Kvartmílan > Bílarnir og Græjurnar
Hvað er plenium pan?
eva racing:
Sælir.
Ég geri ráð fyrir að þetta sé öndvegishreyfill af Dodge ætt. Ef svo er þá er ekki "valley pan" undir milliheddinu heldur er olíunni haldið frá með plötu sem er boltuð undir milliheddið. og er ekki með neinni pakkningu. Til að brenna 1,5 lítrum af olíu pr 1000km,hlýtur þú að ferðast um í huliðs skýi. ertu viss um að ekki sé leki hjá þér. Skoðaðu kertin og ef þau eru þokkaleg (ekki svört og loðin) þá gerir hann eitthvað annað við olíuna.
Annars brenna allir bullumótorar olíu, ef ekkert eyðist af henni úr pönnunni þá er það vegna þess að það kemur bensín í staðin.(þetta skeður þegar bílar eru kaldir og eru á "innsoginu" já líka innspýtingabílar) Og heldur magninu í skefjum.
Happy hunting.
Valur Vífilss. olíumaur
Grill:
blasa Valur, þakka þér fyrir svarið
Þótt ótrúlegt megi virðast þá lekur mótorinn, sem og annað í bílnum, engri smurolíu, ekki dropa! Hinsvegar þá eru kertin engu skárri en í gömlum snjósleða, alveg hraukuð af svertu og ógeði, og það öll átta alveg jafn ógeðslega ljót!
Með tilliti til þess að þjappan er mjög góð ( jöfn á öllum, skv manualnum )
og að gangurinn er mjög þýður og góður þá ætla ég að opna þetta og skoða hvort ég finni eitthvað skrýtið. Ég er búinn að athuga allar vacumslöngur sem og tengi og það virðist allt vera í orden.
Haust 2003 voru hedd þrýstiprófuð og plönuð í heddpakningaskiptum, getur verið að það sé eitthvað að klikka :?: :!: :?:
Grill:
búið að rífa, græja og gera. Pakkningin á plötunni neðan í milliheddinu var farinn, farin útúr á 4 stöðum.
Setti nýja úr blikki frá jörlunum í HJónssyni, skipti svo auddað um kerti.
Allavega, smurolíubrennslan er úr sögunni og allir ánægðir.
Þó svo að ég hafi talað um að bíllinn brenndi engu, þá er ég að meina að hann sé ekki að brenna meir en eðlilegt sé, kanski 0,5 - 1 ltr milli smura?
Kveðjur úr Kuldanum
H.
Navigation
[0] Message Index
[*] Previous page
Go to full version