Kvartmílan > Aðstoð
uppplýsingar um sprautun ....
siggik:
núna er ég að kanna hvað það myndi kosta fyrir mig að sprauta capricinn, heilsprauta ,með allri vinnu, ryð osfr. og hvað það yrði mikið extra ef annar litur yrði valinn.
myndir:
http://img180.exs.cx/img180/1403/DSC00974.jpg
http://img180.exs.cx/img180/4999/DSC00975.jpg
http://img180.exs.cx/img180/9896/DSC00970.jpg
http://img180.exs.cx/img180/5021/DSC00971.jpg
http://img180.exs.cx/img180/7182/DSC00972.jpg
http://img180.exs.cx/img180/893/DSC00973.jpg
http://img237.exs.cx/img237/2531/DSC00981.jpg
http://img237.exs.cx/img237/6878/DSC00976.jpg
http://img237.exs.cx/img237/4713/DSC00977.jpg
http://img237.exs.cx/img237/7/DSC00978.jpg
takk fyrir
JHP:
Ég vill ekki vera leiðinnlegur enn ég mundi safna lámark 500 kalli og ekki reikna með að það verði auðvelt að finna einhvern í þetta
siggik:
hehe já ég er ´buinn að heyra það ... eftir að ég póstaði þessu, er þannig að spá hvort það sé hentugra að flytja bíl inn, fann fínan túrbó trans am á 660 dollara atm, yrði 430 þús í gegnum shop usa í 700$ :?
væri ódýrara að láta einhvern sérhæfðan gæja um það ?
Siggi H:
veistu hvað ég myndi seigja við þig? taktu teppið innanúr honum og kíktu á gólfið.. hver einasti svona bíll sem ég veit um þá vantar gólfið í þá undir teppinu innaní bílnum. ekki seigja mér að botninn sé í lagi. því það getur vel verið að hann virðist fínn undir bílnum. en ef þú kíkjir undir gólfteppið og það vantar eitthvað mikið þar ÞÁ SKALTU henda bílnum. fyrst bíllinn sjálfur er byrjaður að ryðga svona.
Ingvar Gissurar:
Ef það á að laga þennan bíl svo vel sé þá kostar það helling af seðlum.
Bara sprautun á þetta stóran bíl með því að skipta um lit og sprauta föls oþh. er varla undir 400,000 m.vsk.og þá er ryðbæting og rétting ekki inni í því.
Samkvæmt myndunum þá er um helling af ryðbætingu að ræða og alls ekki víst að það fynnist allt því mikið af þessu kemur innanfrá, sem þyðir að það er alveg eins líklegt að þetta haldi áfram á fleiri stöðum eftir að það er búið að taka bílinn í gegn :?
Þú getur kanski fengið einhvern til að "redda þessu ódýrt" en þá skalltu ekki gera ráð fyrir því að það endist lengi :(
Þegar þetta mikið er farið að sjást af ryðskemmdum þá kemur alltaf mun meira í ljós þegar byrjað er að vinna í bílnum og þar sem ryðbætingar eru seinleg vinna þá er þetta fljótt að vinda upp á sig í kostnaði.
Td, gólf, grindarbitarnir að aftan (þó það komi reyndar sprautun ekki við) hurðabotnar, hurðaföls og stafirnir við við lamirnar (oft á milli byrða) undir viniltoppnum, gluggapóstarnir á hliðargluggunum (ryðga innanfrá) og svo mætti lengi telja.
Ég mundi ráðlegja þér að nota aurana þína frekar í að flytja þér inn eithvað sniðugt frá USA. Það er einfaldlega langt frá því að það borgi sig að vera að eyða einhverju í boddýið á þessum.
ps. ég gæti alveg ýmyndað mér að þú getir fengið nokkuð góðan svona bíl hingað heim á lítið meira en þú þyrftir að eyða til að gera þennan góðann :idea:
Navigation
[0] Message Index
[#] Next page
Go to full version