Author Topic: hvaða mustang???  (Read 2637 times)

Offline ljotikall

  • Staged and NOS activated
  • *****
  • Posts: 838
    • View Profile
    • http://kvartmila.is
hvaða mustang???
« on: March 23, 2004, 18:23:31 »
Ég var að spa... ekki er þetta gt500 sem var hér a klakanum... Ef svo er hvað kom eiginn lega fyrir hann og hvenær var myndinn tekinn??? http://www.internet.is/bilavefur/album/ford/images/shelby_2.jpg ... Og já moli frábær siða hjá þér :D  :D (fékk myndina þar.. takk  :D )
aukalimur#858
ljotikall@visir.is
pontiac = Poor old nigger thinks its a cadillac.
kveðja Guðjón Jónsson

Offline Moli

  • On the bumper looking at god
  • *******
  • Posts: 6.016
  • www.musclecars.is
    • View Profile
    • http://www.musclecars.is
hvaða mustang???
« Reply #1 on: March 23, 2004, 21:01:23 »
takk fyrir það! en ég held nú að ég hafi hnuplað myndinni af www.mustang.is  :oops:  það eru fleiri myndir af honum þar sem og á www.ba.is annars var hann hérna milli ´75 og ´80 held ég, hann var í eigu Arthurs Bogasonar var svo víst seldur til bandaríkjanna í uppgerð og þaðan átti hann að hafa farið á bílasafn í Tokyo, því enginn vildi borga uppsett verð fyrir hann hérna heima, (kannski sjá nokkuð margir eftir því núna því þessir bílar eru gríðarlega eftirsóttir í USA og seljast í kring um 100.000 dollarana)  :roll:

Magnús Sigurðsson.
www.musclecars.is
1971 Chevrolet Nova
1969 Ford Mustang 351W
1970 Ford Cortina
bilavefur.net á YouTube
mc@internet.is

Offline Tóti

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 240
    • View Profile
hvaða mustang???
« Reply #2 on: March 23, 2004, 21:35:36 »
Fallega stafsett Shelby þarna hjá þeim...
Þórir Örn Eyjólfsson
1993 BMW 540i
1986 BMW 535i
1986 BMW 535i
1986 BMW 520i
ofl

Offline C-code

  • In the burnout box
  • ***
  • Posts: 145
    • View Profile
Enn er talað um Cobruna ......
« Reply #3 on: April 02, 2004, 14:00:16 »
Þessi mynd frá ljótakalli er nú ekki til að klappa fyrir en svona leit bíllinn út á þessum degi haustið 1982. Ég hafði ekið honum nokkuð sumarið ´82 eftir að vera búinn að setja í hann sjálskiptingu, drif af réttri hæð og gerð, laga fjaðrir og ótal margt annað, en svo er það bara eldsnemma á föstudagsmorgni í október 1983 að ég er að leggja af stað á ljósi á Klapparstíg og Laugavegi að þar kemur aðvífandi Volvo jarðýta á N -númeri og sá ég að ökumaður og farþegi voru í hrókasamræðum og sáu ekki neitt. Ég náði að nema staðar, en þó kominn aðeins inn á gatnamótin. Þar fór stuðarinn. Allt í K, og ég fór í vinnuna og svo heim um kvöldið. Fór svo út á land á skytterí. Aðfaranótt laugardagsins fæ ég upphringingu frá pólitíinu vegna R-2999, Mustang-bíls og ég spurður hvort ég eigi þennan grip. Lúðinn hafði komið á sínum fjalla Hi-Lux og snúist í heilhring á götunni þar sem ég bjó og náði að skella sér tvisvar í hliðina og framan á bílinn. ÞEss vegna er hann svona dapurlegur á þessari mynd. En það átti eftir að versna. Þarna á myndinni stendur hann fyrir utan ónefnt málningarvekstæði í Firðinum. Nóttina eftir að þessi mynd var tekin var öllm dekkjunum stolið undan honum. Er það ekki botninn?

Ég kláraði að gera við hann og alla mína fjármuni og meira til. Seldi hann úrbræddan vorið 1985 og sé ekki eftir honum. ÉG hef verið í sambandi við SAAC vegna hans og það er rétt, hann er á bílasafni í Tokyo. Bílaspekúlantar  halda að 100 þúsund dollarar sé einhver endaleg tala en svona bíll var seldur nýlega óuppgerður á um 27 þúsund dollara. Allir þeir sem eiga GT-500 bíla ljúga því til að þeir hafi verið með  2XHolley 4v, 10-spoke felgur og inboard lights. Það er bull. Fyrstu 100 bílarnir voru með inboards, restin var það ekki og aðeins um 100 fyrstu bílarnir voru smíðaðir í LA, þá var að slitna upp úr samstarfinu. Það var vegna þess að Carroll Shelby nennti ekki að framleiða rúnkerrur fyrir kótilettukarla. Fyrir honum eru 65-66 GT-350 K- og R bílarnir hinir einu sönnu Shelby Mustangar.

Mönnum þykir það súrt að ekki sé til svona bíl hér, sögunnar vegna en um það var ekki að ræða. Þessi bíll lifði sitt blómaskeið hér eitt sumar (1973) og varð aldrei það sem til stóð aftur. Menn verða bara að sætta sig við það.  En vélin úr honum er til hér, hálf ónýt að vísu en kannski raða ég henni saman einn daginn og set í minn einka Galaxie 500 Convertible. Stay tuned guys.  :!: