða eigið til/vitið um plön frá A-Ö um uppbyggingu svona vélar. Ég væri alveg til í að hafa blower í svona setupi, en ekki turbo eða nitro, á að vera blöndungsvél. Mætti kosta allt uppað 500.000 .- einnig væri gaman að vita hvort það sé ódýrara eða betra að kaupa tilbúna nýja vél frá útlandinu með einhverju góðu setupi.

19
BÍLAR til sölu. / Ódýr Toyota Avensis til sölu
« on: August 17, 2009, 14:57:02 »
 Ég er með til sölu Toyota Avensis 2000 modelið, beinskiptur, 1600 mótor.
Hann hefur verið notaður mikið í langkeyrslur og í skólaakstur og fer þess vegna ódýrt vegna mikillar keyrslu en hann er keyrður um 250.000km, einnig er lakkið ekki alveg eins og nýtt en eingin tjón eða ryð.
Hann er á 14" fondmetal álfelgum og ágætis munstruðum dekkjum og það fylgja með honum 15" stálfelgur með koppum en á ónýtum dekkjum og svo 16" ál/krómfelgur sem eru orðnar flagnaðar (þarf bara að pólýhúða) á ónýtum dekkjum.
Hann er óskoðaður (09), og annað hvort selst hann þannig eða skoðaður, en það sem þarf að gera fyrir skoðun er að: strekkja á handbremsu og hugsanlega skipta um bremsu diska að framan.
Það sem er nýlega búið að gera fyrir bílin er að skipta um framhjólalegur, bremsuklossa að framan, skipt var um tímareim, vatnsdælu og strekkjarahjól rétt fyrir 200.000 km.

Hérna eru myndir frá því í fyrravetur, kem með betri myndir seinna:








Þetta eru 16" felgurnar, þær eru orðnar mjög flagnaðar en samt heilar.

Ég þarf að losna við bílin sem allra fyrst, set á hann 280.000 kr. Hlusta á öll tilboð.

S: 8498491 ep eða sefint@gmail.com

20
Bílar Óskast Keyptir. / Óska eftir bílum á 15 - 20.000
« on: August 13, 2009, 00:54:21 »
Óska eftir bílum helst á skilagjaldi, haugryðguðum, tjónuðum, ljótum, númerslausum og/eða afskráðum en þurfa samt að geta keyrt. Helst er ég að leita af 4wd bílum en allt kemur til greina. Það skiptir engu máli hvernig þeir eru útlitslega að innan eða utan, skoða allt.

Pm eða sími 849-8491

Pages: [1] 2 3