Author Topic: Pæling  (Read 2645 times)

Offline Maveric

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 34
    • View Profile
Pæling
« on: April 27, 2004, 18:41:24 »
Ég er búnn að vera að skoða millihedd, og þar stendur oft, designed for '55-'86 262-400, breyttust vélarnar eitthvað 1987, og ef svo er, er þá hægt að nota þessa parta á svoleiðis vél??? og eins, þarf maður, þétti ef maður er ekki með platínukveikju??, svar óskast.
American cars smoke tires.... japaneese cars smoke engines

Offline Nonni

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 890
    • View Profile
Pæling
« Reply #1 on: April 27, 2004, 20:12:30 »
Breytingarnar 1987 voru ekki stórvægilegar hvað þetta varðar, en gera þér erfitt fyrir að nota millihedd af eldri vélum.  Mig minnir að hallinn við hedd og millihedd hafi eitthvað breysts en allavegana breyttust boltagötin eitthvað.  Ef þú setur eldri hedd á vélina þá ertu í góðum málum :)  

Önnur breyting 1987 er að þá fóru margar chevy vélar að koma með rúlluknastás, en það kemur þessu máli ekkert við.

Ég hef enga reynslu af platínukveikju í chevy (var eitthvað að hræra í því í VOLVO hér í den, endalausar stillingar á platínubili) en Chevy hætti með þær fyrir mjög löngu síðan.  Ætli HEI kveikjan hafi ekki komið snemma eða um miðjan áttunda áratuginn.

Kv. Jón H.
Jón H. Guðjónsson

1986 Pontiac Firebird Transam
1981 Chevrolet Blazer K5 Silverado
2007 Jeep Grand Cherokee Laredo
2006 Trek 5200
2012 Cube LTD Race

Offline Maveric

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 34
    • View Profile
takk
« Reply #2 on: April 28, 2004, 00:06:42 »
Þökk, en já er þá blokkin óbreytt, þá spyr ég aftur eins og álfur út úr hól, Designed for non-emissions 302-400 c.i.d. engines up to 1986, þetta er umsögn um hedd, hvað þíðir það???, damn, ætli maður verði þá ekki bara að byggja nýtt!!!, jæja, takk samt, voðalegt vesen hjá kananum að breyta þessu akkúrat þarna. Og já, með gráður á heddum, hvað er svona allmennt á Chevy þ.e. og hverju breyta þær sbr. 18° og 23° hedd frá Trick Flow.
American cars smoke tires.... japaneese cars smoke engines

Offline Nonni

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 890
    • View Profile
Pæling
« Reply #3 on: April 28, 2004, 09:14:27 »
Þú getur notað hedd af eldri vél á blokkina, en þá verður þú að fá þér millihedd sem passar.  

Þetta non-emission dæmi skiptir aðeins máli í USA.  Ég veit ekki um neinn bíl frá þessum árum hér á landi sem er með mengunarbúnaðinn á sínum stað (þó svoleiðis eintak finnist eflaust einhversstaðar).

Ef vélin þín er með orginal rúlluundirlyftum (sem er ansi líklegt) þá bætir það margt annað upp :)

Nú er ég ekki nógu fróður til að lýsa hvaða halli er bestur, en hallinn hefur áhrif á leiðina sem loftið þarf að fara.  Hvor hallinn er betri í götubíl hef ég ekki hugmynd um, en eflaust er einhver mér fróðari um það mál hér á spjallinu.

Kv. Jón H.
Jón H. Guðjónsson

1986 Pontiac Firebird Transam
1981 Chevrolet Blazer K5 Silverado
2007 Jeep Grand Cherokee Laredo
2006 Trek 5200
2012 Cube LTD Race

Offline Maveric

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 34
    • View Profile
takk
« Reply #4 on: April 28, 2004, 23:44:06 »
Takk kærlega fyrir skjót svör, en eitt að lokum, skiptir einhverju með blöndunga á millihedd, eru einhverjir sér blöndungar fyrir square bore, eða eru þeir bara svona universal fitting, þ.e. get ég sett hvaða blöndung sem er á millihedd sem er ekki square bore.

með þökk fyrirfram
American cars smoke tires.... japaneese cars smoke engines

Offline baldur

  • Administrator
  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 2.464
    • View Profile
    • http://foo.is
Pæling
« Reply #5 on: April 29, 2004, 10:08:02 »
Þú getur notað spread bore blöndung á square bore millihedd með bara þar til gerðri milliplötu.
Baldur Gíslason

1995 Mitsubishi Eclipse GSX 4x4 turbo
1992 Polaris Indy RXL 136" turbo

Turbo or no go.

Offline Maveric

  • Playing NHRA on playstation
  • *
  • Posts: 34
    • View Profile
jahá
« Reply #6 on: April 29, 2004, 15:20:54 »
þakka skjót og góð svör :D
American cars smoke tires.... japaneese cars smoke engines

Offline Einar Birgisson

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 1.422
    • View Profile
Pæling
« Reply #7 on: April 29, 2004, 15:50:09 »
23° er hið venjulega Chevy hedd, en 18° 15° 12° 11° og jafnvel 10° eru Race only stöff sem þarf mikið af öðru Race only stöffi til að dæmið gangi upp.
Einar Þór Birgisson

Drag racers go straight to the finishline. The others guys drive in circles looking for it.

Mín skrif hér eru mínar persónulegu skoðanir. Ég áskil mér rétt til að skipta fyrirvaralaust um skoðun.